SunnudagsMogginn - 16.01.2011, Blaðsíða 35
16. janúar 2011 35
Sruli Recht og félagar eru á leiðinni til
Parísar á mánudaginn að sýna herralín-
una When Gravity Fails, sem saman-
stendur af 75 hlutum. Þetta er fyrsta
stóra herralína hönnuðarins en hingað
til hefur hann gert skólínu og síðan ein-
stakar vörur. Eftirvæntingin er því
mikil, bæði innanhúss og utan.
Athygli vekur að 98% línunnar eru
gerð úr íslensku efni. „Við eyddum síð-
asta ári í að temja efnið og gera það not-
hæft fyrir alþjóðamarkað. Við þurftum
að finna leið til að meðhöndla efnin,“
segir hönnuðurinn. „Eins og íslenski
lopinn, fólk vill ekki snerta hann.
Hrossaskinn, hreindýr, ég elska þessi
efni, Íslendingar elska þau, en útlend-
ingar ekki eins,“ segir hann.
Hönnun Sruli er einhvern veginn eins
langt frá einhvers konar yfir-
borðsmennsku og plastlífsstíl og hægt
er að komast, þarna eru engin gervi-
glansefni. Á hinn bóginn er hönnuður-
inn jafn langt frá „hefðbundinni“ ís-
lenskri hönnun úr náttúrulegum
efnum. Sruli umgengst náttúruefnin á
annan hátt en hefur lengst af tíðkast
hér, að minnsta kosti er hægt að segja
að hann sé framarlega í þeim hópi og
hann notar stóra leysigeislaskerann á
vinnustofunni mikið til að skera nátt-
úruefnin.
Einn skemmtilegur hlutur sem sjá
mátti á vinnustofunni var hrúga af töl-
um, sem gerðar voru úr þykkri hross-
húð og komu vel út, virkuðu nútíma-
legar og fornar allt í senn.
Ein af flíkunum sem Sruli sýnir í París
er yfirhöfn úr íslenskri lambsgæru. Hún
er af 27 andvana fæddum lömbum og
þremur fullvöxnum.
„Það er ekki auðvelt að selja þessa
hugmynd, flík úr andvana fæddum
lömbum. Þú verður að vera kominn á
vissan stað til að fólk samþykki þetta og
það þarf að setja þetta í rétt samhengi,“
segir Sruli en ljóst er að fáir eru betur til
þess fallnir að selja flíkur úr andvana
lömbum en maðurinn sem er með skó
úr hvalaforhúð til sölu.
Svo má líka benda á að þótt það sé
ekki huggulegt að hugsa til andvana
fæddra lamba, kemur það á móti að
önnur lömb eru ekki drepin sérstaklega
í þeirra stað í þeim tilgangi að gera flík-
ina. Svona lítil lömb eru líka eins og
gefur að skilja með sérstaklega mjúka
og þunna gæru.
Önnur flík sem á áreiðanlega eftir að
vekja mikla athygli í París er jakki sem
gerður er úr 23 svartfuglum og hrein-
dýraleðri. Jakkinn er stórglæsilegur og
fiðrið mjúkt, sem og leðrið. „Svo höfum
við verið að nota íslensku ullina í yf-
irhafnir og buxur úr flókaefni. Þetta
hefur verið langt ferli,“ segir Sruli.
Línan er stílfærð af Svía nokkrum,
Arash Arafazadeh, og hefur Sruli unnið
með honum að línunni í vetur. Hönn-
uðurinn lofar hann mjög, segir hann
vera eins og „regnmanninn“ þegar
kemur að tískustaðreyndum. „Hann
veit allt um tísku og sér um að ekkert
líti út eins og eitthvað annað og kemur
þessu öllu saman.“
Yfirhöfnin er úr nýju herrafatalínunni og er meðal annars gerð úr gærum af andvana fæddum lömbum.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Glæný herralína
úr íslenskum efnum
Þessi jakki er úr hreindýraleðri og yfir tuttugu svartfuglum.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Hönnuðurinn Sruli Recht í
vinnustofu sinni sem er inn-
af versluninni Vopnabúrinu
úti á Granda, nánar tiltekið
Hólmaslóð 4.
Morgunblaðið/Ernir
Skemmtileg stígvél og slaufa.
Til vinstri er nýtt veski.
Lógóið er skemmtilegt.