Monitor - 21.10.2010, Síða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
stíllinn
„Ef þú ert í vafa, klæddu þig í rautt“ -Bill Blass.
Mikil stemning var á Airwaves hátíðinni síðustu helgi og fylltist bærinn af ólíku fólki frá öllum heimshornum. Stíllinn rölti
um miðbæinn og ákvað að fylgjast með hvernig fólk væri til fara. Flestir klæddu sig í eitthvað hentugt og einfalt, enda var
veðrið ekki upp á marga fiska. Þó leyndust nokkrir hressir einstaklingar inni á milli sem ákváðu að koma skemmtilega á óvart
og klæða sig áberandi. Það var gaman að sjá hversu mikil fjölbreytni var í fatavali hjá fólki og enginn var eins.
Yfirvaraskegg
og andlitsmálning
Götutískan á Airwaves var fjölbreytt og skemmtileg
KATRÍN ALDA Í EINVERU
VAR FLOTT Í TAUINU
ERLA HLÍN VAR SÆT OG
FLOTT KLÆDD Á AIRWAVES
SIGRÍÐUR HELGA VAR MEÐ
TÍSKUNA Á HREINU Í LOÐVESTI
KRULLURNAR OG GLERAUGUN
FARA EINSTAKLEGA VEL SAMAN
AIRWAVES ER TILEFNI FYRIR
HRESSA ANDLITSMÁLNINGU
HJÁ BÁÐUM KYNJUM
ARON BERGMANN ER
ALLTAF SMART
JOANA ROTTER FRÁ ÞÝSKALANDI
VAR FÍN MEÐ BLEIKA SLAUFU
ÁGÚSTA HERA, HÖNNUÐUR,
VAR GLÆSILEG AÐ VANDA
ÍSBIRNINUM VAR EKKI HEITT
INNI Á TÓNLEIKUNUM
SUMIR VORU DJARFARI
Í KLÆÐNAÐI EN AÐRIR
Það er alveg ljóst að næsta sumar verður djörfum litum
blandað saman eins og sést hjá Prabal Gurung og Miu Miu.
Einnig verður mikið um að ólíkum mynstrum verði mixað hjá
hönnuðum eins og Karen Walker. Hvítt og pastel, beinar línur
og einföld snið verða í hávegum höfð, samanber Calvin Klein,
og ekki verður farið sparlega með gegnsæ efni, þar sem þau
verða mikið notuð, til dæmis hjá Alexander Wang.
Tískuvikan
í New York