Monitor - 20.01.2011, Page 10
10
Einhvers staðar heyrði ég að það hafi verið gefin út
bók um þá keppendur sem fengu 0 stig og þú hafir
verið einn af fáum sem mættu í viðtal við höfund-
inn með bros á vör.
Það kom svolítið flatt upp á höfund bókarinnar að
finna mig í kastala í Brussel með síki í kringum og
iðandi dýralíf. Þetta var þegar ég var að vinna í fyrstu
sólóplötunni minni (Swallowed A Star) og ég var
með alveg fáránlega flotta umgjörð í kringum mig.
Það kom honum skemmtilega á óvart hvað ég var í
góðum gír þrátt fyrir að hafa fengið 0 stig í Eurovision
einhverjum áratugum áður. Sumir hafa tekið því
mjög illa að hafa farið illa út úr Eurovision. Fyrir mig
skipti það engu máli. Ég var rosalega feginn að vinna
ekki. Mig langaði alls ekki til þess því mig langaði til
að sinna mínum ferli. Ef ég hefði unnið þessa keppni
hefði ég væntanlega farið allt aðra leið. Þá hefði ég
farið að syngja meira lög eftir aðra og í einhverju
samhengi sem ég réði takmarkað við.
Þú og Krummi í Mínus fóruð af stað með hljóm-
sveitina Esju fyrir fáeinum árum. Er eitthvað að
gerast hjá Esju núna?
Við Krummi megum ekki hittast þá verður til lag.
Við verðum að fara að hætta að hittast svona! Jú, við
erum með slatta af lögum og svo er bara tímaspurs-
mál hvenær við verðum búnir að klára það mörg lög
sem við erum ánægðir með að við förum að telja í
upptökur á næstu plötu. Það gerist örugglega á næsta
ári. Hann er náttúrulega í Mínus og Legend og að gera
bíómyndatónlist þannig að þetta er mjög annasamt
ár hjá okkur báðum. En við munum taka nokkrar
sumarbústaðarferðir og semja.
Þú sagðir eitt sinn að Rod Stewart væri einn besti
söngvari allra tíma og að það væri hneisa að hann
væri ekki spilaður í útvarpi allan daginn.
Sagði ég það? Ég er ekkert hissa á að ég hafi sagt
það. Röddin í þessum manni er auðvitað yfirnáttúru-
leg, hún er bara svo flott. Þessi tegund af sandpappír
sem er í raddböndunum á honum, áferðin er svo
hrjúf og mjúk í senn. Hann er mikill listamaður.
Er þetta álit þitt ekki litað af því að þú varst ungur
og móttækilegri þegar þú byrjaðir að hlusta á Rod
Stewart? Myndir þú fíla hann svona mikið ef þú
heyrðir fyrst í honum í dag?
Veistu það ég hlustaði ekkert gagngert á Rod
Stewart þegar ég var yngri. Ég var meira að hlusta á
Stones og Bítlana og eitthvað annað stöff. Auðvitað
heyrði maður Rod í útvarpinu en það er ekki fyrr en
á síðustu fimm árum sem ég hef virkilega kynnt mér
hann og hans verk. Ég var alveg gagntekinn á tíma-
bili. Mig hefur aldrei langað til að vera einhver annar,
en mig hefði langað mikið til að vera Rod Stewart í
einn dag. Í góðri upptökulotu eða á góðum tónleikum
eða bara í góðu partíi. Hann var náttúrulega alltaf í
partíi. Í góðu partíi með Ronnie Wood.
Þú virðist ófeiminn við að klæðast öðruvísi en
flestir. Góður maður sagðist til dæmis hafa séð þig
einhvern tímann í bíó með vængi á bakinu.
Hann er örugglega að tala um jakkann sem
stelpurnar í Aftur saumuðu á mig. Þetta voru nú ekki
einhverjir útþandir hvítir erkienglavængir, þetta var
bara svona gagnsætt efni sem var búið að sauma
aftan á svona fallega vængjalögun og kögur. Þetta var
bara flottur jakki.
Er eitthvað hægt að skilgreina klæðaburðinn þinn?
Þetta er síðmódernískur rokkókóstíll.
Gott svar við lélegri spurningu!
Einhvern veginn verður maður að krafsa sig út úr
þessu.
Ég er þó með aðra tískuspurningu. Sagan segir að í
kringum útgáfu plötunnar Hunang árið 1993 hafir
þú verið duglegur að ganga í brúnum æfingagalla
sem hinir meðlimir Nýdanskrar hafi haft megna
viðurstyggð á. Tveimur árum síðar hafi þessir
gallar verið komnir í tísku og allir byrjað að ganga í
þeim. Ertu svona mikill trendsetter eða er þetta allt
tilviljanakennt?
Þetta er náttúrulega bara alveg óvart. Ætli ég hafi
ekki bara keypt þetta í Spúútnik á útsölu og svo var
bara til nóg af þessu. Svo hafa einhverjir séð hvað
þetta voru svalir gallar. Þetta hefur æxlast einhvern
veginn þannig. Það var ekki ég sem fór að kaupa
birgðir af brúnum æfingagöllum til að selja.
