Monitor - 10.02.2011, Side 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Dark Side of the Moon í Borgarfirði
Bjartur Guðmundsson, leikstjóri sýningar
Menntaskóla Borgarfjarðar
Um hvað er sýningin?
„Eins og platan þá fjallar leikritið um það hvað
það er sem lætur fólk í rauninni klikkast. Ekki
endilega verða geðveikt heldur hvaða hlutir
eru svo firrtir í samfélaginu að það ýtir því yfir
brúnina. Og við ætlum að skoða þetta svolítið
út frá leikhópnum, hvaða hlutir það eru í okkar
samfélagi sem eru svo firrtir að þeir fá mann til
að fara yfir mörkin.“
Hvers vegna ætti fólk að velja þessa sýningu?
„Í fyrsta lagi þá er þetta frábær tónlist. Platan
Dark Side of the Moon er enn þann dag í dag
þriðja söluhæsta plata í heimi og er alger
klassík. Tónlistin er hrikalega öflug og maður
fer í svakalega rússíbanaferð með því að hlusta
á hana. Í öðru lagi þá mun þessi sýning eiga
erindi við fólk í dag og þetta verður svolítil
ádeila. Þannig ég held að við munum bæði
hafa eitthvað fram á að færa og að þetta verði
bara dúndurgóð skemmtun!“
BJARTUR ER HRIFINN
AF TÓNLISTINNI
KAREN BJÖRG
ÞORSTEINSDÓTTIR
leikur Jóhönnu Öglu
í leikriti LMA
Aldur: 17 ára.
Braut: Félagsfræðibraut.
„Ég leik Jóhönnu
Öglu sem er í klíku
í skólanum sem
einkennist af því að
allir eru með mjög
fjölbreytt og fyrirferða-
mikið hár. Henni finnst
útlitið skipta meira
máli heldur en gáfur og
heldur að fallegt fólk
nái betri árangri.“
Áttu mikið sameigin-
legt með karakternum?
„Já, mjög mikið
reyndar. Hlutverkið
var eiginlega með mig
í huga eftir að ég fór í
prufu þannig við eigum
mjög mikið sameigin-
legt.“
Finnst þér þá útlitið
skipta meira máli en
gáfur?
„Nei, við eigum það
reyndar ekki sam-
eiginlegt!“
Átt þú einhvern tím-
ann slæma hárdaga?
„Nei, aldrei!“
Ætlarðu að halda
áfram í leiklist eftir
menntaskóla?
„Já, það er alveg
öruggt!“
Bryndís Rún Hafliðadóttir,
varaformaður Leikfélags MA.
Um hvað er sýningin?
„Þetta er þroskasaga stráks í 2. bekk
í MA. Sagan gerist daginn fyrir 18 ára
afmælið hans og hann hefur mjög stutt-
an tíma til þess að ákveða hvað hann á
að verða og við hvað hann vill vinna í
framtíðinni. Og honum finnst þetta allt
saman koma aðeins of fljótt.“
Hvers vegna ætti fólk að velja þessa
sýningu?
„Vegna þess að þetta verður besta
sýning sem MA hefur sett upp fram að
þessu.“
BESTA SÝNING MA,
SEGIR BRYNDÍS
KAREN SEGIST LÍKJAST
KARAKTERNUM SÍNUM
Leikrit: Bad Hairday (vinnuheiti).
Leikstjóri: Guðrún Daníelsdóttir (Garún).
Frumsýnt: 18. mars í Rýminu.
Leikrit: Dark Side of the Moon.
Leikstjóri: Bjartur Guðmundsson.
Danshöfundur: Birna Kristín
Ásbjörnsdóttir.
Frumsýning: 24. mars í hátíðarsal
Menntaskóla Borgarfjarðar.
Óstýrilátt
hár á Akureyri
ÓLAFUR BÝST VIÐ ROKK-
STEMNINGU Í BORGARNESI
Menntaskólarnir í landinu setja upp fjöl-
margar metnaðarfullar leiksýningar þetta
árið. Monitor heldur áfram að kynna sér þær.
ÓLAFUR ÞÓR JÓNSSON
formaður leiklistarfélags
Menntaskóla Borgarfjarðar
Er mikil aðsókn í leikfélagið?
„Já, hún hefur verið nokkuð mikil.
Það hafa verið um 40 manns að
taka þátt í fyrstu æfingunum.“
Leynist mikið af hæfileikafólki í
Borgarfirðinum?
„Já, það er mjög mikið af hæfi-
leikafólki hér.“
Áttu von á mikilli rokkstemningu
í bænum í kringum frumsýning-
una?
„Já, ég býst við því. Og ég býst
við því að mikið af eldra fólki sem
þekkir þessa tónlist muni flykkjast
á sýninguna. Bæði ungir og gamlir
munu geta samsamað sig með
verkinu.“
Hlustar þú á Pink Floyd?
„Já, mjög mikið. Hugmyndin
að þessari sýningu kom nú samt
upphaflega frá leikstjóranum.“
Það hafa allir upplifað svokallaða „slæma hár-
daga“ en það fyrirbæri, og fleira sem plagað
getur ungt fólk, kemur við sögu í leikritinu sem
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri setur upp í
ár. Verkið er frumsamið og gengur undir vinnu-
heitinu Bad Hairday en aðalsöguhetjan glímir
við stærri vandamál en óstýrilátt hár, nefnilega
hvert hann eigi að stefna í framtíðinni.
Borgfirðingar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en
þeir ætla að setja upp leikrit byggt á plötunni Dark Side of the
Moon eftir Pink Floyd. Leikritið er frumsamið af leikstjóranum
í samstarfi við leikhópinn og er að mestu leyti unnið í gegnum
spuna. Enn er drjúgur tími í frumsýningu og á eftir að skipa
í hlutverkin en aðstandendur segja sýninguna bæði verða
stórskemmtilega og vekja áhorfendur til umhugsunar.