SunnudagsMogginn - 15.05.2011, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 15.05.2011, Blaðsíða 26
26 15. maí 2011 Arnold Schwarzeneg- ger lenti fljótlega í erfiðleikum með hallann og gat ekki fengið fulltrúa úr sín- um eigin flokki – repúblikana – til að samþykkja nokkurn skapaðan hlut til að bæta hann. F járlagahalli Kaliforníu þetta árið er um 2.900 milljarðar króna og hefur þessi halli leitt til þess að Jerry Brown, nýkosinn rík- isstjóri, getur fátt annað gert í málefnum ríkisins fyrr en hann hefur fundið lausn á vandanum. Þessi halli bætist við þann stóra fjárlagahalla sem fyrir var. Stjórn- arforysta ríkisins hefur brugðist við þess- um vanda með stórum lántökum til að jafna hallann en nú er svo komið að sú lausn er ekki lengur verjanleg. Fjárhagsvandræði Kaliforníu eiga sér langan aðdraganda og til þess að skilja rót vandans verður að fara aftur til áttunda áratugsins. Á sjöunda áratugnum höfðu stjórn- málamenn ríkisins egnt stóran hluta skattgreiðenda til reiði – einkum hús- eigendur – með hækkun fast- eignaskatta sem fóru í ríkisútgjöld til margs konar málaflokka. Þar að auki hafði fasteignamatshneyksli 1966 orðið til þess að ríkisþingið endurskoðaði reglur um op- inbert fasteignaverð, sem er grunnurinn að fasteignaskött- um einstaklinga og fyrirtækja. Eftir að þingið setti hinar nýju fasteignamatsreglur, hækkuðu fasteignaskattar margra þeirra sem greitt höfðu lága skatta um árabil. Á áttunda áratugnum steig síðan fasteignaverð í ríkinu mjög hratt, sem leiddi til enn hærri fasteignaskatta margra ann- arra húseigenda og fyrirtækja. Þetta reyndist alvarlegast fyrir húseigendur sem komnir voru á eftirlaun. Afleiðingin var sú að allt í einu stóðu milljónir heimila frammi fyrir stór- auknum fasteignasköttum. Óánægjan með þessar auknu álögur leiddi loks til þess að í rík- iskosningum sumarið 1978 sam- þykktu kjósendur svokallaða „rík- istillögu 13 (Proposition 13). Tillagan fól í sér tvenns konar breytingar á stjórnarskrá ríkisins. Í fyrsta lagi voru fasteignaskattar frystir miðað við fast- eignamat þremur árum áður. Í öðru lagi fólst í tillögunni sú krafa að framvegis þurfti aukinn meirihluta – 2⁄3 í stað hreins meirihluta – til að samþykkja skatta- hækkanir hjá öllum stjórnargeirum rík- isins – og á ríkisfjárlögum ár hvert. Segja má að úrslitum hafi ráðið að kjós- endum þótti ótækt að eldri borgarar gætu Fjárhagsvandræði þau sem hrjáð hafa flest lönd heimsins undanfarin tvö og hálft ár eru okkur sem búum í Kaliforníu vel kunn. Hér hafa á und- anförnum árum átt sér stað ákafar umræður um mikinn fjárlagahalla ríkisins – umræður sem breiðst hafa út um öll Bandaríkin og léku lyk- ilhlutverk í stórsigri repúblikana í síðustu þing- kosningunum í nóvember. Gunnar Valgeirsson gval@mbl.is Fjárlagahalli Kaliforníu erfiður viðeignar ’ Arnold Schwarzenegger tók við stjórnartaumunum þegar fjárlagahallinn var rúmlega 2.200 milljarðar króna. Þegar hann lét af embætti nú í byrjun ársins var hinn árlegi halli tæplega 700 milljörðum hærri.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.