Monitor - 18.11.2010, Side 19

Monitor - 18.11.2010, Side 19
19FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2010 Monitor Andinn í lampanum eða egypskt ilmvatns- glas? Kleópatra sjálf myndi líklega klæðast þessu á tímum Forn-Egypta. Ótrúlega einkennilegt outfit frá Manish Arora. Fæturnir eru líka eins og þeir séu gerðir úr postulíni – kannski á það að hjálpa til við að sjá fyrir sér ilmvatnsglasið? Stíllinn er mjög hrifinn af klassísku en sér- stöku Vivienne Westwood sem nær einhvern veginn alltaf að gera flíkurnar sínar tímalaus- ar. En þessi mussa frá Vivienne Westwood, sem lítur út eins og mannshjarta, er eins og risastór gardína sem hefur verið vafið utan um módelið í einum rykk. Nýlega sýndi Zac Posen þessa múnderingu á sýningu í París. Heildarútlitið frá honum bar frekar franskan blæ með sér en þetta dress minnir á gamaldags rykbursta, einmitt svona sem amma þín á heima hjá sér uppi í skáp og þú færð að láni ef þú ætlar að vera morðóð en lauslát þerna á hrekkjavökunni. Hver man ekki eftir The Skeleton Key með hinni íðilfögru Kate Hudson sem lét hugrökkum karlmönnum rísa hár en ekki hold? Giles Deacon kjóllinn hérna minnir svolítið á þá mynd sem fjallar einmitt um vúdú galdra. Kögurkjóllinn væri fallegur yfir svartan kjól en bleiki kjóllinn og strigaskórnir eru ekki málið. Runwaydulargervi Tískusýning Unglistar var haldin síðastliðinn laugardag í Tjarnarbíó en þar sýndu 33 nemendur fataiðn- deildar Tækniskólans flíkur sínar og fylgihluti sem þeir hafa unnið að hörðum höndum undanfarið og var Stíllinn var að sjálfsögðu á svæðinu. Unglist stóð fyrir ýmsum skemmti- legum viðburðum frá 5.-13. nóvem- ber og var þetta lokaviðburðurinn. Tískusýningin heppnaðist mjög vel og var hún fjölbreytt og skemmtileg. Skipuleggjendur sýningarinnar, sem gerðu hana svo glæsilega, voru Helga Jóakimsdóttir, María Nielsen, Björg Gunnarsdóttir og Elísabet Mar- en Guðjónsdóttir, en þær hafa verið að undirbúa sýninguna í allt haust. Hækkuðu standardinn „Við vorum ótrúlega ánægðar með þetta,“ sagði María. „Við erum ennþá á bleiku skýi yfir þessu og hvað þetta gekk smurt fyrir sig á sjálfan daginn.“ Sýningin var unnin í samstarfi við Hitt húsið, Tækni- skólann, Airbrush Make-up school, Elite Model Management, 15 módel frá þeim í bland við önnur módel. „Við lögðum mikinn metnað í að þetta yrði flott, við vildum hækka standardinn,“ sagði Helga. „Fólk var með fleiri innkomur en ella og við fórum í samstarf með mörgum hæfum aðilum. Það var enginn að draga neitt úr þessu, ég t.d. fann það á öllum að það voru allir til í gera þetta extra vel.“ Óvæntur Palli Coco Viktorsson var eini karlkyns hönnuðurinn en hann hefur hannað búninga fyrir Pál Óskar. Öll módelin hans voru með grímu með mynd af andliti Palla en í lok sýningarinnar, þegar allir hönnuðirnir gengu fram með módelum sínum, afhjúpaði módelið hans Coco andlit sitt og var þar sjálfur Páll Óskar, við mikinn fögnuð gesta. TEKIÐ AF INDESIGN.COM Tískusýningin í Tjarnarbíó var með eindæmum vel heppnuð Framtíðar- fatahönnuðir Íslands STOLTUR HÖNNUÐUR MEÐ MÓDELINU SÍNU COCO OG PALLI ERU GÓÐIR VINIR HÖNNUÐIRNIR GENGU FRAM MEÐ EITT MÓDEL MEÐ SÉR Í SINNI HÖNNUN HELGA, ELÍSABET, BJÖRG OG MARÍA ERU HÖRKUDUGLEGIR SKIPULEGGJENDUR. LENGST TIL VINSTRI ERU MYRRA OG SANDRA RUT, SEM HJÁLPUÐU VIÐ UNDIRBÚNING. TÖFF OG FRUMLEG HÖNNUN VAR Í FYRIR- RÚMI Á SÝNINGUNNI UNGIR HÖNNUÐIR LÉTU LJÓS SITT SKÍNA Myndir/Haraldur Guðjónsson SIXTIES SÆT OG SEIÐANDI ÞESSI VAR FLOTTUR Í TAUINU MJÖG ELEGANT DRESS FRUMLEGT OG FLOTT HÁLSMEN TÖFF HÁRBAND Á SÆTRI STELPU

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.