Monitor - 13.01.2011, Page 13
Tölvuleikjaiðnaðurinn hefur reynt ýmislegt í viðleitni sinni að koma
fólki í gott form og hafa í því skyni verið framleiddar ýmsar lausnir.
Margar þeirra ganga út á að misvitrir einkaþjálfarar með mjög hvítar
tennur rembast eins og rjúpan við staurinn að koma fórnarlömbum
sínum í form, en slíkar tilraunir enda yfirleitt með ósköpum.
Fyrir nokkrum vikum kom út nýtt útspil frá EA Sports í þessum
flokki eða EA Sports Active 2 á PS3, Xbox 360 og Wii. Hér er á ferðinni
æfingakerfi sem inniheldur meira en 60 æfingar sem taka á öllum helstu
vöðvum líkamans.
Skynjarar fylgja
Í upphafi geta notendur valið sér einkaþjálfara og skiptir það val máli
þar sem annar þjálfarinn einblínir á uppbyggingu vöðva og úthald á
meðan hinn einblínir meira á eróbik-æfingar og næringarfræði. Næsta
skref er að útbúa æfingakerfi sem hentar manni og getur maður búið til
sín eigin eða látið þjálfarana hanna kerfi sem geta varað í allt að 9 vikur.
Til að tryggja að æfingarnar séu gerðar eru í pakkanum skynjarar
sem notendur láta á sitt hvora höndina og einn á annað lærið. Þessir
skynjarar nema allar hreyfingar og gott betur því í einum skynjaranum
er púlsmælir og er púls notenda varpað upp á skjáinn allan tímann, en
hann er einnig notaður til að reikna út brennslu viðkomandi í æfingun-
um.
Vandað æfingakerfi
Æfingarnar í EA Sports Active 2 eru mjög fjölbreyttar og skemmtilegar,
sumar þeirra eru settar upp í nokkurs konar leiki sem ýta verulega undir
keppnisskapið og tryggja að svitaflóðið verði sem mest. Fyrir þá sem
vilja svo gera æfingarnar meira krefjandi er hægt að bæta handlóðum
inn í æfingarnar. Allar æfingar byrja á upphitun og enda á teygjum.
Það er óhætt að mæla með EA Sports Active 2, en hér er á ferðinni
vandað æfingakerfi. Auðvitað er virknin svo mæld í hversu duglegir
notendur eru að mæta fyrir framan sjónvarpið heima og sprikla sig
rænulausa.
Ólafur Þór Jóelsson
Tegund: Æfingakerfi
PEGI merking: 3+
Útgefandi: EA Sports
Dómar: 7,5 af 10
– Gamespot, 8 af 10
– IGN.com, 9 af 10
– 1UP
Troddu þér í
kjólinn eftir jólin
TÖ LV U L E I K U R
Hvers konar dýr er sæbjörn? Líkist
hann eitthvað bráðnuðum ísbirni?
Þetta er einhver misskilningur því
Seabear er einungis hljómsveit, ekki
dýr.
Er krúttkynslóðin í útrýming-
arhættu eftir að klámkynslóðin
hóf að taka yfir heiminn? Ég er
ekki viss enda tel ég mig ekki vera
af neinni krúttkynslóð. Ég þyrfti
kannski að spyrja vin minn, Brúnna,
hvernig staðan er á þessu núna
þar sem hann er svona brú milli
kynslóða.
Munuð þið berjast fram á síðasta
blóðdropa? Já, já, ef þið borgið
okkur nógu mikið fyrir það.
Hvernig myndirðu lýsa tónlist
Seabear í fimm orðum? Unglingar
að gráta í sjoppu.
Nú spiluðuð þið út um allan heim
á síðasta ári. Hvar var skemmti-
legast að spila? Mér fannst gaman
að spila í Bandaríkjunum. New York
og Austin í Texas voru sérstaklega
skemmtilegar borgir. Svo fannst
mér líka mjög gaman að spila á
tónlistarhátíðum, sérstaklega ef þær
voru utandyra.
Hvar var verst að spila? Það kemur
enginn einn staður upp í hugann
en það var hræðilegt að spila við
lélegar aðstæður, með lélegt sánd
eða á lélegum tónleikastað.
Hver í hljómsveitinni var erfiðasti
ferðafélaginn? Johnny rótari því
hann pissaði alltaf í sig þegar hann
sofnaði í bílnum.
Hvaða ávexti líkist Seabear mest?
Ananas því hann er góður á pizzu.
Hvað er framundan hjá Seabear?
Við vorum að klára tónleikaferðalag
síðasta árs, spiluðum ábyggilega á
svona hundrað tónleikum. Núna er
planið að byrja að semja efni fyrir
nýja plötu.
Afkvæmi hvaða tveggja hljóm-
sveita væri Seabear? Fleetwood
Mac og Red Hot Chili Peppers.
Hver er fyndnastur í Friends?
Trevor Nelson því hann er alltaf
með áhyggjur af stöðu ljóðsins.
13FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Monitor
EA sports
Active 2.0
MEÐLIMIR SEABEAR
KLÆÐA SIG EFTIR VEÐRI
SEABEAR
Stofnuð: Árið 2003.
Uppruni: Sindri keypti sér gítar í
London árið 2002.
Meðlimir: Guðbjörg Hlín (Guggý)
Guðmundsdóttir, Halldór (Dóri)
Ragnarsson, Kjartan Bragi Bjarnason,
Sindri Már Sigfússon, Sóley Stefáns-
dóttir og Örn Ingi Ágústsson.
Plötur: Singing Arc (2004), The
Ghost That Carried Us Away (2007)
og We Built A Fire (2010).
Þrjú góð lög: Cold Summer, We Fell
Off The Roof og Wolfboy.
Fyndin staðreynd: Scooter kallaði
fyrstu plötu Seabear „tónlist til
að svæfa óþæg börn með“ í þýska
blaðinu Intro.
Hljómsveitin Seabear gaf út sína þriðju plötu á síðasta ári
og spilaði út um allan heim til að fylgja henni eftir. Monit-
or ræddi við forsprakka sveitarinnar, Sindra Má Sigfússon,
um krúttkynslóðina og rótarann sem pissaði alltaf í sig.
Eins og unglingar
að gráta í sjoppu