Ísfirðingur - 15.12.1986, Síða 12
12
ÍSFIRÐINGUR
Níðstöng? í fjöruborði á Ströndum.
uðu þau að gera eyjar á báða
vegu. Karl og kerling voru að
vestanverðu og sóttist þeim
verkið vel, eins og sjá má á hin-
um óteljandi Breiðafjarðareyj-
um. Ein kerling var að austan-
verðu og sóttist allt erfiðara,
enda Húnaflói dýpri og varð því
allt að blindskerjum hjá henni,
svo sem sjómenn þekkja vel.
Þegar dagaði urðu tröllin sein
fyrir, vestanskessurnar urðu að
þessum tveimur dröngum sem
hér eru, en hinni náði sólin við
Malarhorn, norðanvert við
Steingrímsfjörð. Rann henni í
skap, þegar sólin birtist og rak
skófluna í Hornið. Sprakk þá
frá eyja sú er Grímsey heitir, og
var það eina eyjan sem henni
tókst að mynda. Ekki tókst
tröllunum að skilja í milli, því
enn er um 10 km loftlína milli
Bitrufjarðar og Gilsfjarðar.
ÁFRAM VEGINN...
Á kirkjustaðnum Kollafjarð-
arnesi hafa búið ýmsir merkis-
menn, m.a. Einar Jónsson,
dannebrogsmaður. í minningu
hans var stofnað Lestrarfélag
Tröllatungu- og Fellssafnaða í
Strandasýslu árið 1845, þegar
Einar var til moldar borinn. Eru
til á Landsbókasafni fundar-
gerðir þessa félags og þykja
hinar merkilegustu.
Fleiri en ein vík á þessari leið
bera nafnið Fúlavík og er nafn-
ið dregið af þara sem þar safn-
ast og rotnar síðan svo fýluna
leggur um langan veg.
Við ökum fram hjá Hvalsá og
Steingrímsfjörður opnast með
Grímsey, er fyrr var getið, í
sjónmáli. Hún er nefnd eftir
Grími Ingjaldssyni, föður Sel-
Þóris. Kom Grímur þessi í
landaleit snemma á landnáms-
tíma. Ekki er búið í eyjunni, en
þar hefur oft verið haft fé, því
uppspretta er þar, sem aldrei
þomar.
í fyrsta sinn er ég ók þessa
leið vakti hún sérstaka athygli
fyrir það að hvergi hafði ég áður
séð jafn margar blindhæðir á
stuttri leið. Mikið hefur breyst
síðan, en þö má enn sjá veg-
spotta hér og hvar með þessum
einkennum. Það er að byrja að
bregða birtu, en veður er hið
fegursta svo ég er bjartsýnn með
ferðaveður á morgun. Á
Hólmavík kveð ég Hörð skóla-
stjóra og hans fólk og held för
minni áfram að Drangsnesi. Sú
ferð gengur vel, vegir hafa
þornað og batnað, en þó er lok-
uð leiðin um Selströnd vegna
aurbleytu svo ég fer Bjamar-
fjörðinn. Það er orðið dimmt,
svo lítt sér til kennileita. Þó
finnur vegfarandinn sterkt fyrir
þeim dulmögnum sem hér hafa
löngum þekkst og endurspegl-
ast í sögnum. í Selárdal er
Þjóðbrókargil, kennt við skess-
una Þjóðbrók sem af eru marg-
ar sagnir. í Hvannadal, þar fyrir
framan var einnig skessa sem
mörgum varð skeinuhætt. Sel-
kollusund og Selkollusteinn eru
kennd við einn óvættinn til og
þannig má áfram telja.
