Monitor - 10.02.2011, Blaðsíða 14
Kvikmynd Ég verð eigin-
lega að fá að nefna tvær
myndir. Það eru myndirnar
City of God og Eternal
Sunshine of the Spotless
Mind. Sú fyrri er bara eitthvað svo
góð og sú seinni er bara eitthvað svo
yndisleg.
Sjónvarpsþáttur
Breska og uppruna-
lega útgáfan af The
Office er bara það
besta sem nokkur maður
á þessari plánetu hefur
gert. Aldrei hefur nokkur
þáttur fengið mig til að
hlæja jafn mikið og líða
jafn illa á sama tíma.
Bók Ég verð bara að
viðurkenna það að
ég hef ekki lesið
bók í mörg ár. En
ég var alltaf mjög
hrifinn af Dagbók
Berts þegar ég var
yngri og átti allar bækurnar.
14 Monitor FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Síðast en ekki síst
» Valdimar Guðmundsson, tónlistarmaður, fílar:
LOKAPRÓFIÐ
fílófaxið
LIGHTS ON THE HIGHWAY
Café Rósenberg
21:00 Hljómsveitin Lights on theHighway kemur saman á
Rósenberg og hyggjast þeir syngja sig inn
í hjörtu viðstaddra. Aðgangseyrir er 1.000
krónur.
THE JIMI HENDRIX
PROJECT
Sódóma Reykjavík
21:00 Tónleikar þar sem hljóm-sveitin The Jimi Hendrix
Project flytur lög af plötunum Are You
Experienced, Axis: Bold as Love og Electric La-
dyland, sem allar eru úr smiðju Jimi Hendrix.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur en aðeins
verður tekið við reiðufé.
fimmtud10feb
skólinn
GRETA SALÓME OG
FÉLAGAR
Café Rósenberg
22:00 Fiðluleikarinn Greta SalómeStefánsdóttir blæs til tón-
leika ásamt 15 manna fylgdarliði. Þar verður
flutt ýmis konar tónlist, til dæmis kántrí,
sígaunatónlist og djass, en einnig verða
nokkur lög sungin. Miðaverð er 1.500 krónur.
STÓRTÓNLEIKAR TIL
STYRKTAR VINI
Faktorý
23:00 Hljómsveitin Who Knewblæs til tónleika til styrktar
vini sínum, Pétri Kristjáni Guðmundssyni,
sem nýlega lenti í alvarlegu slysi og er í end-
urhæfingu á Grensásdeild. Þeir njóta liðsinnis
félaganna í Retro Stefson og Of Monsters and
Men. Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
föstudag11feb
SÖNGVAKEPPNIN Á
STÓRA SKJÁNUM
Prikið
20:20 Prikið er með puttann ápúlsinum og sýnir beint
frá úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins á
stóra skjánum. Að því loknu tekur DJ Danni
Deluxe við.
A BAND ON STAGE
Café Rósenberg
22:00 Hljómsveitin A Band onStage flytur blandað prógram
þar sem meðal annars verða flutt lög eftir
nokkra þekktustu tónlistarmenn í heimi.
Hljómsveitin verður einnig með tónleika á
sama stað á sunnudagskvöld klukkan 21.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
GLYMSKRATTINN: VAGG-
ANDI OG VELTANDI
Sódóma Reykjavík
22:00 Rockabilly‘N‘Roll-kvöld ávegum X-ins 977 á Sódómu
þar sem fram koma The 59‘s, Langi Selur
& Skuggarnir, Blues Willis, Arnar Ingi (The
Johnny Cash Kid) og DJ Óli Dóri. Fjörið hefst
klukkan 22.
AFMÆLI TECHNO.IS
Faktorý
00:00 Techno.is heldur upp á sexára afmæli sitt og á sama
tíma fer fram árslistakvöld þeirra. Fram koma
Exos, Balrock (Plugg‘d), A.T.L, Invert, Richard
Cuella, Danni Bigroom og fleiri. Aðgangseyrir
er 1.000 krónur.
PÁLL ÓSKAR Á NASA
Nasa
00:00 Nasa fagnar 10 ára afmælisínu á þessu ári og stendur
af því tilefni fyrir afmælistónleikaröð. Fyrsti
listamaðurinn er poppstjarna Íslands, Páll
Óskar Hjálmtýsson, sem mun syngja öll sín
heitustu lög og þeyta skífum um nóttina.
Miðaverð 1.000 krónur og bjórinn á 500 kall.
laugarda12feb
SÓDÓMA
Föstudagskvöld
23:30
„Þetta verður vanskapað. Við tókum Ísafjörð og Akureyri um síðustu
helgi og nú förum við í rokkhosurnar. Við erum búnir að leggja einn
eða tvo lóka á Prikinu í gegnum tíðina, nú er kominn tími á Sódómu,“
segir Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem BlazRoca. Hljómsveitin
XXX Rottweiler verður með tónleika á Sódómu klukkan 23:30 á
föstudagskvöldið. Miðaverð er þúsund krónur og standa herlegheitin
yfir langt frameftir nóttu. „Samfés var að setja strangar reglur um
klæðaburð á dögunum. Það gerum við líka. Fólk má ekki vera í neinu
að neðan á tónleikunum,“ segir Erpur.
Úr að neðan með
Rottweiler
| 10. febrúar 2011 |
Plata For Emma, Forever Ago með
Bon Iver. Ég fæ bara ekki nóg af
þessari plötu. Get alltaf hlustað
á hana. Ég þurfti aðeins að melta
hana, en eftir það var ég farinn að
engjast með greyinu honum Justin
Vernon.
Vefsíða Ég skoða Youtube.com
alveg ofboðslega mikið og get
gleymt mér í marga klukkutíma
að horfa á kisuvídjó, hlæjandi
krakka og fyndin nagdýr. Ég
stunda Facebook líka synd-
samlega mikið og ætti í raun
bara að skammast mín.
Staður Paddy´s í Kefla-
vík. Einstaklega þægilegt
andrúmsloft sem minnir
á Cheers því allir þekkja
alla. Líka mjög
skemmtilegur
tónleikastaður.
Myndast yfir-
leitt rosalega
góð stemmning
á tónleikum.