Monitor - 24.03.2011, Qupperneq 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@monitor.is
stíllinn
Myndbandsverk Fatahönnunarfélags Íslands sem
unnið er í samstarfi við Saga Film og Inspired by
Iceland er eitthvað sem enginn má missa af.
SAMSETNINGIN
ER FALLEG
DÖKKIR LITIR
EINKENNA SÝNINGUNA
ULLARSOKKASKÓRNIR ERU
UPPFINNING STÍLISTANS
Nóg að sækja á
HönnunarMars
Hvernig á að
1Við byrjum í sturtunni. Keyptu þér hárnæringusem höndlar sérstaklega úfið hár. Það á að
standa „anti-frizz“ á hárnæringunni, eða „frizz
ease“. Stíllinn mælir með „Frizz ease“-vörunum frá
John Frieda. Þær fást t.d. í Hagkaup og eru flestar á
1.599 kr. Með því að nota svona hárnæringu, finnur
þú svakalegan mun á hárinu þínu.
2Hárblásari frekar en handklæði. Þegarþú kemur út úr sturtunni, reyndu þá
að forðast að nota handklæði til að þurrka
hárið, vegna þess að handklæðið á það til að rafmagna
hárið. Best er að dempa það aðeins með handklæðinu,
bursta það og blása.
3Góður hárbursti er fyrir öllu.Það skiptir miklu máli hvernig
hárbursta þú notar, þ.e. að hann sé ekki
illa farinn. Passa verður að broddarnir
í burstanum séu ekki brotnir. Taktu líka öll hárin úr
burstanum áður en þú greiðir þér.
ÞETTA GENGUR
ERFIÐLEGA
Stjörnurnar lenda nú oft í
því að velja sér vægast sagt
hræðilegan fatnað. Stíllinn
valdi nokkur tískuslys til að
deila með lesendum.
Tískuslys
Mjög undarleg
múndering hjá
fyrirsætunni
Gemmu Ward. Hins
vegar er kannski
frekar hægt að
þakka henni fyrir
það að minna á
að fyrirsætur geta
í rauninni ekki
komist upp með
að klæðast hverju
sem er!
Jessica Simpson
hlýtur að hafa
verið í skrítnu
skapi þegar hún
valdi sér kjól með
gulldoppum úti
um allar trissur,
fyrir utan vænu
skoruna sem hún
fékk ekki frítt.
En skemmtilegt
hlátursefni fyrir
aðra.
Rihanna er oft
og tíðum djörf
í klæðnaði, þá
sérstaklega í
myndböndunum
sínum.
Manneskjan hefur
þó sjaldan sést
jafn slæm. Getur
verið að hún hafi
litið í spegil og
hugsað með sér:
Djöfull er ég með
þetta?
Eflaust grunar
engan hvað vakir
fyrir Keishu, þá
aðallega þegar
hún ákvað að
klæðast þessu.
Sumir segja að
hún eigi tvífara í
Reykjavík, en enn
hefur tvífarinn
ekki fundist.
Leitinni verður
haldið áfram.
Taylor Momsen,
sem lék
ljóshærða
kjólastúlku í
Gossip girl er
umdeild, fatalega
séð. Hvort hún
eigi eitthvað
óuppgert við
sjálfa sig, þráir
athygli eða bara
fílar þennan
klæðnað veit
enginn.
Helgin verður spennandi og skemmtileg fyrir þá sem hafa
áhuga á hönnun og öllu tilheyrandi en þar verður hægt að
skoða nánar það sem íslenskir hönnuðir og arkitektar starfa
að. HönnunarMars er fjögurra daga hátíð, haldin í þriðja sinn
og er dagskráin ekki af verri endanum. Hátíðin hefst í dag og
verður fram á sunnudag. Meðal viðburða er sýning Fatahönn-
unarfélags Íslands. Sýningin felur í sér myndbandsverk en
þar mun sjást skemmtileg samsetning á hönnun íslenskra
fatahönnuða. Á sýningunni verður einnig til sýnis fatnaðurinn
sem notaður var í myndbandinu. Að sýningunni stendur
efnilegur hópur fólks, t.a.m., Laufey Jónsdóttir sem er listrænn
stjórnandi, Kristín Björgvinsdóttir sem er stílisti verksins, Erna
Einarsdóttir og Harpa Einarsdóttir, Ragnar Agnarsson leik-
stjóri og fleiri. Nánari upplýsingar um hönnunarmars má finna
í bæklingum á víð og dreif um Reykjavík en einnig á Fésbókinni
undir Fatahönnunarfélag Íslands eða HönnunarMars.
Það kannast allt síðhært fólk
við það hversu pirrandi það
er þegar hárið verður úfið og
tuskulegt. Maður reynir að
temja þetta óviðráðanlega fax
en án árangurs. Hér eru nokkr-
ar auðveldar aðferðir sem hægt
er að nota til þess að koma í
veg fyrir ástandið.
Myndir/Halla Einarsdóttir
höndla
úfið hár