Monitor - 20.01.2011, Side 5
5FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011 Monitor
Við byrjum að spyrja Versló, Kvennó, FG og MR af hverju þeirra sýning er betri en hinar.
Ólík túlkun
á sama verki
ÁRNI ÞÓR LÁRUSSON
leikari í Draumi
á Jónsmessunótt
Aldur: 17 ára, er á öðru ári.
Braut: Náttúrufræðibraut.
„Ég leik Lísander sem
er að mínu mati frekar
ákveðinn karakter. Hann
er ástfanginn af Hermíu en
henni er ætlað að giftast
öðrum manni, svo þau
hlaupast á brott saman“.
Fer það vel saman að vera
á náttúrufræðibraut og að
vera í leiklist?
„Já, já. Það getur alveg
farið vel saman.“
Ætlar þú að fara í
leiklistarnám að loknum
menntaskóla?
„Ég hef bara ekki gert það
upp við mig ennþá.”
Hefurðu lesið Shake-
speare?
„Já, ég hef aðeins kíkt á
Rómeó og Júlíu.“
Hefði það hentað betur
að vera á latínubraut
þegar maður þarf að fara
með flókinn texta eins og
Shakespeare?
„Nei, nei. Ég held ekki.
Ef maður hefur áhuga á
þessu og leggur sig fram
þá er þetta ekkert mál.“
Elías Bjartur Einarsson,
gjaldkeri Herranætur
Um hvað er sýningin?
„Verkið fjallar um ástir ungmenna í
gamla daga sem flækjast í ævintýri úti í
skógi þar sem álfar og yfirnáttúrulegar
verur koma við sögu. Við höldum að
mestu í upprunalega Shakespeare-
textann og erum líka með hljómsveit og
frumsamda tónlist.“
Hvers vegna ætti fólk að velja þessa
sýningu?
„Í gegnum árin höfum við sýnt mjög
metnaðarfullar sýningar og þessi er engu
síðri. Og þrátt fyrir að þetta verk verði
líka tekið fyrir annars staðar í ár þá er
það jafnvel bara enn skemmtilegra því
það er gaman að sjá tvær mismunandi
túlkanir á verkinu og það verður náttúru-
lega mikill munur á framsetningunni.“
ELÍAS HRÆÐIST EKKI
SÝNINGU VERSLINGA
ÁRNI ÞÓR LEIKUR HINN
ÁKVEÐNA LÍSANDER
Leikrit: Draumur á
Jónsmessunótt.
Leikstjóri: Gunnar Helgason.
Höfundur: William Shakespeare.
Tónlistarstjóri: Kristján Norland.
Frumsýning: 25. febrúar í
Norðurpólnum.
Barnaharmleikur
í boði Kvennó ATLI FREYRÍSFELD ÓSKARSSON
leikari í Vorið vaknar
Aldur: 19 ára,
er á síðasta ári.
Braut: Félagsfræðibraut.
„Ég leik Melchior sem er
við það að útskrifast úr
skóla. Hann er mikill hugs-
uður en frekar hrokafullur
karakter. Telur sig vera
betri en aðra og vill mikið
kenna fólki.“
Áttu mikið sameiginlegt
með Melchior?
„Nei, ég myndi ekki segja
það.“
Hvað ætlar þú að gera eftir
Kvennó?
„Mig langar mikið að fara
í leiklistarnám.“
Hver er
uppáhalds-
leikarinn
þinn?
„Sam
Rockwell.
Hann á að
baki mikið af hlutverkum
sem mig myndi langa að
leika.“
Eru einhver atriði í sýn-
ingunni sem er vandræða-
legt að leika í?
„Já, eflaust einhver atriði.“
Vala Björg Valsdóttir
formaður leikfélags Kvennó
Um hvað er sýningin?
„Þetta er einhvers konar gaman-harmleikur,
hefur stundum verið kallað barnaharmleikur.
Þetta fjallar um unglinga rétt fyrir aldamótin
1900 sem eru í rauninni að uppgötva lífið. Þetta
er hundrað ára gamalt leikrit og það er mjög
djarft miðað við það. Það kemur í rauninni allt
fyrir í þessu leikriti sem ekki var mikið skrifað
um á þessum tíma, sjálfsmorð, sjálfsfróun,
nauðgun og samkynhneigð.“
Af hverju ætti fólk að koma á þessa sýningu?
„Markmiðið okkar er að vera ekki með það
sama á hverju ári, við setjum t.d. ekki alltaf upp
söngleik og ekki alltaf upp spunaleikrit. Núna
erum við að vinna upp úr gömlu handriti en
þetta á samt að vera svolítið tímalaust leikrit.
Þetta er rosalega fyndið en á sama tíma þá
gengur þú hugsandi út af sýningu.“
VALA SEGIR SÝNINGUNA
FÁ FÓLK TIL AÐ HUGSA
ATLI VÆRI TIL Í AÐ FETA Í
FÓTSPOR SAM ROCKWELL
Leikrit: Vorið vaknar.
Leikstjóri: Kári Viðarsson.
Höfundur: Frank Wedekind.
Frumsýning: 18. mars í
Uppsölum í Kvennó.
Leikfélag Kvennaskólans ræðst í uppsetningu á
hundrað ára gömlu verki sem var ótrúlega djarft
fyrir sinn tíma og er stundum kallað barnaharm-
leikur. Það er þó ekki endalaust drama heldur
munu áhorfendur líka fá að hlæja.
Herranótt MR setur upp Draum á Jónsmessu-
nótt eftir Shakespeare með frumsamdri tónlist.
Verslunarskólinn setur upp leikrit byggt á sama
verki en að sögn aðstandenda kemur það ekki
að sök, enda verða uppfærslurnar alls ólíkar.