Monitor - 11.08.2011, Qupperneq 9
9FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011 Monitor
Myndarlegasti rauðhærði maður landsins,
Berndsen, er maðurinn á bak við sumarsmellinn
Úlfur úlfur sem sjálfur Bubbi hefur sagst stoltur
af. Næst á dagskrá hjá eitís-popparanum
er tilvonandi Eurovision-ævintýri
og heimsfrægð í Evrópu.
gður með þetta!“
v
ið
ta
li
ð
„torrentum“, þú getur fundið hana á einhverjum rússnesk-
um heimasíðum og eitthvað.
Þið Þórunn Antonía eruð að vinna að plötu þessa dagana
þar sem þú sest í stól pródúsents. Hvernig kanntu við þig í
því hlutverki?
Rosalega vel, það er æðislegt að vinna með henni, hún er
svo mikill snillingur. Maður kemur kannski með einhvern
grunn og svo kemur hún með sitt innlegg í þetta allt þannig
að ég er alls ekkert að segja henni nákvæmlega fyrir
verkum. Ég geri lag en hún kemur með texta og
sína laglínu, þetta er samstarf og hún er algjör
fagmaður. Við erum að gera popptónlist sem er
eiginlega erfitt að elska ekki.
Þú hefur lýst því yfir að þú stefnir á þátttöku
í Eurovision fyrir Portúgal í vor. Ertu byrjaður
að undirbúa það?
Ég er búinn að koma mér í tengsl við gæja
sem vinnur í portúgölsku tónlistarsenunni
þannig að ég ætla að reyna að búa til
einhverja grunna og fá einhvern portú-
galskan poppara til að syngja lagið. Ég sé
þetta þannig fyrir mér að ég væri á sviðinu
með einhvern kítar eða hljómborð með
einhverri þrususætri gellu eða gaur með
einhvern „hittara“.
Er þá bara heimsfrægð í Portúgal og
Þýskalandi á næsta leiti?
Ég ætla allavega að láta reyna
á tónlistina og ef það gengur
ekki upp þá fer maður
bara að vinna sem
bakari, kenna skák
eða í sjó-
mennskuna.