Monitor - 24.03.2011, Blaðsíða 21
21FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Monitor
Ekkert nýtt
af nálinni
Unknown fjallar um mann sem
vaknar á sjúkrahúsi í Berlín. Það
eina sem hann man er að hann heit-
ir Dr. Martin Harris (Liam Neeson)
og að hann kom til Þýskalands til að
fara á ráðstefnu. Þegar hann vaknar
á hann erfitt með að muna hluti
og fljótlega kemur í ljós að annar maður þykist vera hann. Meira að
segja eiginkona Harris kannast ekkert við hann. Þynnka af verstu gerð.
Harris er því einn og yfirgefinn í Berlín en fær hjálp frá Ginu, sem leikin
er af Diane Kruger, en hún er flóttamaður frá Bosníu. Kruger talar með
austur-evrópskum hreim alla myndina og ég er tilbúinn að veðja þrota-
búi Landsbankans að hún mun ekki fá BAFTA-verðlaunin fyrir þennan
hreim. Bruno Ganz, sem lék einmitt Adolf Hitler svo eftirminnilega í
Downfall, er virkilega góður og minnir mann á það enn og aftur hvað
þýskir leikarar eru vanmetnir.
58 ára og grjótharður
Þetta er ágæt spennumynd og heldur manni allan tímann. Neeson
er klassa leikari og hann fer í smá Taken-fíling á köflum. Ef þú heldur
hins vegar að þú sért að fara að sjá aðra Taken-mynd verður þú fyrir
vonbrigðum. Það er samt gaman að sjá að Neeson er í rauninni orðinn
harðasti miðaldra maðurinn í Hollywood í dag. Svona
myndir þurfa samt að koma fram með eitthvað nýtt
til þess að slá í gegn. Mikil spenna byggist upp alla
myndina en svo þegar kemur að plottinu nær það
ekki að stuða mann almennilega. Plottið samanstend-
ur af hugmyndum úr mörgum myndum og menn
verða að koma með eitthvað bitastæðara til þess
að heilla fólk. Ef þú vilt sjá fína popp og kók mynd
skalt þú endilega skella þér á þessa en þú verður
búinn að gleyma henni í bílnum á leiðinni heim.
Unknown
K V I K M Y N D
Leikstjóri: Jaume
Collet-Serra
Aðalhlutverk: Liam
Neeson, Diane Kruger
og January Jones.
Lengd: 113 mínútur.
Tómas Leifsson