FUNDIR OG NEFNDIR
Ég kem til Jóhannesar Stef-
ánssonar, skólastjóra á Drangs-
nesi fyrir kvöldmat og hitti
skólanefndarmenn á eftir. Er-
indið er að gera sér grein fyrir
aðstöðunni og búnaði, með það
fyrir augum að gefa nefndar-
mönnum síðan skýrslu með
niðurstöðum og úrbótatillög-
um. Það fer vel á með okkur og
mér er meðal annars sýnt nýtt
samkomuhús, sem staðarbúar,
rúmlega hundrað manns eru að
byggja og hafa gert í því mikið
átak, þó enn vanti margt. Það er
komið miðnætti þegar ég kveð
og held að Klúkuskóla þar sem
ég gisti hjá Sigurði H. Þor-
steinssyni, skólastjóra en hann
er ekki síður þekktur fyrir störf
sín að frímerkjamálum, bæði
innanlands og utan. Á Klúku er
myndarlegt skólahús og félags-
heimili, sem rekið er sem hótel á
sumrin. Börnum hefur fækkað
þar og eru nú aðeins 12 í vetur.
Ég verð feginn hvíldinni og
sofna eins og steinn í einu
heimavistarherberginu, enda
fór þar vel um gestinn. Skóla-
nefndin mætir á staðinn um
tíuleytið morguninn eftir og
rætt er um margt sem gera þarf,
en tvennt ber þó hæst, búnings-
klefa þarf að reisa við sund-
laugina, enda þjónar hún fleiri
hreppum á sumrin og fá þarf
varmadælu til að unnt verði að
nýta laugarvatnið sem er allt
umhverfis til að hita upp húsin.
Þessar framkvæmdir virðast
báðar vera í sjónmáli áður en
langt um líður.
Ekki hefur alltaf verið jafn
hlýlegt skólahúsnæði á Klúku.
Um 1950 var farið að nota
skíðaskála sundfélagsins Grett-
is til kennslu og segir það
nokkuð um ástand hans, að af
gárungum var hann kallaður
„Hríðskjálf.“
Ég fer ásamt skólanefndinni í
vettvangsferð, litið er á sund-
laugina og byggingamar. Mikill
umgangur hagamúsa hefur
verið þarna í haust og telja
margir að viti á harðan vetur.
Við sjáum ummerki eftir eina í
íþróttasalnum og hafin er stór-
leit en án árangurs þar. Hins
vegar varð ein á vegi okkar utan
dyra og var gerð að henni aðför
mikil. Urðu þau ævilok mýslu
að plastpoki sem hafði að
geyma fundargerðabók skóla-
nefndar slóst í höfuð hennar og
þurfti hún ekki meira, enda
bæði þungar og margar áhyggj-
ur skólanefndar þar fyrir innan.
Ég þakka Sigurði og konu
hans, Torfhildi Steingrímsdótt-
ur frábærar móttökur, kveð
skólanefndarmenn og legg af
stað vestur um upp úr hádegi.
Svanshóll er litlu framar í
Bjarnarfirði en Klúka. Þar bjó
Svanur Bjarnarson sem var
föðurbróðir Hallgerðar lang-
brókar.
Hjá Svanshóli beygir vegur til
vinstri yfir Bjarnarfjarðará og
þar með er ég kominn á sama
veg og ekinn var hingað í gær.
Veður er gott og ferðin heim
gengur sem best verður á kosið,
Mér léttir óneitanlega þegar
Steingrímsfjarðarheiðin er að
baki, þar þekki ég að á skammri
stund getur skipast veður í lofti.
Heimkoma seinni part dags,
þessi ferðin hefur gengið sam-
kvæmt áætlun og verið bæði
fróðleg og gagnleg. Hundurinn
minn ásamt öðrum heimilis-
mönnum fagnar komu minni.
Það er að draga í loft og byrja að
snjóa. Nú er okkur rétt sama.
Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla, árs og friðar,
og þökkum jafnframt samstarf og viðskipti
á líðandi ári.
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Óskum starfsfólM okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
með þökkum fyrir samstarf og viðskipti
á árinu sem er að liða.
Hljómtorg
Aðalstræti 27, simi 94-3072
Gleðileg jól,
farsœlt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.