SunnudagsMogginn - 15.05.2011, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 15.05.2011, Blaðsíða 28
28 15. maí 2011 ið. Ég er stolt af þessum plötum, þær eru börnin mín og eru lifandi einhvers staðar þótt ég sé komin langt í burtu.“ Hvað var erfiðast við að vera í tónlist- arbransanum? „Tónlistarbransinn er í heild mjög óöruggur. Maður þolir það ef til vill betur fyrst. Poppheim- urinn er líka yfirborðslegur og hraður, þar er allt á fleygiferð og stöðugum breytingum háð. Þetta er einkennilegur bransi að mörgu leyti af því að maður þarf að loka sig af öðru hvoru og síðan þarf maður að skipta um ham og verða gangandi söluvara. Þetta hentar ekki öllum. En mér fannst gaman meðan á þessu stóð og það átti afar vel við mig að koma fram á sviði. Þar naut ég mín.“ Þú hefðir auðveldlega getað verið áfram í þessum bransa og elst sem söngkona. „Já, en maður er alltaf að taka ákvarðanir og velja. Lífið býður upp á svo margt og í mér býr lítill fræðimaður sem fékk ekki notið sín í tón- listarstarfinu nema að takmörkuðu leyti. Fólk segir við mig: „Ertu hætt að syngja? Hvernig geturðu það?“ Og til eru þeir sem segja jafnvel: „Ef þú hættir hefur þú þá nokkuð verið alvörutónlistarmaður?“ Ég veit ekki hverju ég á að svara því ég upplifi þetta ekki þannig. Fyrir mér er guðfræðin ákveðið framhald af því sem ég hef verið að gera. Akademísk fög, eins og til dæmis guðfræði, eiga skapandi hliðar. Og tón- listin er mikilvægur þáttur guðfræðinnar, eins og sjálfur Lúter lagði áherslu á. Þegar ég var í guðfræðideildinni fór ég í nokkra tíma í org- elleik. Það var mjög skemmtilegt en ég hefði þurft þó nokkra tíma í viðbót til að verða þokkalegur orgelleikari.“ Ertu mjög trúuð? „Ég hef alltaf skilgreint mig sem trúaða mann- eskju – fyrir utan Nietzsche-tímabilið sem ég tók sem unglingur. Þá var ég mjög heilluð af þeirri hugmynd að maður væri sterkastur ef maður stæði einn og að maður gæti allt sem maður ætlaði sér. Þetta var týpískt unglinga- syndróm sem ég fór í gegnum. Það má jafnvel kalla það ákveðna trú. Það er hægt að taka trú á svo margt annað en Guð. Fólk getur til dæmis trúað á hinn sterka mann – eða Mammon. En ég held að það gangi aldrei upp. Maður verður fyrir vonbrigðum. Það er allavega mín reynsla. Tónlist og trú hafa fylgst að í mínum huga. Þegar ég spilaði á píanóið mitt fannst mér ég vera beintengd við eitthvað guðlegt. Það var svipuð tilfinning sem fylgdi því að semja lög og syngja. Ég byrjaði mjög snemma að loka mig inni og semja lög. Ég gat eytt mörgum klukku- stundum í að hlusta á einn tón, hvernig hann breyttist og hvernig hann var í samhengi við annan tón. Ég setti spil inn í hörpuna á píanóinu og þá breyttist áslátturinn. Svo tók ég þessa mismunandi tóna upp á segulband og stúderaði þá. Ég eyddi mikl- um tíma í þessum heimi, sem var minn heimur. Ég held að trúarþátturinn hafi líka verið þar.“ Ekki mikil félagsþörf Þú ert alin upp í stórum systkinahóp. Var það gam- an? „Við systkinin erum sex og fjögur okkar hafa gert tónlistina að atvinnu. Það var mikið fjör á heimilinu, þar voru tvö píanó, eitt fyrir mig og annað sem Ás- gerður, systir mín, átti. Hún var að læra óperusöng og það var slegist um að fá að æfa sig, ekki gátu allir spilað í einu. Ásgerður var nú að gefa út sinn þriðja geisladisk og tvíburabræður mínir Kristinn og Guð- laugur eru að undirbúa útgáfu geisladisks ásamt hljómsveit sinni. Elsta systir mín Ragnheiður kennir hátíðarmatreiðslu