Monitor - 21.10.2010, Síða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
POPPPUNKTUR
fræga og fallega fólksins
1. Hver kom í staðinn fyrir Pete Best í Bítlunum?
2. Með hvaða hljómsveit er platan OK Computer?
3. Hvað heitir Bubbi Morthens í raun?
4. Hver þessara hljómsveita hefur ekki spilað á Íslandi
– Led Zeppelin, Muse, Queen eða Coldplay?
5. Með hvaða barnabandi er platan Gamalt og nýtt?
6. Á hvað spilar Þorvaldur Bjarni aðallega í Todmobile?
7. Í hvaða lagi fá Sigur Rós blóðnasir?
8. Hvers lensk er hljómsveitin Roxette?
9. Hver reif mynd af páfanum í sjónvarpinu 1992?
10. Hver heitir hinn í Wham!?
11. Hvaða ár var Nylon flokkurinn stofnaður?
12. Hvaða íslenski Idol-sigurvegari gerði plötuna Lalala?
Dóra María og Inga Lind mætast í annarri viðureign átta liða úrslita.
INGA LIND
1. Ég giska á Paul McCartney.
2. Radiohead.
3. Hann heitir Ásbjörn.
4. Queen.
5. Rokklingunum.
6. Er hann ekki á bassa?
7. Hoppípolla.
8. Þetta eru Svíar.
9. Giskum á Elton John.
10. Hann hét Andrew Ridgeley. Þetta
er síðan ég var átta ára.
11. 2004.
12. Var það ekki Hildur Vala?
DÓRA MARÍA
1. McCartney.
2. Radiohead.
3. Ásbjörn Morthens.
4. Queen.
5. Rokklingunum.
6. Var það píanó?
7. Hoppípolla.
8. Hún er kanadísk.
9. Það hefur verið Mick Jagger.
10. Ég verð að segja pass við
þessu.
11. 2004.
12. Snorri.
„Ég þakka
Svanhildi
og Loga“
„Ég er fyrst og fremst
óttaslegin því nú þarf ég að
halda áfram. Ég hef klárlega
komist áfram á heppni,
en það er ekki víst að
ég verði svona heppin
næst,“ sagði Inga Lind
Karlsdóttir hógvær
með eindæmum eftir
keppnina. Hún þakk-
aði sjónvarpsfólkinu
Loga Bergmann og
Svanhildi Hólm
sérstaklega.
M
yn
di
r/
Er
ni
r
Mæðgurnar Þórunn Stefánsdóttir og Hulda
Rúnarsdóttir handskreyta kort fyrir hin ýmsu
tilefni. Kortin eru hvert öðru skemmtilegra og
fást í hinum ýmsu blómabúðum, en textarnir
sem prýða þau koma skemmtilega á óvart. „Ég
byrjaði á þessu fyrir rúmum 15 árum,“ segir
Þórunn en þær mæðgur áttu saman blómabúð
í Grafarvoginum á þeim tíma. „Við hættum
með búðina í kringum aldamót en héldum
kortagerðinni áfram vegna vinsælda þeirra,“
segir Þórunn en fyrir henni er kortagerðin
tómstundagaman. „Ég er orðin 73 ára gömul
og hætt að vinna og þetta er sniðugt til að
dunda sér við.“
Kortin eru flest hjartalaga með hin ýmsu
skilaboð rituð framan á. Þau sem vekja mesta
athygli eru helst ástarkortin en í þeim flokki
má nefna kortin Besti bólfélaginn, Ég elska að
sofa hjá
þér og Þú
ert kropp-
ur. „Þetta
bara kemur
upp í hugann,“ segir
Þórunn en Hulda bætir við
að stundum þurfi þær að leita hugmynda.
„Stundum finnum við textana í einhverjum
bókum en yfirleitt er þetta bara upp úr okkur
sjálfum,“ segir Hulda sem er einnig mjög virk
í kortaskrifunum.
