Monitor - 12.08.2010, Side 14

Monitor - 12.08.2010, Side 14
kvikmyndir Hæð: 173 sentimetrar. Besta hlutverk: Lisa Rowe í Girl, Interrupted. Hlutverkið sem tryggði henni Óskarsverðlaun. Skrýtin staðreynd: Á sex börn sem fædd eru á árunum 2001- 2008. Þrjú þeirra eru ættleidd. Eitruð tilvitnun: „Ég fíla allt. Strákalegar stelpur, stelpulega stráka, feita og granna. Sem er vandamál þegar ég er úti á götu.“ 1975Fæðist 4. júní í LosAngeles. 1982Leikur sjö áragömul í sinni fyrstu kvikmynd, Lookin‘ to Get Out, á móti föður sínum, Jon Voight. 1996Giftist leikaran-um Jonny Lee Miller, sem hún lék á móti í Hackers árið áður. Við athöfnina klæðist hún svörtum gúmmí- buxum og hvítri skyrtu sem hún skrifaði nafn brúðgumans á með blóði. 2000 Hlýtur Óskars- verðlaunin sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Girl, Interrupted. Í þakkar-ræðunni segir hún meðal annars: „Ég er svo ástfangin af bróður mínum núna.“ Seinna birtast myndir af þeim að kyssast. Angelina Jolie FERILLINN 14 Monitor FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010 Frumsýningar helgarinnar Salt Leikstjóri: Phillip Noyce Aðalhlutverk: Angelina Jolie, Liev Schreiber og Chiwetel Ejiofo. Lengd: 100 mínútur. Dómar: IMDB: 6,7 / Metacritic: 6,5 / Rotten Tomatoes: 58% Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára. Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó. CIA fulltrúinn Evelyn Salt (Jolie) sór eið heiðurs og hollustu til lands síns. En það mun reyna á það þegar rússneskur njósnari sakar hana um að vera svikari. Salt fer á flótta og þarf að nota alla sína hæfileika og reynslu til að forðast handtöku. Tilraunir Salt til að hreinsa mannorð sitt vekja upp efa um ætlanir hennar þegar leitin að sannleikanum nær hámarki. Popp- korn Talsmaður Tom Cruise blæs á sögusagnir þess efnis að David Beckham verði fengið lítið aukahlutverk í Mission Impossible 4 en sögusagnir þess efnis hafa verið í gangi. Cruise mun hafa verið spurður á blaðamannafundi hvort hann teldi að Beckham væri góður leikari og Cruise svaraði því til að það væri hann örugglega. Það sé þó ekkert til í því að hann sé að hvetja Beckham til að nýta sér Hollywood-lega ásýnd sína á hvíta tjaldinu. Það lítur út fyrir að hin 37 ára gamla leikkona Cameron Diaz finni fyrir masókistískum kenndum en hún segist hafa elskað að flagga marblettum og rispum sem hún státaði af eftir tökur á myndinni Knight And Day. Hún segist sérstaklega hafa haft gaman af því að fara marin og blá á Golden Globe verðlaunin sem afhent voru á meðan mesti hasarinn í tökum myndarinnar var í gangi. Jason Statham segir að jafnvel grjótharðir hasarnaglar eins og hann hafa mjúkar hliðar. „Við erum veikburða innra með okkur eins og allir aðrir, þótt við séum harðir á yfirborðinu,“ sagði hann í viðtali um sig og meðleikara sína í myndinni The Expendables, sem eiga það allir sameiginlegt að líta út fyrir að geta drepið með berum höndum. ER SALT Á LEIÐ Í GRAUTINN? The Last Airbender Leikstjóri: M. Night Shyamalan Aðalhlutverk: Jackson Rathbone, Nicola Peltz, Dev Patel og Noah Ringer. Lengd: 103 mínútur. Dómar: IMDB: 4,3 / Metacritic: 2,0 / Rotten Tomatoes: 8% Aldurstakmark: Leyfð öllum. Kvikmyndahús: Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó. Fjögur náttúruöfl, vatn, loft, eldur og jörð eru bundin sama örlagavef. Skyndilega lýsir þjóð eldsins yfir stríði á hendur hinum og grimmir eldar geisa í heila öld. Vonleysi ríkir þegar Aang (Ringer) uppgötvar að hann hefur vald til þess að stjórna öllum fjórum náttúruöflunum. Hann gengur í lið með systkinunum Sokka (Rathbone) og Katara (Peltz) og í sameiningu reyna þau að koma á jafnvægi í stríðshrjáðum heimi. SAFNAÐU ÁHEITUM hlaupasty rkur.is Skemmtileg leið til að safna áheitum Ef þú ætlar að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu getur þú búið til skemmtilegt myndband af þér á hlaupastyrkur.is. Myndbandið getur þú sent til vina og vandamanna með tölvupósti, á Facebook eða Twitter og vakið athygli á þinni áheitasöfnun. Skráðu þig strax til leiks og byrjaðu að safna áheitum. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 2000Giftist leikaranum BillyBob Thornton, sem hún lék á móti í Pushing Tin árið áður. Þau skilja árið 2003. 2002Ættleiðir sjö mánaða kambó- dískan dreng að nafni Maddox. Árið 2003 ættleiðir hún eþíópísku stúlkuna Zahara Marley og 2007 víetnamska drenginn Pax Thien. 2005Leikur á móti Brad Pittí Mr. & Mrs. Smith og takast með þeim ástir. Sama ár verður hún ólétt eftir Pitt og ári síðar eignast þau dótturina Shiloh Nouvel sem var tekin með keisaraskurði, í Namibíu. 2008Tilnefnd tilÓskarsverðlauna sem besta leikkona í aðalhlut- verki fyrir frammistöðu sína í Changeling.

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.