Monitor - 18.11.2010, Blaðsíða 22

Monitor - 18.11.2010, Blaðsíða 22
22 Monitor FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2010 Kvikmyndin Ég elska allt sem Paul Thomas Anderson hefur gert. Ég horfði nýlega á á Magnolia aftur og komst að því að það er hans besta mynd. Svo er líka fáránlegt að gæinn hafi bara verið 28 ára þegar hann gerði hana. Sjónvarpsþátturinn Eini þátturinn sem ég hef nennt að fylgjast með undanfarið er The Event. Hann fyllir upp í ákveðið 24-tómarúm, jafnvel þó það sé enginn Jack Bauer á svæðinu heldur bara eitthvað væmið par. Svarti forsetinn er samt á sínum stað, sem veitir ákveðið öryggi. Bókin Síðasta bók sem ég las var Votlendi eftir hina þýsku Carlottu Roche. Segir í stuttu máli frá 18 ára stelpu sem er á sjúkrahúsi eftir að hafa farið sér að voða við að raka á sér rassgatið. Frekar stefnulaus og hálf tilgangslaus saga en frásagnarstíllinn er oft leiftrandi. Platan Það eru fáar plöt- ur sem mér þykir jafn vænt um og I Can Hear the Heart Beating as One með Yo la tengo. Það er alltaf hægt að leita til hennar, hvort sem maður vill ljúfsárt melódrama eða graða partítónlist. Lætur mér líða vel. Vefsíðan Ég heimsæki enga síðu jafn oft og Flickmylife.com. Sú síða og Baggalútur.is eru eina brjóstsbirt- an í íslenskri samfélagsumræðu. Staðurinn Ósushi- lestin í Iðuhúsinu er minn uppáhalds staður og ef ég mætti velja væri ég þar öllum stundum. Ég veit ekki um betri byrjun á góðu kvöldi en að kíkja þangað og gúffa í mig nokkrum bitum og skola þeim niður með svalandi bjór/hvít- víni. Hljómar kannski væmið en mér er sama. Síðast en ekki síst » Steinþór Helgi, umboðsmaður Hjaltalín, fílar: LOKAPRÓFIÐ | 18. nóvember 2010 | skólinn

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.