Ísfirðingur - 15.12.1986, Qupperneq 19
ÍSFIRÐINGUR
19
reykingar á samkomum. Auk
annars er erfiðara að tala lengi í
tóbaksreyk en hreinu lofti.
Annars er þetta myndarmaður,
en býr einn á sinni jörð. Það
þótti Pétri Sigurðssyni átakan-
legt þegar honum varð jafn-
framt hugsað til þess, að í
Reykjavík eru þrjár þúsundir
kvenna umfram karlmenn.
Samkoman í Syðri-Görðum
var ekki fjölmenn. Veður var
ekki vel gott, hríðarkóf og kalsi
og svo voru einhverjir, sem vit-
að var um að sváfu eftir spila-
nótt. Þarna er dálítið um spila-
menn og þó miklu minna en í
Borgarfirðinum, sögðu Kol-
hreppingar. Borgfirðingar hafa
fasta spilaklúbba og spila
lomber upp á peninga. Það er
sagt að einn bóndi þar hafi tap-
að fullorðnu nauti i spilum einn
veturinn.
Lengi þurftum við Kristján
að bíða í Syðri-Görðum eftir
Sveinbirni. Þarna voru komnir
fjórir hreppsnefndarmenn og
þeir þurftu að tala saman. Til er
í sveitinni bær, þar sem búa
bræður tveir og kom öllum
saman um að þeir hefðu of lítið
fóður fyrir skepnur sínar. Einn
hreppsnefndarmaður vildi nú
skylda þá bræður til að fá fóð-
urbæti og fara að gefa hann en
hinir sögðu að það þýddi ekki.
Úr því hreppsnefndin mætti
ekki skera bræðurna af væri
ekki annað að gera en láta þá
sóðast áfram í þrot og taka svo
skepnumar af þeim og það væri
hægt. Fóðurbæti hefðu þeir
ekki neitt með að gera.
Um kvöldið var ég látinn lesa
fræði mín fyrir heimafólk á
Snorrastöðum.
Svo var það þá fimmtudagur.
Klukkan tæplega 11 lögðum við
Kristján af stað út yfir Eld-
borgarhraun, þar sem Grettir
elti Gísla. Enn er hraunið víða
kjarri vaxið og mætti þar vel fá
vönd á margan Gíslann. Við
Kristján gengum upp á Eld-
borg. Eldborg er gamall gígur í
miðju hrauninu. Hún er eins og
grautarskál, ég hugsa 50—70
metra djúp. Skálarbarmurinn
er þunnur eins og hesthryggur
eða vestfirsk fjallsegg. Dálítið
kjarr vex niðri í skálinni. Útsýni
er gott af Eldborg um sveitina
og suður Faxaflóa en nú var
ekki nógu bjart til að njóta þess.
Ungmennafélagið, sem heitir
Eldborg, ætlar að friða Eldborg
og umhverfi og gera fallegan
skemmtistað. Skógræktarstjóri
hefur lofað girðingu en óvissa er
um það, hvenær hún kemur.
Slíkar framkvæmdir vilja drag-
ast síðan Hákon fékk mæði-
veikina.
Áfram höldum við um hraun
og tjarnir uns við komum að
Haffjarðará, sem Gísli synti yfir
eftir að Grettir flengdi hann og
Thor Jensen keypti síðar og jók
mjög laxagengd í. Nú hefur hún
verið leigð Bretum í tvö sumur,
því að svo er kreppt að þeim
Thorsbræðrum að þeir fá ekki
að hafa hana að leikfangi.
Kristján bendir mér á fund-
arstaðinn í Eyjarhreppi, Dals-
mynni og snýr svo aftur en ég
lötra áfram veginn.
Það virðist e.t.v. dálítið skrít-
ið að finna þarna hrepp með
þessu nafni. En hann er kennd-
ur við Haffjarðarey, sem nú er
mjög brotin af sjó og slitin
sundur. Þar var áður kirkju-
garður, sem sjór hefur nú eytt
að verulegu leyti og þar var það
sem Vilhjálmur Stefánsson
tíndi hauskúpurnar og tenn-
urnar svo sem segir í Búnaðar-
ritinu. Eyjarhreppur er lítill,
fjórtán bæir. En þar eru nú samt
5 hjón nýgift og það er meira en
sumir stærri hreppar geta státað
af. Ólíkt er það hreppnum í
Miðfirði, þar sem 13 pipar-
sveinar voru búandi fyrir
tveimur árum.
