Monitor - 24.03.2011, Page 14
14
söngleikur, farsi og við syngjum bara íslensk lög. Þetta
fjallar um þrjár kynslóðir fjölskyldna og ferðalag kvenna
á mismunandi tímum. Við höfum aldrei verið í söng-
leikjum eða försum þannig að við ákváðum að gera eina
með öllu upp á eigin spýtur.
Færð þú aldrei leið á að vinna með Vesturporti?
Nei, því við erum ekki alltaf sama fólkið að vinna
saman og hópurinn er stór. Þegar ég geri leiksýningar
má líka oft deila um hvar Vesturport endar og Borgar-
leikhúsið byrjar því ég hef sett upp nær allar sýningar
mínar í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Sérð þú fyrir þér að vinna við eitthvað
annað en leiklist í framtíðinni?
Alveg eins en miðað við planið núna gæti ég ekki hafið
það starf fyrr en eftir dálítið langan tíma. Ef ég ætti að
söðla algjörlega um myndi ég verða endurskoðandi.
Mjög gott tímakaup og ég væri til í að læra á þetta
flókna kerfi og reyna að ná til baka öllum þeim tíma og
peningum sem ég hef eytt í bókhald í gegnum tíðina.
Nú varst þú valinn kynþokkafyllsti
maður Íslands árið 2007. Finnur þú mikið
fyrir athygli frá kvenfólki almennt?
Alls ekki. Ég hef held ég gert þau mistök í gegnum árin
þegar ég fer út með vinum mínum að fara alltaf á sama
barinn. Maður er svo einangraður frá öllu og alltaf með
sama fólkinu svo þetta fer alveg framhjá mér. Þetta val
árið 2007 hefur verið mikið rætt í vinahópnum og viður-
kenningarskjalið hangir frammi á gangi hjá mér en ég
hef ekkert fengið viðurkenningu síðan þá. Kannski er ég
bara eins og bankarnir, bóla sem sprakk árið 2007.
Monitor FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Kannski er ég bara
eins og bankarnir, bóla
sem sprakk árið 2007.
Þetta hitti
greinilega vel
á enda var Rómeó og
Júlía nýbúin að slá
í gegn í London og
Nick Cave nýhættur
í heróíninu.