Monitor - 24.03.2011, Blaðsíða 17
17FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Monitor
Lesendur Monitor sem eru farnir að huga
að hjónabandi ættu að forðast eftirfar-
andi kvikmyndir eins og heitan eldinn.
Það þykir mikilvægt að plana allt vel
og stundum getur fólk farið yfir strikið í
undirbúningi og eftirvæntingu fyrir stóra
deginum. Hér koma nokkur misheppnuð
brúðkaup úr smiðju Hollywood.
Verstu
martraðir
brúðhjóna
Bride Wars (2009)
Saklaus samkeppni milli
vinkvenna um hver heldur
flottara brúðkaup er kannski
eðlileg en í þessari kvikmynd
fara þær Kate Hudson og Anne
Hathaway langt yfir strikið.
Báðar reyna að gera dag hinnar
að hreinni martröð og auðvitað
endar allt með ósköpum.
EKKI GIFTA ÞIG Á SAMA ÁRI
OG BESTA VINKONA ÞÍN.
Old School (2003)
Kvikmyndir sem sýna bestu
vini brúðgumans sem vitleys-
inga eru fjölmargar og í þessari
er það Vince Vaughn sem er
fíflið. Á brúðkaupsdegi vinar
síns, Will Ferrell, kemur hann
með hrikalega óviðeigandi
athugasemdir í athöfninni sem
enginn ætti að hafa eftir.
EKKI BJÓÐA VINUM BRÚÐ-
GUMANS SEM HATA HJÓNA-
BAND Í BRÚÐKAUPIÐ.
EKKI FÁ FÓLK Í ÁSTARSORG
TIL AÐ SKEMMTA Í VEISLUNNI.
The Wedding
Singer (1998)
Dagurinn er ónýtur
þegar þú færð Adam
Sandler í ástarsorg til að
syngja í veislunni. Nei-
kvæðnin og lög á borð
við Love Stinks eru ekki
málið við þetta tilefni.
Eftir að Drew Barrymore
kom til sögunnar lá
leiðin þó upp á við.
Four Weddings
And A Funeral (1984)
Fyrsta brúðkaupið af fjórum í þess-
ari klassísku gamanmynd klúðrað-
ist algjörlega þar sem presturinn
var enginn annar en Mr. Bean.
EKKI FÁ MR. BEAN TIL
AÐ GEFA YKKUR SAMAN.
The Hangover (2009)
Tilvonandi brúðir sem eru stressaðar yfir
síðustu dögum unnustans sem piparsveinn
ættu fyrir alla muni að forðast að horfa á
þessa mynd. Reyndar er mjög líklegt að
flestar konur hafi þegar séð myndina sem
er með fyndnari grínmyndum síðustu ára.
EKKI SENDA
UNNUSTANN Í
HELGARFERÐ
TIL LAS VEGAS
RÉTT FYRIR
BRÚÐKAUPIÐ.
Runaway Bride (1999)
Titillinn segir allt sem segja þarf.
Richard Gere reynir að giftast
hinni hjónabandsfælnu Juliu
Roberts sem elskar að yfirgefa
menn við altarið. Það er ekki
hughreystandi fyrir tilvonandi
brúðguma að horfa á þessa mynd.
EKKI TRÚLOFAST
EINHVERJUM SEM
YFIRGEFUR FÓLK
ÍTREKAÐ VIÐ ALTARIÐ.
Kill Bill (2003-2004)
Villt partí, lélegir prestar og hræðileg skemmtiatriði
í veislunni blikna í samanburði við brúðkaup Umu
Thurman í Kill Bill. Skotárás og viðurstyggilegt
ofbeldi gagnvart óléttri konu og brúðkaupsgestunum
er sennilega það versta sem gæti gerst í brúðkaupi.
EKKI ABBAST UPP Á
BILL OG FÉLAGA RÉTT
FYRIR BRÚÐKAUPIÐ.
The Graduate (1967)
Hjónabandsflækjur gætu fælt ástfangnasta fólk frá því að ganga í
hnapphelduna. Dustin Hoffman verður ástfanginn af giftri konu
og svo dóttur hennar sem er trúlofuð. Hann endar svo auðvitað
með að stöðva brúðkaup dótturinnar á dramatískan hátt.
EKKI EIGA Í
ÁSTARSAMBANDI
VIÐ MÓÐUR OG
DÓTTUR HENNAR.