Ég var á fundi í Dalsmynni í
litlu köldu húsi með góðum of-
ni. Fámennur var fundur sá eins
og vænta mátti í svo litlum
hreppi. Frá Dalsmynni fór ég út
að Hömluholti og hafði þar
næturstað. Þar búa systkini þrjú
Þórarinn, Gísli og Sólveig.
Móðir þeirra er systir Snorra-
staðabræðra svo að mér virtist
útlit fyrir að ég ætti ekki að
ganga úr ættinni. Það er nú víst
Þórarinn sem býr þama, form-
lega talað. Hann og Sólveig eru
ógift en Gísli er einn þeirra ný-'
giftu.
Eftir hádegi á föstudag fór ég
frá Hömluholti. Gísli reiddi mig
út yfir mýraflóann og svo eins
og vegurinn liggur út Mikla-
holtshrepp. Miklaholt er innst í
hreppnum. Þar var kirkjustaður
sveitarinnar. En þeim, sem ut-
arlega bjuggu þótti langt að
sækja kirkju inn í Miklaholt.
Aðrir vildu ekki færa hana.
Hinir ákváðu þá að byggja
kirkju, þar sem heitir á Fá-
skrúðarbakka og fengu leyfi
biskups til að flytja sóknar-
kirkjuna. Og nýja kirkjan var
byggð. En bóndinn í Miklaholti
vildi ekki missa kirkjuna sína og
keypti hana. Hún var gömul og
fúin og hann fékk hana fyrir
lítinn pening. Hann og næstu
nágrannar hans ætluðu að
byggja sér fríkirkju og náðu
samkomulagi við sóknarprest-
inn, sr. Þorstein Lúter í Söðuls-
holti, um að hann þjónaði frí-
kirkjusöfnuðinum. En þá kom
biskupinn til sögunnar, Jón
gamli Helgason, og stöðvaði
kirkjubygginguna. En bóndinn
í Miklaholti lét þó ekki skipa sér
að sækja kirkju að Fáskrúðar-
bakka. Hann flutti til Reykja-
víkur.
Gísli reiddi mig út að Fá-
skrúðarbakka. Þar er gamalt og
lélegt þinghús rétt hjá kirkjunni
og bænum, sem er nýlegur, ein
hæð með valmaþaki. Kirkjan er
snotur en engin tvö þessara
húsa snúa eins. Þama varð ekki
af fundi. Fundur hafði ein-
hverra ástæðna vegna ekki ver-
ið boðaður. Einn maður kom
þó. Hann hafði af tilviljun frétt
um ferð mína. Hann heitir Sig-
fús og er vetrarmaður Guð-
bjarts í Hjarðarfelli. Ég held að
hann hafi verið sendur eftir
mér. Ég fór með honum að
Hjarðarfelli.
Bærinn Fáskrúðarbakki
dregur nafn af á, sem heitir Fá-
skrúð. Mér komu í hug getgátur
um upphaf að nafni Fáskrúðs-
fjarðar og hugsaði sem svo.
Vildu nú ekki fræðimenn á borð
við suma blaðamennina álykta
að áin hefði í fyrstu heitið Frá-
skrúð þar sem hún rennur
heldur í vestur en eyjan Skrúður
er fyrir austan land?
Rétt fyrir utan Fáskrúð er
holtið, þar sem Víga-Styr hafði
vetursetu dauður. Snjóléttara er
nú en þá var.
Guðbjartur í Hjarðarfelli tók
mér hið besta. Hann þekkti mig
þá þegar til kom. Einn af
flokksþinginu. Alexander heitir
sonur hans, sem býr í túnjaðr-
inum, hefur byggt þar nýbýli.
Þeir feðgar spjölluðu við mig
um kvöldið.
Helmingur fólksins í Mikla-
holtshreppi er yngra en 16 ára.
Þetta er sveit, sem lagt hefur
góðan skerf til löggæslu á ís-
landi, því að héðan er Sigurður
Magnússon yfirlögregluþjónn,
sem er yfirmaður rannsóknar-
lögreglunnar með Sveini Sæ-
mundssyni, og héðan eru þeir
Hallvarðssynir, Jón og Jónatan
og Einvarður. Héðan er líka
Jóhann læknir Sæmundsson.
