Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1986, Blaðsíða 9

Ísfirðingur - 15.12.1986, Blaðsíða 9
ÍSFIRÐINGUR 9 Einn atburður sem átti sér stað, meðan ég var enn í bernsku, er mér minnisstæðari en flestir aðrir. Það var „jarðarför,“ ef svo mætti að orði komast, þótt ekki færi hún fram með hefðbundnum hætti. Svo hrein og fölskvalaus var hlut- tekning mín og sorg, að ég held að stundin hafi nálgast það að vera heilög. Allar frásagnir hafa sinn að- draganda. Þegar ég var um það bil 9 ára, hreinlundað og sak- laust sveitabarn, með lítt víð- sýnan eða þroskaðan sjóndeild- arhring, urðu þau tíðindi heima hjá mér, að bræður mínir, sem flestir voru allmiklu eldri en ég, þrír komnir yfir tvítugt, tóku sér það fyrir hendur, að hefja kan- ínuræktun á heimilinu til þess að auka við skotsilfur sitt, sem eflaust var lítið fyrir. Það stóð mikið til og einhverskonar kanínubúi úr vírneti með smá- um möskvum, var komið fyrir í skjólsælu horni milli geymslu- skúrsins og fjóssins. Þar í voru látnir trékassar með heyi og hálmi, svo og vatnsílát í hvert horn, svo að ekki skyldi þennan nýja búsmala skorta matar- eða drykkjarföng. Sáð var næpu- fræjum um vorið í stórt flag, en á þeim skyldu kanínurnar fóðr- aðar ásamt einhverju fleira sem ég nú man ekki lengur, en eitt af því var grænkál. Ekki veit ég hvaðan kanín- urnar komu, en eftir eina kaup- staðarferð um sumarið, var borinn heim strigapoki og farið varlega með. Það var hvolft úr pokanum í „kanínubúið“ og nú gafst á að líta. Úr pokanum ultu tvær kanínur, karldýr og kven- dýr. Kvendýrið var brúngrátt, en karldýrið hvít- og svart- flekkótt. Mér þóttu þetta mikil tíðindi og horfði hugfangin á litlu dýrin sem auðvitað hurfu von bráðar dauðskelfd inn í einn kassann í búinu. Þetta sumar, eins og raunar öll sumur á þessum árum, var frændi minn í sveit hjá okkur. Hann var næstum tveim árum eldri en ég og okkur kom afar vel saman og lékum okkur alla daga. Þessi frændi minn, en hann heitir Vikar, varð fyrir þeim ör- lagadómi, er hann var á öðru aldursári, að fá lömunarveiki og hefur verið algjörlega fatlaður á fótum síðan. Að öðru leyti var hann afar efnilegt barn og hinn mesti mannkostamaður síðar á ævinni. Við Vikar sátum öllum stundum úti við kanínubúið og fylgdumst með hátterni þeirra. Þær urðu brátt spakar og gæfar og nörtuðu í mat úr lófa okkar. Mikið þóttu okkur þær fallegar. Eftir ótrúlega skamman tíma stækkaði kanínufjölskyldan. Magdalena Thoroddsen: „Jarðarför“ Kanínumamma hvarf í nokkra daga og hélt sig í einum kass- anum og svo kom hún einn góðvirðisdag út aftur og nú fylgdu henni fjórir brúnir og svarthvítir hnoðrar. Það voru komin kanínubörn. Gleði okkar Vikars var ólýs- anleg. Við tókum litlu ungana í lófana og lögðum þá undir vanga okkar og gáfum þeim kál að borða. Kanínumamman virtiust ekkert óttast okkur. Við fengum líka að strjúka henni, án þess hún reyndi að bíta okk- ur. Það fóru yndislegir sumar- dagar í hönd og okkur grunaði ekki að óhamingjan væri á næsta leiti. Þótt allir á heimilinu hefði yndi af kanínunum, var þó einn agnúi á. Það var hún Bubba gamla, hundurinn okkar. Hún var heimarík og tortryggin gagnvart þessum nýju vinum okkar. Hún reyndi hvað eftir annað að komast inn í kanínu- búið með þeim ásetningi að tortíma því sem þar var. Hún hafði líka sýnt sig í því að ráðast á hænuungana og einnig and- arunga úti í mýrinni fyrir innan bæinn. Það voru hafðar sterkar gætur á henni. En það dugði ekki til. Þótt útvarpið kæmi til okkar 1930, þá var þegar hér