Monitor - 21.10.2010, Blaðsíða 12
kvikmyndir
Hæð: 168 sentímetrar.
Besta hlutverk: Rachel í
Friends. Munum við einhvern
tímann sjá hana öðruvísi en
sem Rachel?
Eitruð tilvitnun: „Það er engin
eftirsjá í lífinu, bara lexíur.“
Skrýtin staðreynd: Var
upphaflega beðin um að fara í
leikprufu fyrir Monicu í Friends.
1969Fæðist 11. febrúar íLos Angeles.
1993Leikur í sinnifyrstu kvikmynd,
hrollvekjunni Leprechaun. Áður
hafði hún leikið í nokkrum
sjónvarpsmyndum og aukahlut-
verk í þáttum.
1994Fyrsti Friends-þátturinn sýndur.
1996Leikur í gaman-myndinni She‘s
The One sem slær í gegn. Í
kjölfarið fylgja fjölmargar
rómantískar gamanmyndir.
2000Giftist leikaranumBrad Pitt sem
hún byrjar með árið 1998. Þau
skilja eftirminnilega árið 2005.
Eftir skilnaðinn byrjar hún með
leikaranum Vince Vaughn og
síðar með tónlistarmanninum
John Mayer.
2007Tímaritið Forbessegir hana 10.
ríkustu konu skemmtanaiðn-
aðarins.
Jennifer
Aniston
FERILLINN
12 Monitor FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
Frumsýningar
helgarinnar
Dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið er Pirates of the Caribbean: At World’s End frá árinu
2007. Hún kostaði rúmar 300 milljónir Bandaríkjadala, en halaði inn næstum milljarð.
INHALE FJALLAR
UM ERFIÐ MÁLEFNI Popp-
korn
Mark Zuckerberg hefur
loks tjáð sig um myndina The
Social Network
sem fjallar um
hann og upphaf
Facebook.
Segir hann að
aðstandendur
kvikmyndar-
innar eigi
greinilega bágt með að skilja
að hægt sé að skapa eitthvað
eingöngu ánægjunnar vegna
en ekki til að reyna að ganga í
augum á kvenfólki. Segir hann
þó klæðnað aðalleikarans vera
nákvæmlega eins og sinn eigin,
þar hafi tekist vel til.
Meryl Streep, sem
fer með hlutverk Margaret
Thatcher,
fyrrverandi
forsætisráð-
herra Bretlands,
í kvikmyndinni
The Iron Lady,
ætlar sér að
reyna að sýna
mýkri hlið á járnfrúnni en
almenningur hefur fram að
þessu átt að venjast. Mót-
leikarar hennar í myndinni
segja einnig að Streep sé með
einstaklega góðan breskan
hreim. Hún muni jafnvel slá út
hreim Renée Zellweger í Bridget
Jones myndunum.
Leikarinn James Franco
er nú talinn líklegur til að vera
tilnefndur
fyrir besta leik
í aðalhlutverki
á Óskarsverð-
laununum en
hann verður
verðlaunaður
fyrir leik sinn
í kvikmyndinni 127 Hours á
Santa Barbara kvikmyndahá-
tíðinni í janúar. Meðal annarra
sem hreppt hafa þau eftirsókn-
arverðu verðlaun eru Colin
Firth, Penelope Cruz, Helen
Mirren og Heath Ledger.
Leikkonan Goldie Hawn
segir að þegar dóttir hennar,
leikkonan Kate
Hudson, kom
í heiminn hafi
læknarnir óvart
sagt að hún
væri strákur.
Hawn brá í
brún, enda hafi
hún verið fullviss að hún gengi
með stelpu. Segist hún ekki
skilja hvert læknarnir hafi verið
að horfa þegar þeir hafi ruglast
svo hrapallega. Segir hún
einnig að Kate hafi átt að heita
Rebecca, en þegar ungabarnið
hafi sparkað hressilega í sig
hafi hún hugsað: Þetta er engin
Rebecca, þetta er Kate!
Inhale
Leikstjóri: Baltasar Kormákur.
Aðalhlutverk: Dermot Mulroney,
Diane Kruger, Sam Shepard, Rosanna
Arquette og Vincent Perez.
Lengd: 90 mínútur.
Dómar: Ekki komnir.
Aldurstakmark: 16 ára.
Kvikmyndahús: Smárabíó og
Háskólabíó.
Paul Stanton (Mulroney) er saksóknari sem fæst við
kynferðisglæpi. Líf átta ára dóttur hans hangir á
bláþræði, en hún þarf lífsnauðsynlega á nýjum lungum
að halda. Þegar Stanton og kona hans (Kruger) sjá fram
á að hún muni líklega ekki lifa af lengri bið grípa þau til
örþrifaráða.
Takers
Leikstjóri: John Luessenhop.
Aðalhlutverk: Chris Brown, Hayden
Christensen, Idris Elba, Matt Dillon og
Paul Walker.
Lengd: 107 mínútur.
Dómar: IMDB: 4,9 / Metacritic: 4,5 /
Rotten Tomatoes: 28%
Aldurstakmark: 16 ára.
Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó.
Hópur bankaræningja nýtur lífsins eftir vel heppnað
rán. Þegar fyrrum meðlimur hópsins sleppur úr fangelsi
sannfærir hann hina um að ræna brynvarinn bíl sem
flytur 20 milljónir Bandaríkjadala. Á hælum hópsins er
spilltur lögreglumaður sem er að bíða eftir að þeir sofni
á verðinum.
„Þegar ég fer á hnén, þá er það
ekki til þess að biðja.“
Madonna
The Switch
Leikstjóri: Josh Gordon og Will Speck.
Aðalhlutverk: Jason Bateman, Jennifer
Aniston, Jeff Goldblum og Patrick
Wilson.
Lengd: 101 mínútur.
Dómar: IMDB: 5,9 / Metacritic: 5,2 /
Rotten Tomatoes: 51%
Aldurstakmark: 12 ára.
Kvikmyndahús: Sambíóin.
Taugaveiklaður og óöruggur maður (Bateman) kemst
að því að besta vinkona hans (Aniston) vill eignast barn
með hjálp gervifrjóvgunar. Hann laumast til að skipta á
gjafasæðinu og sínu eigin og þarf að lifa með leyndar-
málinu um að hann sé faðir barnsins.
Konungsríki
uglanna 3D
Leikstjóri: Zack Snyder.
Leikraddir: Jim Sturgess, Geoffrey
Rush, Emily Barclay, Anthony LaPaglia,
David Wenham, Ryan Kwanten, Helen
Mirren, Sam Neill og Hugo Weving.
Lengd: 90 mínútur.
Dómar: IMDB: 7,2 / Metacritic: 5,3 / Rotten Tomatoes: 49%
Aldurstakmark: Leyfð öllum.
Kvikmyndahús: Sambíóin.
Teiknuð ævintýramynd sem segir frá ungu uglunni
Soren. Soren og bróðir hans lenda í klónum á ugluhópi
sem ætlar að þjálfa þá til að verða grimmar heruglur.
Bíómiðar og glaðningar í hverri viku