Úr Staðarsveit er Oddný Sen,
en Kolhreppingar þykjast eiga
hlutdeild í Kristmanni
Guðmundssyni. Hann ólst þar
upp en annars er hann fæddur í
Borgarfirði. Afi hans hét Björn
og bjó á Þverfelli í Lundar-
reykjadal og segja sumir, að
hann sé uppistaða í Birni á
Reyðarfelli hjá Jóni Magnús-
syni. Dóttir Bjöms átti Krist-
mann í lausaleik.
Laugardagsmorguninn reiðir
Alexander mig út í Staðarsveit.
Þetta eru hrossasveitir og hér er
allmikið um reiðhesta. T.d. læt-
ur Alexander mig ríða ágætum
hesti jörpum, sem Gunnar
bróðir hans á.
Við ríðum út yfir Straum-
fjarðará. Það mætti nú ætla að
til væri Straumfjörður og Haf-
fjörður en það er þó varla. Ef til
vill hafa þó verið þama ein-
hverjir vogar til forna, þó að
sjór og vindar hafi svo brotið
tangana á milli þeirra. Straum-
fjarðará hefur verið leigð Eng-
lendingum nokkur ár. Eg
minntist þess, að Þórunn ætlaði
að bíða eftir lávörðunum, sem
kæmu í ámar okkar og spurði
hvort stúlkunum litist ekki vel á
hina framandi veiðimenn. Ekki
bar á því, enda voru þetta
virðulegir menn og höfðu konur
sínar með. Þeir fengu sér mat-
reiðslukonu í Reykjavík, komu
henni fyrir á einum bænum
þarna og voru þar í mötuneyti.
Einu sinni átti að bera á borð
fyrir túlka herramannanna með
þeim, en þeir tóku diska túlk-
anna og báru þá burtu með
sínum herramannlega virðu-
leik. Þessir göfugu menn hafa
töluvert af matföngum með sér,
svo sem ávexti, og þess vegna er
ódýrara að ala þá, þó að vandi
sé að gera þeim til hæfis. íbúð
hafa þeir haft í húsi sem heitir
Vegamót og er þar, sem Stykk-
ishólmsvegur liggur upp í Kerl-
ingarskarð.
Klukkan 9 árdegis fara Eng-
lendingarnir til árinnar að
veiða. Áður drekka þeir te og
þeir hafa eitthvað með sér á
flöskum og smurt brauð. Að
öðru leyti eru þeir matarlausir
þangað til þeir koma heim kl. 7.
Veiðina stunda þeir jafnt
hversu sem viðrar. Þeir hafa
haft hesta á leigu en ríða aldrei
nema fetið og þykir Islending-
um það ekki líkt hestamönnum.
Einu sinni var þó brugðið út-af
þessu reiðlagi. Þá voru vega-
vinnumenn komnir á bíl að gera
við veginn hjá brúnni á
Straumfjarðará en þar er besta
stangarfljótið. Húsbóndinn á
Vegamótum sá að Bretarnir
voru allir komnir út á dyraþrep,
karlar og konur, og var þar tal-
að hátt, en hann skildi ekki mál
þeirra. Svo hljóp sá stærsti til og
greip einn af hestum þeirra og
snaraðist á bak. Maðurinn var
svo stór að hann næstum því
dró fætuma. En svona sprett-
reið hinn göfugi lávarður ber-
bakt út að Straumfjarðará, en
hann lét ekki uppi neitt erindi
þegar þangað kom. Og hann
reið hægar heim aftur og var ó-
sköp fyrirferðarlítill. Það er tal-
ið að þeir hafi haldið að vega-
mennimir væru veiðiþjófar. Og
veiðiþjófar hefðu fengið að vita
af Bretanum.
