Monitor - 15.09.2011, Blaðsíða 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
Hafðu það aðeins betra
Námsmönnum í Námsvild bjóðast námsstyrkir,
bókastyrkir, fríar debetkortafærslur og margt fleira.
Handhöfum stúdentakortsins bjóðast einnig ýmis
sértilboð og afslættir svo þeir hafi það aðeins betra.
Kynntu þér Námsvild í næsta útibúi
eða á www.isb.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1
1
-
0
8
3
9
HLUTVERKIN SEM HEIMILDIR HERMA AÐ H
Það er oft og tíðum vandasamt verk fyrir leikara að vega
og meta hvaða tilboðum þeir eiga að taka eða hafna. Mon-
itor rifjar upp helstu tilfellin í Hollywood þar sem leikarar
höfnuðu tilboðum sem hefðu skráð þá á spjöld sögunnar.
GLÖTUÐ
GYLLIBOÐ
Er líf Travolta eins og konfektkassi?
JOHN TRAVOLTA SEM FORREST GUMP
Sama ár og Travolta sló í gegn upp á nýtt í myndinni Pulp Fiction kom út
mynd um hinn seina Forrest Gump sem Tom Hanks túlkaði á svo farsælan
hátt að hann landaði Óskarsverðlaunum annað árið sitt í röð. Í því samhengi
er afar athyglisvert að áður en Hanks var nefndur til sögunnar stóð til að
Travolta færi með titilhlutverkið en hann endaði á að hafna því en hann hefur
viðurkennt að hafa séð mjög eftir þessu tækifæri. Eflaust hefur hann ekki
getað gert sér í hugarlund þá hversu farsæl myndin yrði enda er lífið eins og
konfektkassi, maður veit aldrei hvernig mola maður fær.
Indiana Jones
með mottu
TOM SELLECK SEM
INDIANA JONES
Flestir kvikmyndaáhugamenn setja
samasemmerki milli fornleifafræð-
ingsins Indiana Jones og Harrison
Ford. Þegar félagarnir Steven Spiel-
berg og George Lucas stóðu í ströngu
við að velja leikara fyrir fyrstu
Indiana Jones-myndina var hinn
mottuprúði Tom Selleck fyrsta nafn-
ið á blað og á YouTube má meira að
segja sjá myndefni frá prufutökum
þar sem Selleck leikur fornleifafræð-
inginn á setti. Á sama tíma og verið
var að undirbúa umrædda mynd
fékk leikarinn tilboð um að leika
aðalhlutverkið í lögguþáttunum
Magnum P.I. sem voru vinsælir á
níunda áratugnum. Selleck varð
að velja á milli, enda áttu tökur á
þessum verkefnum að fara fram
á sama tíma, og eftir mikinn
valkvíða ákvað Selleck að
velja frekar lögguþættina,
sem eru sennilega hans
þekktasta verkefni í dag.
Raunin varð þó sú að
tökum á fyrstu seríu
Magnum P.I. var frestað
um hálft ár sem þýddi að
þegar öllu var á botninn
hvolft hefði Selleck náð
að leika í stórmyndinni auk
Magnum-þáttanna.
Skildi ekki handritið
SEAN CONNERY SEM GANDALF
Skoska kyntröllið Sean Connery hefur sagt að
þegar verið var að velja leikara í hinn goð-
sagnakennda þríleik, Lord of the Rings, hafi
verið leitað til hans upp á að leika Gandalf.
Connery, sem hafði aldrei lesið samnefnd-
ar bækur J. R. R. Tolkien hafnaði boðinu að
lokum á þeim forsendum að hann skildi
ekki handritið. Fregnir herma jafnframt að
ef Skotinn reynslumikli hefði tekið tilboðinu
hefði hann orðið 400 milljónum dollurum ríkari
vegna þess hve vel myndunum vegnaði.
Terminator án
þýska hreimsins?
O. J. SIMPSON SEM TERMINATOR
Þótt í dag þekki flestir O. J. Simpson fyrir
aðrar sakir en leiklistarhæfileika þá gerði
hann garðinn frægan á sínum tíma í
myndum eins og Naked Gun. Það sem
færri vita er að þegar til stóð að velja í
hlutverk fyrir myndina Terminator þá
lögðu framleiðendurnir upphaflega til að
Simpson yrði valinn í hlutverk Tortím-
andans. Tillagan var hins vegar felld því
menn óttuðust að leikarinn yrði ekki
tekinn nógu alvarlega sem morðingja,
segir sagan. Schwarzenegger, eins og
gervöll mannkind veit, túlkaði Tortím-
andann að lokum með eftirminnilegum
hætti en upphaflega var hann fenginn í
prufu sem hugsanlegur leikari til að leika
aðra persónu í myndinni, Kyle Reese.
MOTTAN HEFÐI PASSAÐ
VEL VIÐ HINN FRÆGA HATT
ÆTLI O.J. HEFÐI ORÐIÐ RÍKISSTJÓRI
LÍKA EF HANN HEFÐI LEIKIÐ TERMINATOR?
CONNERY ER MEIRA FYRIR AÐ
KLÆÐAST JAKKAFÖTUM EN HEMPU
VAR TRAVOLTA EKKI NÓGU SPRETT-
HARÐUR TIL AÐ LEIKA GUMP?