Í framhaldi af þessum spurningum verð ég að
spyrja út í hárið þitt. Þú átt að baki margar svaka-
legar hárgreiðslur. Hvernig ræðst það hvernig þú
lætur klippa þig? Er einhver vitfirringur að stílisera
þig?
Stundum er það þannig að hárið bara vex og þá
bara vex það einhvern veginn og út um allt. Stundum
er það allt í lagi og stundum fæ ég leið á því. Þá fer ég
og hitti Jón Atla klipparann minn, Hairdoctorinn. Við
höfum oft hist á föstudögum á því sem hann kallar
Freaky Fridays. Þá verður til einhver klipping sem
tekur u-beygju á það sem þætti eðlilegast að gera. Þá
fer maður í einhverja átt sem manni finnst fyndin og
skemmtileg. Stundirnar sem ég hef átt í stólnum hjá
honum eru bara gull.
Monitor FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011
Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að vinna og pæla í
tónlist? Hvernig „chillar“ Daníel Ágúst?
Mér finnst voða gott að fara í vatnsgufu, þá er ég
alveg slakur. Mér finnst gott að drekka gott rauðvín.
Ég hef líka gaman af stangveiði í ám og vötnum. Það
róar hugann og setur hann á góðan stað. Veiði kemur
adrenalíni og spennu í líkamann, en útiveran og
náttúran hefur róandi áhrif.
Einhver sagði mér að þú læsir ekki blöð og horfðir
ekki á sjónvarp.
Það eina sem ég horfi á í sjónvarpstækinu er barna-
efni. Það er svo margt annað skemmtilegt hægt að
fást við. Stundum ef ég er alveg úrvinda og hef ekki
orku í að gera neitt af viti þá kveiki ég á imbakass-
anum.. En ég reyni að missa af öllum fréttum. Það er
algjört prinsipp.
Af hverju reynir þú að missa af fréttum?
Þær hafa bara neikvæð áhrif á mig. Mér finnst
svo neikvæð orka í fréttum. Allar þær upplýsingar
sem ég fæ þar nýtast mér illa eða verða að gremju
eða pirringi. Staðurinn sem ég fer á andlega verður
þungur og dökkur. Það er það sem ég reyni að forðast.
Ekki það að fréttirnar séu ekki merkilegar, en ég reyni
að sneiða hjá þeim því þær hafa ekki góð áhrif á mig.
Nýdönsk, GusGus, Esja og sólóefnið þitt eru fremur
ólík verkefni. Hvar fílar þú þig best og er eitthvað
sem þú átt eftir að gera í tónlist?
Ég vona að það sé eitthvað sem ég á eftir að gera.
Ég á náttúrulega eftir að stofna þungarokksband
og blúgrassband. Svo á maður eftir að gera eins og
sumir frægir erlendir tónlistarmenn að leita sér fanga
í alls konar heimsálfum. Það er eitthvað sem ég sé
alveg fyrir mér að gera. Ég myndi vilja fara í einhvern
könnunarleiðangur og mér er alveg sama hvert það
er. Það er alltaf gaman að feta nýjar slóðir og finna
nýjar nálganir á viðfangsefninu tónlist.
Sagan á bakvið nöfnin
Nýdönsk „Nýdönsk-nafnið varð til þegar
Björn Jörundur beið eftir strætó í Lækjargötu
og sá í glugga á bókabúð að verið var að
auglýsa ný dönsk tímarit. Allar bókabúðir lands-
ins stilltu því út í glugga þegar nýju dönsku
tímaritin bárust og eins þegar nýju ensku
og þýsku tímaritin bárust og svo framvegis.
Þannig að við gætum í raun alveg eins heitið
Nýþýsk. En honum fannst sniðugt að fá þessa
ókeypis auglýsingu í hverri viku.“
GusGus „GusGus er tekið úr listrænni þýskri
kvikmynd, Óttinn nagar sálina eða Angst essen
Seele auf, í leikstjórn Rainer Werner Fassbind-
er. Nafnið er tekið úr munni konu sem vinnur á
veitingastað og býður einum gestinum heim til
sín að borða kúskús. Þá þýðir það ekki bara að
þau séu að fara að snæða og eiga huggulega
kvöldmatarstund heldur hefur það ýmis nánari
kynni í för með sér. Nafnið kemur sem sagt frá
þessum þýska framburði á þessari matartegund.“
Esja „Esjan er bara fyrir augunum á okkur
sem búum í þessari borg á hverjum degi.
Esjan er falleg, hún er tignarleg og hún er hluti
af tilverunni og landslaginu og umhverfinu í
kringum mann. Hún er manni ofarlega í huga.
Okkur vantaði nafn á hljómsveitina okkar og
fannst sniðugt að bera það nafn við þennan
stórkostlega fjallahring.“
Það kom honum skemmtilega á
óvart hvað ég var í góðum gír þrátt
fyrir að hafa fengið 0 stig í Eurovision.