Alexander reiddi mig að
Furubrekku í Staðarsveit. En
það var eins hér og í Mikla-
holtshreppi. Enginn fundur
boðaður. Ég hélt gangandi á-
fram út í sveitina og hugsaði um
það, hvort að bæjarnafninu
væri nú treystandi og óhætt að
trúa því, að þarna hefði vaxið
fura. Óx ösp á Espihóli eða
askur í Eskiholti? Má treysta
nöfnunum til þess? Ég geng
framhjá Staðarstað. Þar var
prestur Kjartan Kjartansson,
sem eitt sinn var á Stað í
Grunnavík. Hann ætlaði að
verka vothey í mógröf niður í
mýri en það vildi ekki lánast. Ég
geng við í Hofgörðum þar sem
samkomuhúsið er, lítið kríli og
ofnlaust og fæ að vita að þar
hefur enginn fundur verið boð-
aður. Staðarsveit er löng. Það er
ekki minna en 5 stunda gangur
eftir henni endilangri. Þó eru
ekki nema liðlega 40 heimili og
þó eru bæði bæir uppi við fjöll
og niður við sjó. Landslag
minnir dálítið á Éyjafjallasveit
og þó eru fjöll hér smásmíði
miðað við Eyjafjöll. En þau eru
lítið sem ekkert skorin af dölum
og frá þeim liggur flatt undir-
lendi niður að jafnri strönd, al-
gerlega óskorinni af vogum og
fjörðum. Sumstaðar er undir-
lendið 15 km. á breidd. Svo er
hjá Hjarðarfelli. Þar eru fagrir
litir á lofti á morgnana þegar sól
rís yfir Skarðsheiði eða Borgar-
fjarðardölum. En Hjarðarfell er
nú raunar í Miklaholtshreppi.
Eftir Staðarsveit endilangri
liggur melhryggur eða holt, sem
við myndum nefna, og er e.t.v.
gamall sjávarkambur. Víða eru
vötn og tjamir neðst í mýrafló-
anum ofan til'við kambinn og er
það sveitarprýði og veiðivötn.
Ég held út að Vatnsholti, en
þar hef ég frétt að Þórunn
frænka mín frá Þorfinnsstöðum
sé stödd við kennslu. Svo reyn-
ist vera og þar sit ég í góðu yfir-
læti um kvöldið og nóttina. Um
morguninn drekk ég mjólk og et
brauð og pönnukökur og geng
svo úteftir. Ég kem við á Búð-
um, sem eru símstöð og fæ að
tala þaðan við Amarstapa. Þar
er við símann kvenmaður, sem
heitir Kristín og segir mér að
formaður U.M.F. Trausta í
Breiðavíkurhreppi heiti Ásþór
og eigi heima á Hnausum en
ekki vissi hún á hvaða tíma
hann hefði boðað fund. Þetta
símtal fékk ég ókeypis. Ég
hafna öllum veitingum á Búð-
um og legg af stað í hraunið.
Þarna fyrir ofan hraunið er
lítill bær, sem heitir Öxl. Ef ég
man rétt er það Öxl sú sem
Björn bjó í og þá ætti hún að
teljast til sögustaða. Það er
þriggja tíma leið frá Búðum að
Arnarstapa. Ég geng um á
Hnausum en Ásþór er þá farinn
úteftir. En þegar ég á eftir svo
sem 15 mínútna gang mætir
hann mér, því að hann hefur
gengið inn á við aftur með
ferðamanni, sem ætlar inn að
Búðum. Við fylgjumst svo út-
eftir og Ásþór segir mér frá vik-
urnámunni. Vikurinn er tekinn
uppi við jökulrönd og látinn í
læk, sem fleytir honum niður að
hrauninu. Þar er lækurinn tek-
inn í trérennu, því að hraunið
heldur ekki vatni, og áfram er
vikrinum fleytt að litlum skúr,
sem er spottakorn fyrir ofan
Stapabæi. Þar er kvörn sem
malar vikurinn og svo er malaði
vikurinn látinn skolast eftir tré-
rennu á háum fótum niður á
sjávarbakka. Þar er hlaðinn
torfgarður allmikill og fyrir of-
an hann er vikursandurinn
geymdur. Margir hliðarstokkar
eru frá rennunni, svo að vatnið
getur skilað sandinum víðsveg-
ar um garðinn. Útskipunin á
vikrinum fer þannig fram að
vatn er leitt í lokaðar trérennur,
sem eru undir haugnum og svo
er smámsaman mokað ofan í
þær. Járnpípur taka við af tré-
rennunum og liggja niður í
fjöru en síðan taka við gúmmí-
slöngur miklar um borð í skipið
sem liggur skammt frá landi.
Tveir skipsfarmar af vikursandi
voru seldir til útlanda í haust, en
mest hefur hann verið notaður
innanlands. íbúar Breiðuvíkur-
Gleðileg jól,
farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin
á líðandi ári.
Verslun Greips Guðbjartssonar
Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla, árs og friðar.
Þökkum samstarf og viðskipti
á líðandi ári.
Trésmíðaverkstæðið Hefill hfFlateyri