SunnudagsMogginn - 15.05.2011, Blaðsíða 43

SunnudagsMogginn - 15.05.2011, Blaðsíða 43
15. maí 2011 43 spegla jafnvægið milli himins og jarðar; þess frelsis og aga sem ég var að tala um áðan. Þegar ég sá þetta verk eftir Hrein í listaverkabók þá hugsaði ég með mér: Þetta eru einmitt Bach og Chopin, tvær myndir sem spegla hvor aðra. Ég skrifaði Hreini og varð eiginlega orðlaus þegar hann sagðist gefa mér leyfi til að nota myndirnar. Hann er stór listamaður sem ég lít upp til. Ég eyddi miklum tíma í að skrifa text- ann sem fylgir geisladisknum, ég vildi ekki hafa hann eins og fyrirlestur heldur opna með honum aðra glugga að tónlist- inni fyrir hlustendur. Svo skiptir líka máli hvar diskurinn er til sölu og hvernig hann er kynntur – ég vil ekki að hann sé alls staðar.“ Er svona útgáfa ekki mjög dýr? „Þetta er mjög dýrt, af því að ég sparaði ekki í neinu. Upptökur fór fram Gewand- haus-tónlistarhúsinu í Leipzig. Ég tók diskinn upp í október og hann átti að koma út í nóvember en ég var ekki full- komlega sáttur við innri hlutföll í ellefu til tólf stuttum köflum. Ég fór aftur til Leip- zig í febrúar og var þar í tvo daga til að laga þessi hárfínu hlutföll. Ég hugsaði ekki í peningum heldur í listrænum ávinningi. Það er mikill léttir að diskurinn er nú kominn út alveg eins og ég vildi hafa hann. Viðar Víkingsson kvikmyndagerð- armaður kom með mér út til Leipzig til að gera heimildarmynd um allt ferlið á geisladisksupptökunum. Sú mynd mun vonandi sýna fólki þá gríðarlegu vinnu sem er á bak við geisladisk sem fólk kaupir úti í búð. Þegar maður er að taka upp geisladisk situr maður fyrir framan míkrófón og er að taka sama kaflann upp fimm til tíu sinnum, alltaf með það markmið í huga að fanga eitthvað óvænt – en jafnframt að spila fullkomlega. Þetta tvennt er í eðli sínu andstætt. Þegar maður hlustar svo á útkomuna og heyrir eitthvað eitt eða tvennt sem manni líkar ekki þá er erfitt að viðhalda opnu hugarástandi í næstu töku. Þetta geta verið mikil innri átök. Viðar festi þetta allt á filmu og fangaði, held ég, sálarangistina sem fylgir því að gera svona disk, eins og til dæmis viðbrögð mín, sem voru ekki góð þegar ég heyrði kaflana sem ég var ekki ánægður með eftir að ég kom heim til Oxford og ollu því að ég ákvað samstundis að fara aftur út og eyða háum fjárhæðum í að laga þessi innri hlutföll.“ Hundrað ára bið að baki Hvernig var að koma fram á fyrstu tón- leikunum í Hörpu? „Hvað á ég að segja? Í Hörpu sagði ég við salinn, áður en ég spilaði aukalagið Ave María eftir Kaldalóns, að ef ég hefði vitað þegar ég var lítill strákur að spila á píanó að ég ætti eftir að leika með Sinfón- íuhljómsveit Íslands, fá að koma fram á fyrstu tónleikunum í nýja tónlistarhúsinu og í þriðja lagi að sjálfur Vladimir Ashke- nazy héldi um sprotann, þá hefði ég dáið úr gleði. Þetta gefur kannski einhverja mynd af því hvernig tilfinning það var fyrir mig að fá að spila þarna. Tónlistarunnendur og tónlistarfólk er búið að bíða eftir húsi eins og þessu með alvöru hljómburði og aðstöðu í meira en hundrað ár. Þegar ég kom inn á sviðið fann ég að þessi hundrað ára bið var að baki. Ég hef aldrei séð jafn stóran hóp af fólki vera jafn hamingjusaman og stoltan og þarna. Ég gleymi því seint.“ Ég las einhvers staðar að stemningin á tónleikum hjá þér væri eins og á popp- tónleikum. Skynjarðu stemninguna í salnum þegar þú ert að spila? „Ég efast um að allir átti sig á hversu salur og áhorfendur eru stór partur af tón- leikum. Maður finnur dagamun á þessu þegar maður gengur inn á svið. Stundum, og þannig var það í Hörpu, næst ótrúlega rafmögnuð hlustun. Þá er andinn líklegri til að koma yfir mann, þá geta óvæntir hlutir gerst. Þá er auðveldara að vera frjáls og að leyfa sér að nota allan skalann, spila með óræðari litbrigðin. Það er sjaldgæft en þeim mun skemmtilegra þegar manni tekst að koma sjálfum sér á óvart. Ég hef mikla þjálfun í að spila fyrir alls konar áheyrendur. Þegar ég var í námi í New York vorum við nemendurnir látnir fara á ýmsa staði í borginni til að spila. Ég spilaði til dæmis á sjórekin píanó, algjöra garma, í athvarfi fyrir heimilislausa. Í miðju Chopin-næturljóði sagði kannski einhver: Play something by the Stones og aðrir fóru að tala saman. Ég spilaði oft inni á lokuðum geðdeildum. Það var ótrúleg reynsla. Þrátt fyrir stöðugan óróa í salnum var kannski einn eða tveir sem lifðu sig inn í tónlistina. Þar lærði ég að það er sama hversu erfiðir áheyrendur geta ver- ið, það er alltaf einhver einn sem hlustar af athygli. Það er nóg.