Monitor - 18.11.2010, Blaðsíða 3
Nýja platan frá
Agent Fresco ber nafnið A Long
Time Listening og er þar á ferðinni
tær snilld. Þessi dúndurþétta plata
inniheldur 17 lög
sem eru hvert
öðru betra.
Strákarnir
sýna á
henni og
sanna að
EP platan
A Lightbulb
Universe var
engin byrjenda-
heppni og þeir eru svo sannarlega
ein efnilegasta hljómsveit landsins.
Hljómsveitin
Ensími hefur ekki gefið
út plötu í heil átta
ár en nú er loks
komið að því
sem allir hafa
beðið eftir. Platan
Gæludýr er
fjórða breiðskífa
sveitarinnar og
fær hvorki meira né
minna en fimm stjörnur
í Mogganum. Þarf að segja meira?
Best Of Bang Gang
kom út á dögunum en þar fer Barði
yfir feril hljómsveitarinnar með
öllum helstu smellunum í gegnum
tíðina. Í pakkanum eru tvær plötur
en sú seinni inniheldur útgáfur
þekktra tónlistarmanna af lögum
Bang Gang og ber
þar helst að
nefna eitur-
svala útgáfu
Páls Óskars
af laginu
Sacred
Things.
Monitor hefur borist spurnir af því að nokkuð sérstakt„trend“ sé hægt og bítandi að breiðast út um landið.
Trendið sem um ræðir er að fara á klósettið ber að ofan.
Heimildarmaður Monitor, sem starfar í stórum banka í
höfuðborginni, segir að nær allir starfsmenn útibúsins
hafi tekið upp á þessari venju og geri þarfir sínar
aldrei öðruvísi en berir að ofan. Að sögn heimild-
armannsins gerir það, að vera ber að ofan, upplif-
unina „langtum ánægjulegri og veitir ómetanlega
frelsistilfinningu“.
Að fara ber að ofan á klósettið er eitthvaðsem má rekja til karaktersins George
Costanza úr gamanþáttunum Seinfeld. Í
klassískum þætti í sjöttu þáttaröð Seinfeld
komast Jerry og Kramer að því að George
fer aldrei á klósettið öðruvísi en ber að
ofan. Þetta kvaðst hann gera svo hann
væri ekki „innilokaður“ á meðan á
athöfninni stendur.
Monitor hvetur alla til þess að prófa þetta.Sendið okkur endilega línu á monitor@
monitor.is og segið okkur hvernig ykkur leið.
Monitor
mælir með
Í SPILARANN
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Gunnþórunn Jónsdóttir (gunnthorunn@monitor.is) Haukur Johnson (haukurjohnson@monitor.is) Sigyn Jónsdóttir
(sigyn@monitor.is) Auglýsingar: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Forsíða: Kristinn Ingvarsson Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvalds-
son Grafík: Elín Esther Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569-1136 Netfang: monitor@monitor.is
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2010 Monitor
Feitast í blaðinu
Inga Lind tekur
á Tobbu Marinós
í undanúrslitum
Popppunkts
fræga fólksins. 4
Ásdís Guðmunds-
dóttir rústar ekki
hótelherbergjum
þótt hún sé
Evrópumeistari.
Fræga fólkið missir
vitið. Hver man
ekki eftir því þegar
Britney
snoðaði sig?
10
Flick My Life er
fyndnasti vefur
landsins og hér er
það besta frá
upphafi. 16
Unnsteinn og Logi
eru nánir, nema
þegar þeir ætla að
drepa hvorn
annan. 12
8
Ásdís Rán buin
að dreyma í
2 nætur í röð
að ég sé ólétt,
wonder what
that means... :/
12. nóvember kl. 13:08
Vikan á...
Friðrik Dór
Jónsson
Góðir dómar
halda áfram að
birtast en Dr.
Gunni gefur Allt sem þú átt 4
stjörnur í Fréttatímanum í dag.
Platan fékk 4 og hálfa stjörnu í
Morgunblaðinu í gær. -Tryggið
ykkur eintak
12. nóvember kl. 18:34
Á Íslandi býr aðeins einn Náttmörður. Hér
á landi búa hins vegar 12 sem heita Xavier.
Sigmar
Vilhjálmsson
Mikid er erfitt af
vera Liverpool
adaandi! Madur
tarf tolinmaedi og umburdar-
lyndi! 13. nóvember kl. 9:52
Efst í huga Monitor
Ber að ofan á klósettið
MONITOR ER EKKI
SKÍTABLAÐ EN
ÞAÐ ER TILVALIÐ
Á KLÓSETTIÐ
„Viðbrögð fólks þegar það heyrir
nafnið eru yfirleitt þau að það
endurtekur það með þremur spurn-
ingamerkjum. Náttmörður???“ segir
Benjamín Náttmörður Árnason.
