Monitor - 13.01.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011
Á HVAÐ GÆTIRÐU
HORFT?
Gladiator var ein h
eitasta mynd ársin
s ásamt Erin Brock
ovich og
Traffic. Sex and th
e City og Sopranos
voru á blússandi s
iglingu
og Malcolm in the
Middle og The We
st Wing voru á sín
um fyrsta
vetri. Á Íslandi sló
gu kvikmyndirnar
Englar alheimsins
og 101
Reykjavík í gegn s
em og Íslenski dra
umurinn og Björk
vann
Gullpálmann á Ca
nnes-kvikmyndah
átíðinni fyrir hlutv
erk sitt í
Dancer in the Dar
k. Þá var þetta fyrs
ti starfsvetur Skjá
s eins og
nýir íslenskir þæt
tir á borð við Djúp
u laugina gerðu þa
ð gott.
BJÖRK ÁTTI ENN EFTIR AÐ GRÍPA
Í SVANAKJÓLINN ÁRIÐ 2000
HVERJU
MYNDIRÐU
KLÆÐAST?
Stelpurnar voru í Tark-buxum
og fóru líka oft í buxur undir
kjóla þegar þær brugðu undir
sig betri fætinum. Strákarnir
voru í ullarbuxum og rúllu-
kragapeysum og að sjálfsögðu
með strípur. Unglingarnir voru
í Adidas-skóm með skeljatá
og þykkum reimum. Sumir
voru vissir um að strákapils
yrðu brátt það heitasta en svo
varð þó aldrei. X-18 skórnir
íslensku voru líka í hátísku.
HVAR MYNDIRÐU SKEMMTA ÞÉR?
Úr nægu var að velja fyrir skemmtanaglaða í miðbæ Reykjavíkur. Astró – must-
eri næturlífsins var upp á sitt besta, ódýrasti bjórinn var á Nelly‘s og Sportkaffi
var heitur. Fólk dansaði úr sér líftóruna á Thomsen en þar var líka netkaffi! For-
vitnir og aðrir hressir laumuðust á Spotlight. Böllin á Gauknum voru sívinsæl,
Rex hélt vel utan um þá vandlátu og Ari í Ögri stóð fyrir sínu.
HVERT GÆTIRÐU FARIÐ?
Grafarholt var ekki hverfi heldur hóll á leiðinni út úr bæn-
um og Kópavogur endaði um það bil þar sem Smáralindin
var að rísa. Ikea var ekki komið upp í sveit. Kringlan var
eina verslunarmiðstöðin og hafði hún nýlega verið tengd
saman við Borgarkringluna. Stjörnubíó á Laugavegi og
Bíóborgin við Snorrabraut voru enn í fullu fjöri en beðið
var eftir Smárabíó og lúxussölum með eftirvæntingu. Enn
var ódýrt að versla í Hagkaup og Nýkaup sá um lúxusinn.
NETHEGÐUN
Flestir þurftu að byrja á því að láta módemið sitt hringja
inn og láta mömmu vita að það yrði á tali næsta klukku-
tímann. Enn var ár í að MSN yrði hleypt af stokkunum og
engum samskiptasíðum til að skipta. Ircið var í dauða-
teygjunum en Napster var á allra vörum. Blogg fóru að
skjóta upp kollinum og stjörnubloggarar eins og Katrin.is
og Beta Rokk voru við það að slá í gegn. Fartölvur voru að
verða almennari og minnkuðu hægt og rólega. iBook SE frá
Mac var eldheit en hún var með 6 GB harðan disk.
Á EKKI VIÐ Í
ÞESSU TILFELLI
HVAR ÆTLI KIDDI BIGFOOT
DJAMMI Í DAG?
Hugsaðu þér að þú færir að sofa í kvöld en vaknaðir upp árið 2000!
Hvernig myndirðu fitta inn? Hvað myndirðu gera? Monitor rifjar
upp hvað var inn um aldamótin svo þú getir verið við öllu búinn.
ÁRIÐ 2000
ÞÚ VAKNAÐIR Í MORGUN, KÍKTIR Á DAGATALIÐ, ÞAÐ VAR KOMIÐ
EINU SINNI VAR KÚL
AÐ VERA BLOGGARI
ÞÚ FERÐ EKKI LENGUR Í
LAUTARFERÐ Í GRAFARHOLTI