við HÍ og sú yngsta, Sigríður El- ísabet, starfar sem tölvunarfræðingur. Það var eins gott að ég fæddist inn í svona stóran systkinahóp. Annars hefði ég kannski orðið svolítið M óeiður Júníusdóttir söngkona ákvað fyrir nokkrum árum, þrátt fyrir mikla velgengni, að snúa baki við tónlist- arbransanum. Hún innritaði sig í lög- fræði en skipti svo yfir í guðfræðina og lauk guð- fræðiprófi frá Háskóla Íslands í fyrra. Nú er hún komin í doktorsnám. „Ég er skólamanneskja, ein af þeim manneskjum sem finnst gaman að vera í skóla. Ég veit ekki hvort ég er svona ofur samviskusöm eða hvort mér finnst bara svona óskaplega gaman að læra,“ segir Móeiður. „Eftir að ég ákvað að hætta í tónlist- arbransanum var ég í lögfræði í eitt ár. Ég lærði af- skaplega margt þar og það má segja að lögfræðinám hafi verið frábær leið til að koma mér aftur niður á jörðina eftir poppheiminn. Maður kemst varla lengra inn í veruleikann en með lögfræðinni. En ég var samt ekki tilbúin að eyða sex árum af lífi mínu í lögfræðinám.“ Var lögfræðin leiðinleg? „Mér finnst ekkert leiðinlegt. Allt verður for- vitnilegt ef ég sökkvi mér niður í það. Þetta er minn kostur en kannski líka galli. Lögfræðin er vissulega áhugaverð en mér fannst alltaf vanta „þriðju víddina“ í námið. Mig langaði til að komast ofar og víðar. Ég vissi nánast ekki af guðfræðinni, eins og svo margir. Hún er að mörgu leyti má segja „vel geymt leyndarmál“, þetta er lítil deild ætluð sem undirbúningur undir prestsstarf, en hefur samt breyst mjög mikið og hefur nú að viðfangi almenna trúarbragðafræði og þar eru einnig menntaðir djáknar. Þuríður Pálsdóttir óperusöngkona, tengdamóðir mömmu, er mjög praktísk og vitur kona og hún sagði: Guðfræði er málið. Ég tók hana á orðinu og skráði mig í guðfræði haustið 2004. Mér fannst að þetta væri rétt ákvörðun og ég hef ekki séð eftir henni eina stund. Mér fannst alveg ótrúlega gaman í þessu námi. Ég upplifði aldrei að ég hefði átt að gera eitthvað annað. Þetta var eins og að vera komin út í stórt haf sem var endalaust hægt að synda í. Ég upplifði heldur ekki skörp skil milli þess að vera í tónlist og vera í guðfræði. Mér finnst þetta vera af sama meiði. Tónlistin er hluti af guð- fræðinni.“ Var búin að fá nóg Ertu alveg hætt í tónlistinni? „Já, ég hef ekki sinnt tónlistinni að ráði síðan ég byrjaði guðfræðinám. Ég tók meðvitaða ákvörðun um að hætta í tónlistarbransanum. Ég var búin að fá nóg. Mér fannst ég vera búin að gera allt sem ég vildi gera, hafði komið víða við, bæði í poppinu og djassinum. Ég gerði nokkrar plötur, fyrsta platan mín var djassplata en síðan fór ég meira út í popp- Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Tónlistin og trúin Móeiður Júníusdóttir tók fyrir nokkrum árum meðvitaða ákvörðun um að hætta í tónlistarbrans- anum. Í dag er hún útskrifaður guðfræðingur og er komin í doktorsnám. Framundan er rannsókn- arvinna um trúarlíf Vestur-Íslendinga. Móeiður Júníusdóttir: Ég hlusta á mína innri rödd. Hún er minn áttaviti. Satt best að segja tek ég meira mark á henni í dag en ég gerði áður. ’ Fólk segir við mig: „Ertu hætt að syngja? Hvernig geturðu það?“ Og til eru þeir sem segja jafnvel: „Ef þú hættir hefur þú þá nokkuð ver- ið alvörutónlistarmaður?“ Ég veit ekki hverju ég á að svara því ég upp- lifi þetta ekki þannig. Fyrir mér er guðfræðin ákveðið framhald af því sem ég hef verið að gera.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.