Monitor - 18.11.2010, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2010
Nú er snjórinn farin
n að láta sjá sig og
bíða
margir spenntir efti
r að komast í fjöllin
. Þeir
sem þora hvorki á s
kíði né snjóbretti gæ
tu látið
sér nægja að sitja í
skálanum og fá sér
heitt
kakó eða skella sér
á gömlu góðu rassa
þotuna
til að taka þátt í gle
ðinni. Monitor
talaði við snjóbretta
snillingana
Hildi Sif og Hlyn H
elga um
bretti og bestu brek
kurnar.
Allir í
brekkurnar!
Best að renna sér í
miklum púðursnjó
Hlynur Helgi Hallgrímsson, 23 ára.
Hvenær byrjaðirðu að fara á snjóbretti? Þegar
ég var svona 18 eða 19 ára.
Hversu fær snjóbrettakappi ertu á skalanum
1-10? Ætli ég sé ekki svona 4.
Hvar finnst þér skemmtilegast að renna þér?
Ég hef aldrei farið á snjóbretti á Íslandi en ég
hef farið í Noregi, á Ítalíu og í Austurríki. Það
var skemmtilegast í Austurríki.
Af hverju? Það var mikið púður og besta
færið þar.
Kanntu einhver trikk? Nei, ég
get ekki sagt það. Ég kann
að reyna en þau hafa aldrei
heppnast.
Er þetta ekki bara
stórhættulegt? Nei, en þú
þarft samt að vera frekar
góður til að slasa þig ekki.
Hefurðu einhvern tímann slasað þig á
snjóbretti? Ekkert alvarlega. Bara einhverjir
marblettir hér og þar.
Kæmi til greina að skipta yfir í skíði? Alls ekki.
Ég æfði einu sinni skíði í hálft ár þegar ég var
tíu ára en snjóbrettin eru bara miklu skemmti-
legri. Þú ert miklu frjálsari í fjöllunum á bretti
en á skíðum.
Kann alveg
einhver trikk
Hildur Sif Jónsdóttir, 23 ára.
Hvenær byrjaðirðu að
fara á snjóbretti? Svona
12 eða 13 ára.
Hversu fær snjóbretta-
gella ertu á skalanum
1-10? Ég er alveg 7 eða 8.
Hvar finnst þér skemmti-
legast að renna þér? Á Ítalíu. Ég hef
farið nokkrum sinnum þangað. Hérna
heima er Hlíðarfjall best því þar eru
bestu brettabrekkurnar, góðar lyftur og
minnstu raðirnar.
Af hverju? Erlendis eru svæðin miklu
stærri, betri lyftur og lengri brekkur.
Maður er fljótur upp og lengi niður sem
er náttúrulega skemmtilegast.
Kanntu einhver trikk? Já, ég kann
alveg einhver trikk en engin til að tala
um kannski.
Er þetta ekki bara stórhættulegt? Ekki
ef maður passar sig vel.
Hefurðu einhvern tímann slasað þig á
snjóbretti? Nei, ég hef aldrei verið svo
óheppin.
Kæmi til greina að skipta yfir í skíði? Ég
var á skíðum áður og svo prófaði ég bretti
og það er miklu meira fjör. Það er miklu fleira
hægt að gera á bretti en skíðum.
Húfa
3.490 kr.
Brettaúlpa
39.990 kr.
Brettabuxur
26.990 kr.
Brettaskór
33.990 kr.
Undirpeysa
9.990 kr.
Brettaskór
27.990 kr.
Brettabuxur
23.990 kr.
Brettaúlpa
39.990 kr.
Undirpeysa
8.990 kr.
Húfa
3.490 kr.
HILDUR OG HLYNUR DRESSUÐU
SIG UPP Í INTERSPORT
FÖTIN ERU ÚR INTERSPORT
Mynd/Allan