“ Gefandi samstarf við Kristin Þú ert á stöðugum ferðalögum að spila og býrð í Bretlandi. Ætlarðu að vera þar áfram? „Ég er mikið á flakki en er mikið í Ox- ford. Halla Oddný Magnúsdóttir, kær- astan mín, er í Oxfordháskóla en hún lýk- ur námi í sumar og þá flytjum við, líklega til Berlínar. Ég spila æ meira úti og minna á Íslandi. Þegar ég flutti frá Bandaríkjunum árið 2008 þekkti ég engan áhrifamann í tón- listarheiminum, nú hef ég hitt mun fleiri og það skapar allt annan veruleika. Ég er að fara að gera alls konar skemmtilega hluti. Ég hef til dæmis verið að vinna með skemmtilegum flytjendum í Skandinavíu og Þýskalandi, eins og Martin Fröst, sænska klarinettusnillingnum sem margir telja fremsta klarinettuleikara í heimi. Saman höfum við haldið tónleika í Svíþjóð og Þýskalandi með sænsku þjóðlagatríói þar sem við spinnum út frá sænskum og íslenskum þjóðlögum. Ég fæ stöðugt meira af spennandi verkefnum og svo margt er á döfinni að ég verð næstum stressaður að hugsa um það. Í júní held ég tónleika með Kristni Sig- mundssyni í Hörpu þar sem við flytjum Vetrarferðina eftir Schubert. Það verða okkar fyrstu tónleikar saman opinberlega. Það er óþarfi að fara mörgum orðum um raddfegurð og túlkun Kristins en sam- starfið er mér mjög gefandi, ég læri mikið af honum. Fátt er mikilvægara en að kunna að velja sér rétta fólkið til að vinna með, það er lykillinn að því að víkka sjón- deildarhringinn og fara skrefinu lengra en síðast. Vetrarferðin er verk sem ég hugsað um í tíu ár án þess að þora að spila opinberlega. Píanóleikarinn Dalton Baldwin sagði eitt sinn við mig að Vetrarferðina ætti að setja í samhengi við mestu listaverk manns- andans, eins og til dæmis Sixtínsku kap- elluna. Þetta er áhrifamikil tónlist, yf- irþyrmandi sterk. Vetrarferð einstæðingsins og vetrarferð Schuberts sjálfs sem samdi verkið 31 árs, þá hel- sjúkur og átti skammt eftir ólifað. Það verður mikil upplifun að flytja þetta verk í stóra sal Hörpunnar.“ Þú hefur fengið verðlaun og viður- kenningar og ert stjarna í tónlistarheim- inum. Hvernig bregstu við því? „Þegar maður hugsar um það sem best hefur verið gert þá verður maður alltaf jafn lítill og vanmáttugur. Mínar fyrir- myndir eru píanistar á borð við Sergei Rachmaninoff, Vladimir Horowitz og Glenn Gould. Ósjálfrátt miða ég mig við þá og það er mér ekki sérlega hagstætt. Svo er hægt að fara skrefinu lengra og bera sig saman við Chopin og Bach, í því samhengi er maður eins og lauf í vindinum. Kennari minn í Juilliard sagði eitt sinn við mig: „Ef þú ætlar að taka mikið mark á góðu gagnrýninni og hrósinu þá verðurðu líka að gjöra svo vel og taka jafn mikið mark á vondu gagnrýninni.“ Því betur sem ég kynnist tónlistarheiminum, sé ég að þeir listamenn sem lesa gagnrýni láta hana ekki hafa of mikil áhrif á sig. Mjög margir lesa hana hreinlega ekki. Þetta er hárfínt jafnvægi, maður er svo brothættur og berskjaldaður í tónlistinni, ég efast um hverja einustu nótu sem ég spila og þarf því að velja vel það hrós og krítík sem ég get lært af.“ ’ Í hvert sinn sem ég spila reyni ég að vera mjög frjáls í túlkun en vera samt innan mjög af- markaðs ramma. Þessu er hvað erfiðast að ná fram í verkum eftir Bach og Chop- in. Víkingur Heiðar: „Ég hef aldrei séð jafn stóran hóp af fólki vera jafn hamingjusaman og stoltan og þarna. Ég gleymi því seint.“ Morgunblaðið/Eggert

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.