SunnudagsMogginn - 16.01.2011, Blaðsíða 38
38 16. janúar 2011
Smæð mannsins andspænis náttúrunni og reginöflum hennarsást vel í Kröflugosinu um jólaleytið 1975. Guðmundur Gunn-laugsson og Gunnar Smith, lögregluþjónar frá Húsavík, voru ágosvakt. Traust varðstaða þótti nauðsynleg við þessar að-
stæður. „Margir bendla Húsavíkur-Jón við þetta uppátæki,“ sagði
Gunnar lögregluþjónn í samtali við Morgunblaðið. Sagði hann gosið
ekki ýkja kraftmikið og að sumra dómi var það þunnur þrettándi, eins
og komist var að orði. Sama mátti raunar segja um nokkur þeirra gosa
sem í kjölfarið komu. Þau voru tilþrifalítil og smá á almennan mæli-
kvarða náttúruhamfara sé miðað við t.d. þau gos sem eru næst okkur í
tíma. Alls urðu eldgosin á Kröflusvæðinu níu talsins.
Síðast gaus við Kröflu í september 1984. Það gos stóð í tvær vikur og
varð raunar það „mesta og glæsilegasta“ eins og Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur segir í bókinni Eldgos 1913-2004. Þá runnu
fram 24 ferkílómetrar af helluhrauni og lýsti af allt að 70 metra háum
kvikustrókum fyrstu gosdagana.Lögregluþjónarnir Guðmundur Gunnlaugsson og Gunnar Smith á gosvaktinni við Leirhnjúk árið 1975.
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Myndasafnið 23.12.1975
Níu gos á jafn-
mörgum árum
Norsku bræðurnir Petter og Marios Varner, sem reka fata-verslunarkeðjuna Dressmann, komust í heimsfréttirnar ívikunni þegar gert var heyrinkunnugt að þeir hefðu ráðiðbresku rokksveitina The Rolling Stones til að markaðssetja
fyrir sig föt. Íslenskir fjölmiðlar hafa stokkið á þessa frétt eins og gaupa
á dádýr enda hvorir tveggju þjóðinni kærir, Rollingarnir og Dress-
mennirnir.
Með Dressmönnunum er auðvitað átt við
hinn vörpulega hóp manna sem oft í viku líð-
ur yfir skjái landsmanna (þegar mikið
liggur við í hægagangi) auglýsandi
klæðnað frá versluninni.
Hvað verður um þessa ágætu
menn? Missa þeir nú vinnuna þegar
Mick Jagger og félagar eru
komnir upp á dekk? Ég sá
að Egill Helgason hafði
af þessu áhyggjur í vik-
unni og á næsta borði
hér í Hádegismóum átti
kona vont með að einbeita sér. „Ég vil ekki
að þeir hverfi af skjánum,“ sagði hún. Það var
angistartónn í röddinni.
Ósagt skal látið hvernig Rollingarnir taka sig út
í fötum frá Dressmann en hermt er að menn á sjö-
tugsaldri finni þar sitthvað við sitt hæfi. Þá verður
spennandi að sjá hvort þeir spila í „slow motion“ í fötunum.
Persónulega bíð ég með öndina í hálsinum eftir því hvort aug-
lýsingin, þar sem Dressmennirnir rísa eins og dáleiddir hálfguðir
upp úr hafinu, verði endurgerð með Rollingunum. Keith Richards
er alltént ekki óvanur því að koma úr djúpinu.
Þokkagyðja snýr aftur
Ekki var það minni frétt á föstudag þegar upplýst var að
gyðja allra gyðja, Marilyn Monroe, hygði á endurkomu á hvíta
tjaldið, 49 árum eftir andlátið. Fyrir þessari mergjuðu endur-
komu stendur maður að nafni Jamie Salter en hann keypti á dög-
unum réttinn á nafni Monroe og öllu því myndefni sem að henni
snýr fyrir milljónir sterlingspunda. Seljandinn var Anna Stras-
Rollingarnir dressuðu sig upp (eða niður),
ein mesta kynbomba allra tíma snýr aftur á
hvíta tjaldið og Kirk Douglas yngdist um
áratug. Vikan var að vanda viðburðarík
hjá fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
’
Hvers vegna vill
Lindsay Lohan líkjast
Marilyn Monroe?
Hvers vegna vill Lady Gaga
líkjast Marilyn Monroe?
Mick Jagger í essinu sínu. Ætli mún-
deringin sé keypt í Dressmann?
Marilyn Monroe, munúðarfull að vanda.
Rollingarnir
dressaðir upp
Frægð og furður