Monitor - 21.10.2010, Blaðsíða 7

Monitor - 21.10.2010, Blaðsíða 7
7FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Monitor Tískuvikan í París EGF BIOeffectTM húðdroparnir er íslenskt fyrirbæri og byltingarkennd nýjung á snyrtivörumarkaði og greinilega það sem virkar. Þessir dropar eru þróaðir á grunni vísindarannsókna á líffræði húðarinnar. Droparnir eiga að sporna gegn öldrun húðarinnar og stuðla að endurnýjun húðfrumna, rakagefandi, gera hana mjúka, stinnari og frískari. Samkvæmt reynslusögum hafa droparnir virkað á mikinn þurrk í húðinni, þurra og sprungna hæla, exem í andliti og á líkama og hrukkur. „Salan á BIOeffect™ EGF húðdropunum hefur verið hreint ævintýri frá því þeir komu á markað í vor. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og er fyrst og fremst að þakka virkni húðdropanna og góðri upplifun fólks á þeim. Sala á vörunni erlendis er nú þegar byrjuð og hefur farið vel af stað, t.d. í Danmörku, Bretlandi og Póllandi, og við erum að vinna í markaðssetningu á húðdropunum um allan heim í samstarfi við erlenda dreifingaraðila,“ segir Brynja Magnúsdóttir, sölustjóri Sif cosmetics. Droparnir hafa slegið heldur betur í gegn. Þeir fást meðal annars í Hagkaup, Lyfju, Debenhams, Fríhöfninni, Reykjavíkur apóteki og á helstu snyrtistofunum. EGF húðdroparnir eru undraverk Alexander Kirchner 24 ára, módel og barþjónn. Hvar verslar þú fötin þín? Þar sem það hentar hverju sinni, ef það er eitthvað sem kallar á mig. Hvaða litum klæðist þú helst? Ég klæðist yfirleitt svörtu en auðvitað í bland við djarfari liti. Hvað ertu að gera í lífinu um þessar mundir? Ég er minn eigin herra. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Members only jakkinn minn, hann er svartur og hentar við öll tækifæri. Fer með mér hvert sem er. Hvar finnst þér best að vera? Einhvers staðar í trúnaði á góðu spjalli. Hvaða lag geturðu spilað aftur og aftur? Burial – Archangel. Hugtakið tíska? Hræðilegt hugtak. Þetta er spurning um að vera samkvæmur sjálfum sér. Dekkri litir einkenndu Fashion Week í París. Metal og detailar voru einnig áberandi hjá hönnuðum eins og Balmain og Lanvin. Glæsileiki á hönnun John Galliano hefur eflaust ekki farið framhjá neinum og hefur ákveðinn barrokk fílingur gripið um sig. Viktor&Rolf blönduðu saman skemmtilegum og djörfum litum sem kom mjög vel út á einföldum og beinum sniðum. Næsta sumar verður greinilega skemmtileg blanda. Alexander klæðist: 66° Norður peysa 16.500 kr. Dickies buxur 11.500 kr. 66° Norður fóðraður jakki 36.000 kr. Dickies skór 15.800 kr. Alexander er sinn eigin herra Allt spurning um að njóta V IN N U F A T A V E R S L U N IN V ÍR ALEXANDER FRÝS EKKI Í ÞESSU DRESSI FRÁ VÍR Þykkar og grófar augabrúnir er alveg málið í vetur ásamt látlausri og náttúrulegri förðun. Að sögn Elle tískublaðs hefur þetta sést hjá hönnuðum á borð við Chloé, Her- mès, Prada og Vivienne Westwood. Þar að auki er það merki um sterka og öfluga konu að vera með þykkar augabrúnir. Reyndu því frekar að halda í eðlilegu lögun þína á auga- brúnunum og notaðu augnhárablý- ant til að fylla inn í dreifð. Djarfar augabrúnir í vetur EKKI REYNA ÞETTA HEIMA HJÁ YKKUR

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.