Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1986, Síða 7

Ísfirðingur - 15.12.1986, Síða 7
ÍSFIRÐINGUR 7 Gunnar Sveinsson: Ávarp átvöhundruð ára afmælí Isafjarðar Góðir Isfirðingar og aðrir hátíðargestir: Það er mér mikil ánægja að vera hér meðal ykkar i dag á þessum hátíðisdegi þar sem haldið er upp á 200 ára afmæli Isafjarðar, og um leið að flytja ykkur kveðjur og árnaðaróskir Sambands ísl. samvinnufélaga og samvinnuhreyfingarinnar í heild á þessum merku tíma- mótum. Eins og ykkur er kunnugt eru það fleiri en ísfirðingar sem halda upp á afmæli í dag, þar á meðal íbúarnir í okkar ágætu höfuðborg, Reykjavik. Þegar á- kveðið var að halda svo mynd- arlega upp á afmæli hennar, var þess farið á leit við Sambandið og samvinnuhreyfinguna í Reykjavík að hún legði fram einhvern skerf til gjafar til Reykjavíkurborgar í tilefni af- mælisins, er varið skyldi til trjá- ræktar og fegrunar. Stjórn sam- bandsins taldi slíkt sjálfsagt, en jafnframt jafn eðlilegt að af- henda þeim kaupstöðum úti á landi er héldu upp á afmæli sitt á sama tíma einhverja gjöf í sama tilgangi. Og því er ég hér kominn til að afhenda þessa gjöf til ísafjarðarkaupstaðar. Á það má benda að íslensk samvinnuhreyfing á hér á ísa- Gunnar Sveinsson í ræðustóli á Silfurtorgi 17. ágúst 1986. Ferskfiskútflutnincrur Önnumst útflutning á ferskum fiski í gámun. Eftir að hafa haft forystu um uppbyggingu á ferskfiskútflutningi til Frakklands, höfum við nú hafið tilraunir með sölu til Spánar. Við leitum allra leiða til að halda innlendum og erlendum sölu- kostnaði niðri. Sandfell hf. sér um og semur um fjármögnun á fiskkössum og fiskikerjum. Erum í stöðugu sambandi við stærstu ferskfiskmarkaði Evrópu. Leitið upplýsinga. Hafið samband við Ólaf eða Gísla Jón í síma 4443. Eflum vestfirzkan útflutning. Ái\ ÍSFANG ÚTFLUTNINGUR SJÁVARAFURÐA SUÐURGATA 400 ÍSAFJÖRÐUR PÓSTHÓLF 111 SÍMAR: 94-4443 & 94-3500 TELEX: 2061 SANDIS IS TELEFAX: 94-4468 firði, okkar 200 ára gamla bæ, sterkar minningar sem spanna nærri 100 ára tímabil, eða frá 1887 þegar Skúli Thoroddsen ásamt bændum við Djúp stofn- aði Kaupfélag ísfirðinga hið eldra. I stjóm með honum voru þeir séra Sigurður Stefánsson í Vigur og Gunnar Halldórsson í Skálavík þingmenn kjördæmis- ins. Og það er gaman að rifja upp hverjir aðrir stóðu að þessari félagsstofnun sem var mjög merk á þessum tíma. En það voru þeir Guðmundur Oddsson á Hafrafelli og Guðmundur Sveinsson í Hnífsdal, og hafa þeir ásamt Skúla sýslumanni verið fulltrúar þess svæðis sem nú er ísafjörður. Einnig stóðu að stofnuninni Jakob í Ögri, Jón Einarsson á Garðsstöðum, Magnús Bárðar- son í Kálfavík, Jón Sigurðsson á Stað, Þórður Jónsson á Lauga- bóli, Guðmundur Bárðarson á Eyri og Guðmundur Rósin- karsson í Æðey. Á þessari upp- talningu sést að félagssvæðið hefur náð um alla sýsluna. Segja má að stofnun þessa félags þó það starfaði ekki lengi og forganga Skúla í verslunar- málum hafi haft geysileg áhrif í þá átt að létta því oki af ísfirð- ingum og öðrum landsmönn- um, sem danska einokunin var á þessum tíma. Núverandi kaupfélag var síðan stofnað 1920. Það er einnig gaman að rifja upp á þessum tímamótum, að líklega hefur hvergi hér á landi verið gerð stærri né raunhæfari tilraun til samvinnurekstrar í útgerð en hér á Isafirði, og á ég þar við stofnun og rekstur Samvinnufélags ísfirðinga, sem var burðarás í ísfirsku atvinnu- lífi um áratuga skeið. Og ég minnist sem drengur að hér sigldu fyrir landi 6 til 7 sam- vinnufélagsbátar er drógu björg í bú hins ísfirska samfélags. I hinni nærri 100 ára gömlu sögu samvinnustarfs á ísafirði í okkar 200 ára gamla bæ, hafa skipst á skin og skúrir, en saga bæjarins og samvinnuhreyfing- arinnar hafa oft verið mjög samtvinnaðar, þar sem forustu- mennirnir hafa verið þeir sömu, og verið hið leiðandi afl, bæði í bæjarlífinu og í samvinnu- rekstrinum. Minnist ég þar ým- issa góðra manna s.s. Finns Jónssonar og Hannibals Valdi- marssonar, að ógleymdum Katli Guðmundssyni kaupfé- lagsstjóra. En þetta átti ekki að vera söguyfirlit, tíminn leyfir ekki slíkt, heldur vil ég færa Isa- fjarðarkaupstað að gjöf frá samvinnuhreyfingunni, eitt hundrað þúsund krónur, er varið skal til trjáræktunar og fegrunar eða annarra verkefna í hliðstæðu augnamiði. Um leið vil ég endurtaka árnaðaróskir og kveðjur frá stjórn Sambands íslenskra sam- vinnufélaga og samvinnuhreyf- ingunni í heild til Isafjarðar- kaupstaðar og Isfirðinga og áma þeim heilla og farsældar á þessum merku tímamótum. Ég vil biðja forseta bæjar- stjórnar, Kristján Jónasson að koma hér og taka við þessari gíöf- Sparisjóður Bolungarvíkur Óskum starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra jóla, árs og friðar, og þökkum jafnframt samstarf og við- skipti á líðandi ár.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.