var komið sögu, haldið þeim góða sið, að lesa húslestra á heimil- inu. Að vetrinum var lesið á hverjum degi og allir Passíu- sálmarnir vitanlega sungnir á föstunni, en að sumrinu var að- eins dregið úr guðrækninni, svona um hábjargræðistímann og sláttinn og látið duga að lesa á sunnudögum. En þá var líka sunginn sálmur fyrir og eftir hugvekjuna. Nú var sunnudagur og hús- lestur lesinn. Einhvernveginn fór svo, að Bubba slapp út undir lestrinum og var þá auðvitað enginn á ferli útivið. Allir voru viðstaddir guðsorðið. Undir seinni sálminum fóru að berast torkennileg hljóð inn um gluggann. Það voru hænsnin sem urðu vitni að harmleiknum sem nú fór fram, og urðu tryllt af hræðslu og flögruðu um og skræktu ákaflega. Einhver leit út. Helv... hundurinn, kallaði sá hinn sami, upp úr miðjum sálmasöngnum, spratt á fætur, þeytti frá sér sálmabókinni og ruddist út. Allir hættu að syngja. Hvað gengur á? hváði faðir minn óá- nægður á svip yfir þessari ó- væntu truflun á svo guðræknis- legri stund. En svarið lét ekki á sér standa. Takiði hundfjand- ann, hann er orðinn vitlaus, var kallað að utan. Allir þustu út. Sálmasöngnum lauk í miðju versi. En hve hryggileg sjón blasti þar ekki við. Bubba hafði kom- ist inn í búið til kanínanna og var búin að drepa alla ungana fjóra og hlaða þeim í köst. Nú var hún að reyna að ná í stóru dýrin sem kúrðu titrandi af hræðslu inni í einum kassanum. Hún var orðin svo æst af dráps- fýsn að það var varla hægt að halda henni. Allt fólkið öskraði á hundinn. Hann var skammaður og sneyptur af öllum. Og að lok- um, til þess að gera henni eftir- minnilegt, að hún hefði hagað sér illa var hún hirt með því að kasta henni út í bæjarlækinn og látin skríða hjálparlaust upp úr. Þá loks rann af henni æðið og hún skreið í skotið sitt afar sneypuleg.. Fólkið fór að smátínast í bæ- inn og margir enn í æstu skapi. Ennþá heyrðist hundinum svei- að. Við Vikar urðum tvö eftir úti á hlaðinu. Sorg okkar var stærri en tárum tæki. Við tókum litlu vesalings vinina okkar upp og lögðum þá í síðasta sinn undir vanga okkar. Síðan tókum við þeim gröf undir fjósveggnum og þökktum veggina með sól- eyjum, fíflum og hrafnaklukk- um. Þarna lögðum við blessaða ungana okkar hlið við hlið og hvolfdum brotinni netakúlu yf- ir þá svo að moldin skyldi ekki óhreinka mjúku feldina þeirra. Þá var gröfin moldu orpin og kross gerður yfir. Að sjálfsögðu kunnum við ekki, svo ung sem við vorum, viðeigandi útfarar- sálma. En okkur fannst hæfa stundinni að syngja eitthvað um dauðann og við brugðum á það ráð af hjartans einlægni að syn- gja: „Hann Árni er látinn í Leiru.“ Það kunnum við bæði. Við kyrjuðum bæði erindin þarna í kvöldblíðunni, hágrát- andi og af barnslegri einlægni. Síðan fórum við með blessun- arorðin upphátt. Ég hefi aldrei komist nær Guði mínum en á þessari stundu, þegar ég bað fyrir dánu kanínuungunum, sáluhjálp þeirra og himnaríkisvist. Og ég trúi því, að hann hafi sent engil sinn til að hugga hrelld hjörtu okkar frændsystkinanna þetta kvöld og þerra tár okkar. Svo mjög hægðist okkur í sinni eftir athöfnina. Það er af kanínuræktun bræðra minna að segja, að hún fór fljótlega út um þúfur og eft- irtekjurnar urðu minni en efni stóðu til. En þar af er önnur saga. M.Th. HRAÐFRYSTIHUS PA TREKSFJARÐAR HF. PATREKSFIRÐI Óskum starfsfólki okkar og viðskiptamönnum gleðilegra jóla, árs og friðar, og þökkum jafnframt samstarf og viðskipti á líðandi ári. HRAÐFRYSTIHUS PATREKSFJARÐAR HF.

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.