Fyrir rúmum fjórum árum komst
hann á forsíðu Morgunblaðsins
þegar hann fékk samþykki hjá
Mannanafnanefnd fyrir því að taka
upp nafnið Náttmörður. „Þetta
er bara skemmtileg nafnbót sem
ég nota þegar ég er í stuði,“ segir
Náttmörður en neitar því að hann
kynni sig með því nafni í dag. „Ekki
nema þegar ég er fullur eða eitthvað
slíkt.“
Náttmörður en ekki Xavier
Náttmörður er tónlistarmaður og
rekur uppruna nafnsins til tónleika-
ferðalags sem hann var á í Banda-
ríkjunum fyrir nokkrum árum.
„Við vorum alltaf að grínast með
hvað maður ætti að kalla sig þarna
úti því við vorum náttúrulega allir
Íslendingar. Þegar við komum til
Íslands ákváðum ég og gítarleikar-
inn að prófa að fá nöfn, sem okkur
hafði dottið í hug í Bandaríkjunum,
í gegn hjá Mannanafnanefnd. Ég
reyndi að fá nafnið Náttmörður og
hann reyndi að fá nafnið Xavier. Ég
fékk mitt í gegn en hann fékk ekki
sitt. Ég myndi ekkert vinna hann í
sjálfu sér nema ég myndi taka upp
nafnið, þannig að ég gerði það,“
segir Náttmörður og sér ekki eftir
neinu í dag.
Laug að blöðunum
Þegar Náttmörður birtist á
forsíðu Morgunblaðsins var haft
eftir honum að nafnið væri þannig
tilkomið að hann hafi verið á
tónleikaferðalagi og vaknað einn
morguninn í rútunni upp af mjög
slæmum draumi og sagt við félaga
sína: „Ég var með þennan rosalega
náttmörð!“ Í kjölfarið hafi félagar
hans farið að kalla hann Náttmörð
og því hafi hann viljað taka það
upp. „Þetta var eitthvað djók,“ játar
Náttmörður. „Ég laug öllu að öllum
sem spurðu mig. Ég vissi ekkert
hvað ég átti að segja, að ég hafi
verið í keppni við vin minn eða að
fíflast?“ segir hann og bætir við:
„Þetta er sennilega með ómerkilegri
fréttum sem hafa birst framan á
Morgunblaðinu.“
Benjamín Árnason tók upp nafnið Náttmörður fyrir fjórum árum.
Mynd/Árni Sæberg
Náttmörður
lifir enn
Vala Grand
JÁTS WOW
GET VERIÐ
STOLT AF
SJÁLFRUM
MÉR :þ
16. nóvember kl. 02:25
Gunnar Í
Krossinum
Þorsteinsson
Byrjar allt með
bænastund,
blessar Gunnar forða.
komir þú á Krossins fund,
kjötsúpu færðu að borða.
17. nóvember kl. 10:52
BENJAMÍN OG HELVÍTIS
DJASSARARNIR
Náttmörður er tónlistarmaður og er á
djassbraut í FÍH. Hann kemur fram undir
skírnarnafni sínu, Benjamín, og hljóm-
sveitin sem spilar með honum kallast
Helvítis djassararnir. Hann er um þessar
mundir að senda frá sér plötuna Over.
„Þetta er ekki alveg abstrakt verk, þetta
er melódískt og með textum sem skipta
máli,“ segir Náttmörður. Spurður um hvað
textarnir fjalla segir hann: „Mitt helsta
yrkisefni myndi ég segja að væri lífið.“
„TÆPU ári af býrókratískri bar-
áttu er lokið!“ sagði kampakátur
Náttmörður eftir að hann fékk
uppáskrifað leyfi fyrir nýja nafn-
inu sínu í dómsmálaráðuneytinu í
gær. „Ég var á tónleikaferð um
Bandaríkin síðasta sumar, og
vaknaði einn morguninn í rútunni
upp af mjög slæmum draumi. Ég
sagði við strákana: „Ég var með
þennan rosalega náttmörð!“ Strák-
arnir fóru að hlæja, en fóru svo að
kalla mig Náttmörð. Ég kunni
bara mjög vel við nafnið og vildi
taka það upp.“ Náttmörður heitir
hér eftir fullu nafni Benjamín
Náttmörður Árnason, en hann er
söngvari hljómsveitarinnar Man
Behind the Wheel og gítarleikari í
Flop House Palace. Hann sagði
fjölskylduna lítið kippa sér upp við
nýju nafngjöfina. „Þau spá nú bara
því að þetta eldist af mér, og ég
fari að vinna í fjölskyldufyrirtæk-
inu.“ Nú þegar hann sé búinn að fá
leyfið megi skíra hvern sem er
Náttmörð. „Ég vona bara að ég
sjái marga litla Náttmerði í fram-
tíðinni. Náttmörður lifir!“Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Martröðin á enda, Náttmörður lifir!
ÞAÐ ER EKKI ÖLL NÓTT
ÚTI ENN HJÁ NÁTTMERÐI
AF FORSÍÐU MORGUNBLAÐSINS
22. SEPTEMBER 2006
Í SPILARANN
Í SPILARANN