„Ömmu- og mömmukortin eru sívinsæl en
svo eru það auðvitað ástarkortin sem seljast
vel,“ segir Hulda en mæðgurnar eiga hrós
skilið fyrir frábært hugmyndaflug sitt við
textagerðina. „Kort sem grínast til dæmis
með að koma út úr skápnum slógu í gegn,“
segir Hulda en sum kort hafa auðvitað misst
marks. „Kort sem hafa tvíræða merkingu
með mögulegri dónalegri merkingu fara
strax,“ segir Hulda og þar er mamma hennar
sammála. „Dónalegustu kortin rjúka út eins
og heitar lummur,“ segir Þórunn.
Dónalegu
kortin
vinsælust
Þórunn Stefánsdóttir og Hulda Rúnars-
dóttir búa til öðruvísi tækifæriskort.
9
RÉTT
NÝJA POPPPUNKTSSPILIÐ ER
VÆNTANLEGT Í VERSLANIR Í NÓVEMBER.
„Hefði mátt giska betur“
„Ég veit ekkert um tónlist þannig að
þetta var
bara ágætt. Ég hefði kannski mátt g
iska betur,“
sagði knattspyrnukonan Dóra María
Lárusdóttir
og tók ósigrinum með sæmd. Hún v
onast
til að Inga Lind fari alla leið í
keppninni svo hann geti
sagst hafa tapað fyrir
þeim besta. „Ég óska
henni bara góðs
gengis í und-
anúrslitunum
og ekki síður á
stjórnlagaþing-
inu. Þetta er mín
kona núna,“ sagði
Dóra María.
„Þær
stóðu sig vel
stelpurnar en Inga
Lind aðeins betur, enda
aðeins eldri og það telur. Alveg
fáránlegt samt að þær hafi ekki
vitað að Pete Best var trommari
Bítlanna áður en Ringo Starr var
tekinn inn. Ég hélt nú að allir
væru með svona beisik á
hreinu!“
6
RÉTT
Réttsvör1.RingoStarr,2.Radiohead,3.ÁsbjörnMorthens,4.Queen,5.Rokklingunum,6.Gítar,7.Hoppípolla,8.Sænsk,9.SineadO’Connor,10.AndrewRidgeley,11.2004,12.HildurVala.
MÆÐGURNAR Í
KORTAVERKSMIÐJUNNI
Mynd/Golli
DÓRA MARÍA
KNATTSPYRNUHETJA
INGA LIND VERÐANDI
STJÓRNLAGAÞINGMAÐUR
Allt sem þú
átt á leiðinni
Fyrsta breiðskífa tónlistarmannsins
Friðriks Dórs er væntanleg til
landsins á mánudag og bíða hinir
fjölmörgu aðdáendur kyntröllsins
vafalaust spenntir eftir gripnum.
„Þetta er geðveik plata,“ sagði
Friðrik Dór er Monitor náði tali af
honum í ræktinni en hann fær til
liðs við sig stjörnur á borð við Blaz
Roca, Steinda Jr. og Ásgeir Orra
Ásgeirsson á plötunni. Einnig er
einn smellur á lagalistanum með
Friðriki Dór og bróður hans Jóni
Ragnari Jónssyni sem er einmitt í
hljómsveitinni Jón Jónsson. „Ég hvet
ykkur til að kaupa plötuna, ekki
ræna henni á netinu,“ skrifar Friðrik
Dór til aðdáenda sinna á Facebook
síðu sinni í dag. „Það er svo miklu
nettara að eiga hana.“
Skinkujúllur
slá í gegn
„Það er staðreynd að strákar fíla
skinkur þó þeir geri grín að þeim,“
sagði Kristjana María Ásbjörns-
dóttir er Monitor náði tali af henni.
Kristjana og Erna Dís Eriksdóttir,
sem saman kalla sig Minore, settu
inn tónlistarmyndbandið Kvenna-
bósi á YouTube þar sem stelpurnar
sungu um júllur og fleira. „Þetta var
bara djók í fyrstu en samt viljum
við sýna fram á að skinkur eru bara
venjulegt fólk,“ segir Kidda og bætir
við að skinkur eigi undir högg að
sækja í samfélaginu. „Stelpur gera
sig að skinkum til að heilla stráka og
svo er gert grín að þeim.“ Von er á
fleiri myndböndum frá þeim Kiddu
og Ernu en Kvennabósi hefur nú
þegar fengið um 35 þúsund áhorf á
rúmri viku.