Monitor - 12.08.2010, Page 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Myndir/Ernir
Gæjaleg tíska
fyrir skólann
Fótboltastúlkan Hanna María
kíkti við á Monitorstaði fyrr
í vikunni. Fer nú haustið
að skella á og ekki seinna
vænna að fara að huga að
skólafatnaði og kíktum
við því á úrvalið í
Sautján.
Morissette
hrærir í barn
Kanadíska söngkonan Alanis
Morissette hefur látið lítið fyrir
sér fara síðustu árin en hún hefur
þó greinilega ekki setið auðum
höndum því nú hefur hún hrært í
eitt stykki barn, eða bumbubúa eins
og það er jafnan kallað á Barnalandi.
Barnið bjó hún til með rapp-
aranum Mario Treadway sem betur
er þekktur sem Souleye. Þau giftu
sig einmitt í vor en þá höfðu þau
verið að hittast í um átta mánuði.
Söngkonan greindi frá þunguninni
í tímaritinu US Weekly í lið þar
sem hún var beðin að nefna 25
hluti sem lesendur vissu ekki um
hana. Listann endaði hún á þeirri
staðreynd að hún gengi með barn.
Þetta er fyrsta barn Morissette
sem er 36 og jafnframt fyrsta
hjónaband hennar, en áður hafði
hún verið í sambandi við leikarann
Ryan Reynolds en hann er nú giftur
leikkonunni Scarlett Johanson.
Svaf oft hjá
karlmönnum
Leikarinn Tom Hardy, sem
lék meðal annars í myndinni
Inception, segist þó nokkrum
sinnum hafa prófað að sænga hjá
karlmanni þegar hann var yngri.
„Að sjálfsögðu hef ég prófað það,
ég er leikari!“ sagði hann í viðtali
við Now Magazine en í dag er hann
hamingjusamlega trúlofaður bresku
leikkonunni Charlotte Riley og á
tveggja ára son úr fyrra sambandi.
„Ég hef leikið mér með allt og
öllum. Ég elska form og líkama,“
hélt Hardy áfram. „Það er margt sem
maður fær úr sambandi við aðra
karlmenn, ekki síst samkynhneigða,
sem ég þarfnast í mínu lífi. En nú
á seinni árum er það ekki nóg fyrir
mig.“
HANNA MARÍA
JÓHANNSDÓTTIR
02.11.92
Nemi í Menntaskólanum við Sund
Hjúskaparstaða?
Er í sambandi.
Fylgist þú með tísku?
Já, mamma er mikið inni í þessu svo
ég fylgist aðeins með. Við förum
stundum á bókakaffi og kíkjum í
tískublöðin.
Uppáhaldsflík?
Nýir hælaskór úr Kron Kron.
Klikkaðasta sem þú hefur gert?
Ég og vinkona mín ætluðum að ræna
annarri vinkonu úr íbúð sinni. Börðum
að gluggunum til að hræða hana en
kærastinn hljóp brjálaður út á eftir
okkur, þá héldu þau að ókunnugir
væru að ráðast inn.
Hvaða snyrtivörur notar þú?
Ég nota yfirleitt bara litað dagkrem
og maskara.
Fegrunarráð? Farða sig lítið,
hrikalega ljótt að vera of mikið
málaður.
Hvert langar þig til að ferðast?
Mig langar mikið að flytja til Boston
eftir stúdentinn, er mjög hrifin af
Boston.
Best við að vera í boltanum?
Gott að hreyfa sig mikið og fá útrás.
Hvað fer í taugarnar á þér?
Þegar fólk er frekt.
Uppáhaldsmatur?
Það er lasagnað hennar mömmu.
Draumamaðurinn í þremur orðum.
Hávaxinn, íþróttamaður, menntaður.
Hvað ætlar þú að eignast mörg
börn?
Þrú börn, tvær stelpur og einn strák.
Ef þú mættir vera hver sem er í einn
dag? Væri alveg til í að prófa að vera
Messi.
DELIPSCIOUS-
VARALITUR NR. 7:
SHEER RASPBERRY
Bleikur og búinn til úr
náttúruefnum sem má borða.
1.660 kr.
Body Shop
MOSS HERMANNAÚLPA
Gæjaleg stelpuúlpa fyrir skólann
í vetur, gott að festa kaup á einni
áður en kuldinn skellur á.
16.990 kr.
Sautján
MOSS SÍÐUR
HLÝRABOLUR
Gott að eiga einn svona
undir síðar peysur og
þunna boli.
3.990 kr.
Sautján
MOSS STUTT-
ERMABOLUR
Flott, vítt snið við
gallabuxur í skólann.
4.990 kr.
Sautján
MOSS
KLÚTUR
Snilldar klútur
sem hægt er að
vefja misþétt
um hálsinn.
Virkar vel sem
aukahlutur
innandyra en
gerir sitt úti í
kuldanum.
3.990 kr.
Sautján
DIESEL
GALLABUXUR
Hrikalega flott „cut“ á
þessum og liturinn kúl.
18.990 kr.
Sautján
BRONX
STÍGVÉL
Reimuðu stígvélin
verða vinsæl í vetur,
þægileg og smekkleg
til að traðka niður
slabbið.
17.990 kr.
GS skór
SWEET LEMON-
HÖRUNDSSKRÚBBKREM
Hressandi og ilmgóð byrjun á
hverjum degi.
2.390 kr.
Body Shop
SUPER VOLUME-
AUGNHÁRALITUR, SVARTUR
Þykkir augnhárin og lengir þau.
1.790 kr.
Body Shop
Eva Mendes og Thandie Newton í glæsilegum
Vivienne Westwood-kjól. Flottar konur í
flottum kjólum en Eva fær bikarinn fyrir betri
aukahluti. Skórnir og hálsmenið fella Thandie.
Emma Bunton mætti á verðlaunaafhendingu
í sama Alexander McQueen-kjól og Salma
Hayek mætti í til David Letterman. Salma tók
sig betur út og kjóllinn virðist of stór á Emmu.
Carmen Electra lítur nokkuð vel í þessum
Herve Ledger-kjól út og sigrar stríðið með 100
stigum á móti engu. Lil Kim gerir lítið úr ágætis
kjól með þessum ljótu eyrnalokkum og skóm.
Kristin Cavallari og Rihanna eru ólíkar týpur
og er undarlegt að sjá þær í sama kjólnum.
Þessi kjóll frá The Blondes á mun betur við stíl
Rihönnu og hreppir hún því stjörnustríðsgripinn.
HVOR KLÆDDIST FLÍKINNI BETUR?
Stjörnustríð