Monitor - 20.01.2011, Side 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011
Monitor kynnir sér hvaða sýningar verða á boðstólnum hjá framhaldsskólunum í ár. V
Draumur
Verslinganna
MARÍA ÓLAFSDÓTTIR
leikkona í Draumnum
Aldur: 17 ára, er á öðru ári.
Braut: Félagsfræðibraut.
„Ég leik stelpu sem heitir Heiður.
Hún er í sambandi með einum
en vill í raun og veru vera með
öðrum strák, svo hlutirnir fara í
svolitla flækju.“
Stefnirðu á að verða leikkona?
„Já ég stefni á leiklistarnám og
ég held mig langi að læra það
erlendis þar sem ég get farið á
söngleikjabraut, en ég á enn eftir
að ákveða það.“
Áttu þér fyrirmynd í
leiklistinni?
„Kannski ekki beint í
dag en þegar ég var lítil
þá leit ég svolítið upp til
Selmu Björnsdóttur.“
Hvað er besta lagið í
sýningunni:
„Somebody to love. Mig
minnir að það heiti Einhvern til
að elska í okkar útfærslu.“
Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir,
formaður nemendamótsnefndar Versló.
Um hvað er sýningin?
„Hún fjallar um fjóra einstaklinga sem
eru að halda út í lífið. Tvö þeirra ákveða að
hlaupast á brott og hin elta. Álfadrottning
og álfakóngur fylgjast með þeim og þeim er
byrlað lyf sem lætur þau verða hrifin af þeirri
manneskju sem þau sjá fyrst þegar þau opna
augun. Í þessari uppfærslu eru þetta krakkar
sem eru að klára menntaskóla og þetta er
ekki upphaflegi Shakespeare-textinn.
Af hverju ætti fólk að koma á þessa
sýningu?
„Af því hún er litrík og það er skemmtilegt
að horfa á hana. Sviðsmyndin er risastór og
búningarnir eru geggjaðir. Allir handsaum-
aðir. Tónlistin er skemmtileg 90´s tónlist í
nýjum búningi, lög eins og Livin‘ La Vida Loca
og Titanic-lagið.“
SIGRÍÐUR DAGBJÖRT
FÍLAR 90´S TÓNLIST
MARÍA ÞARF AÐ VELJA Á
MILLI DRENGJA Í DRAUMNUM
YLFA MARÍN
HARALDSDÓTTIR
leikkona í Lyngmóum 3
Aldur: 19 ára, útskrifast
í vor.
Braut: Listnámsbraut.
„Ég leik Sól sem er tröll.
Hún er mjög klár og góð
stelpa en hún er svolítið
vanmetin og fær að finna
fyrir því að hún sé tröll.
Hún er ekki komin jafn
langt í lífinu og sætu
stelpurnar af því hún er
tröll og hún er svolítið
reið yfir því. Annars er
hún rosalega ljúf og lítil í
sér. Vill ekki vera lúði og
vill bara fá að vera með.“
Trúir þú á tröll?
„Já, já. Tröll og álfa og
allt saman.“
Hvað er það skemmti-
legasta við að taka þátt í
svona leikriti?
„Þetta er svo skemmti-
legt ferli og skemmtilegt
að sjá þetta fæðast. Fyrst
er maður svolítið óör-
uggur með karakterinn
sinn en svo kemur sviðið
og búningar og maður
verður alltaf öruggari og
öruggari
þangað til
það er allt í
einu komið
að frum-
sýningu.
Svo verður
maður
alltaf betri
og betri, því oftar sem
maður tekur þátt.“
Heiðar Sumarliðason,
leikstjóri Lyngmóum 3
Um hvað er sýningin?
„Þetta er staðfæring á bandaríska söngleiknum
Avenue Q sem gerist í New York og fjallar um
menn og brúður sem búa í sátt og samlyndi.
Í okkar útgáfu eru það menn og tröll sem búa
saman í Lyngmóum í Garðabæ.
Leikritið fjallar um ungan mann sem er nýút-
skrifaður úr FG. Hann er að leita sér að húsnæði
og byrjar að leita á Arnarnesi. En hann hefur
ekki efni á því að búa þar og endar í Lyngmóum.
Þar kynnist hann tröllastelpunni Sól og verður
ástfanginn af henni.“
Hvers vegna ætti fólk að koma á þessa sýningu?
„Þetta er skemmtilegasti söngleikur sem ég veit
til að hafi nokkurn tímann verið settur á svið
og hann er líka þannig að fólk sem þolir ekki
söngleiki fílar hann. Ég sá hann í London og ég
hef aldrei séð jafn skemmtilegt leikhús á ævinni.“
HEIÐAR SEGIR TRÖLL
LEYNAST Í LYNGMÓUM
YLFA MARÍN TRÚIR Á
ÁLFASÖGUR
Leikrit: Lyngmóar 3.
Höfundur: Byggt á
söngleiknum Avenue Q.
Tónlistarstjóri: Sigríður
Eyrún Friðriksdóttir.
Frumsýning: 23. febrúar
í Urðarbrunni í FG.
Leikrit: Draumurinn (byggt
á sögunni um draum á
Jónsmessunótt)
Leikstjóri: Orri Huginn Ágústsson.
Hvar: Sýnt í Loftkastalanum.
Tónlistarstjóri: Stop, wait, go.
Frumsýning: 3. febrúar.
Tröll
í Garðabænum
Leikfélag FG setur upp söngleikinn Lyngmóar
3 sem er byggður á bandaríska söngleiknum
Avenue Q. Í staðinn fyrir að fjalla um menn og
brúður í New York segir hann frá samskiptum
manna og trölla í Lyngmóa 3 í Garðabæ.
Nemendamótsnefnd Versló setur upp leikritið
Drauminn, sem er byggt á Draumi á Jónsmessu-
nótt eftir Shakespeare. Það hefur þó verið fært í
nútímalegri búning og aðalhetjurnar í þessari út-
gáfu eru krakkar sem eru að ljúka menntaskóla.