Ísfirðingur - 15.12.1986, Síða 5
BíAÐ TRAMSOKNAKMANNA / VESTFJARÐAKJORD&M/
36. árg.
Isafirði í desember 1986
12. —17. tbl.
Sr. Jakob Hjálmarsson:
Jólahugvekja
„Orðið varð hold og hann bjó með oss fullur náðar og
sannleika.“ (Jóh. 1:14)
Þyngst allra mannsins rauna er einsemdin og einsemd
er fylgikvilli nútímamenningar. Samfœrsla manna-
byggðar í stórborgir og samtenging þeirra með nútíma-
tœkni virðist vera samfara aukinni einangrun manna.
Sömuleiðis sýnist áberandi uppgjöf manna hvers á öðr-
um og mannlegum vandamálum yfirleitt.
Einna mest áberandi á liðnu hausti hafa verið hjá
okkur tveir viðburðir, sem skoða má í Ijósiþess sem nú er
sagt. Sökkning hvalbátanna og leiðtogafundurinn. í
hinu fyrra dœmi höfðu gjörningsmennirnir nokkurt er-
indi en í hinu síðara fór mjög miður.
Einstaklingar eru reiðubúnir að ganga fram fyrir
skjöldu til að forða útrýmingu dýra og verja til miklu fé
og heiðri sínum, en vont er tilþess að vita hve fáir menn
eru reiðubúnir til að hœtta sér til að koma í veg fyrir
hugsanlega útrýmingu mannsins af jörðunni. Það er þó
óumdeilanlega brýnast verkefni manna nú um stundir.
í stórborgum rœkta menn fremur hunda en mannleg
vináttusambönd. Hér sitja menn fremur framan við
sjónvarp en sœkja mannfundi. Kannski er það vegna
þess að það er venjulega svo mikill vandi á ferðinni á
slíkum fundum sem og í þessari litlu hugleiðingu. Ef til
vill œttum við fremur að beina sjónum okkar aðþví sem
er í lagi — gott — í mannlegu samfélagi. Við œttum að
nœra vináttuna og heilbrigða gleði meir en við gerum;
vera saman hvert með öðru og ekki að dyljast hvert við
annað; vera sönn eins og Jesús var. Jesús forðaðist ekki
fjöldann. Hann vék sér ekki undan vandamálunum og
hann gerði jafnvel meira en hann sagði. Hann var í
sannleika og kom með hjálp — náð — til náunga sinna.
Hann var með.
Það að vera á sama stað og tíma þarf ekki að fela í sér
það að vera saman. Ekki ef hver einn hefur aftur dyr
hjarta síns og dylur hug sinn. Jólin hafa fremur lag áþví
að fœra fólk saman en nokkur annar tími ársins. Það
kemur úr fjarlœgum stöðum tilþess að gista hvert annað
og gleðst, fœrir hvert öðru gjafir og opnar hug og hjarta.
Það hœttir á vináttubrögð sem það annars hefur ekki
djörfung til að sýna. Lœrum af jólunum. Látum anda
þeirra flæða um árið allt. Lœrum af Jesú, sem gafst
okkur á hinum fyrstu jólum. Verum sönn eins og hann.
Opnum hug okkar fyrir gœsku gjafarans og veitum að
dœmi hans, að aðrir megi njóta þess með sem við höfum
þegið. Þiggjum náð Jesú og lifum í sannleika hans hvert
með öðru. Lifum í kœrleika. Guð er kœrleikur.
Sr. Jakob Hjálmarsson