Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 15.09.2011, Qupperneq 21

Monitor - 15.09.2011, Qupperneq 21
21FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2011 Monitor Ein vinsælasta sería skotleikja á PlayStation 3 er Resistance serían, en hún hefur fylgt PlayStation 3 vélinni frá upphafi. Fyrir stuttu kom út þriðji kaflinn í þessari glerhörðu seríu sem hefur fjallað um baráttu mannkyns við hinar illvígu Chimera-geimverur. Þegar hér er komið við sögu hefur mannkynið hörfað í neð- anjarðarbyrgi og fara leikmenn í hlutverk hermanns- ins Joseph Capelli. Okkar maður hefur komið sér fyrir í byrgi í Haven, Oklahoma og býr þar með fjölskyldu sinni. Í upphafi leiksins bankar vísindamaðurinn Dr. Malikov á dyrnar og tilkynnir Joseph og hans fólki að Chimera-kvikindin séu komin í ruglið og ætli sér að frysta jörðina. Til að stoppa það þarf Joseph að fara til New York ásamt Dr. Malikov og taka þar þátt í mögn- uðum lokabardaga. Á leið sinni til New York þarf Joseph að berjast við allskyns kvikindi stór og smá, ferðast um mismunandi landssvæði og takast á við ýmsar aðstæður. Söguþráðurinn tekur á tilfinningum sögupersóna og skiptast þar á skin og skúrir. Resistance 3 er fyrstu persónu skotleikur þar sem vopnin eru í aðalhlutverki, en framleiðendur leiksins eru þekktir fyrir að gera þau skemmtileg og fjölbreytt. Meðal vopna í leiknum eru skammbyssa með sprengikúlum, sniper-riffill sem getur eytt óvininum á hraðan og öruggan hátt, haglabyssa sem getur búið til eldhaf, vélbyssa sem getur skotið í gegnum veggi og margt fleira. Hvert vopn er hægt að djúsa upp og gerist það sjálfkrafa með notkun, þannig að því meira sem vopnin eru notuð því öflugri verða þau. Stýringar leiksins eru eins og hugur manns og klárt að framleiðendur leiksins hafa eytt góðum tíma í að stilla þær. Auk þess að spila leikinn með hefðbundnum stýripinna geta leikmenn notað Move- stýripinnann til að moppa upp geimverurnar. Tveir geta spilað saman í gegnum söguþráð leiksins og er Resistance 3 einn besti „co-op”-leikurinn á Play- Station 3 í dag. Auk söguþráðarins er svo fullkomin netspilun þar sem allt að 16 geta barist í hinum ýmsu leikjum. Grafíkin í leiknum er kannski ekki sú besta sem við höfum séð á PlayStation 3, en samt mjög nálægt því. Leikurinn spilast líka í þrívídd fyrir þá sem hafa yfir slíkri græju að ráða og lúkkar hann mjög vel þannig. Hljóð og tónlist leiksins er í toppmálum og talsetningin í hæsta gæðaflokki. Resistance 3 sannar að þegar metnaður, öflug netspilun, góður söguþráður og sterk persónusköpun koma saman, þá verður fjör. Enda er Resistance 3 einn besti skotleikurinn á PlayStation 3 í dag. Ólafur Þór Jóelsson Tár, bros og trylltar geimverur Tegund: Skotleikur PEGI merking: 18+ Útgefandi: Sony Computer Dómar: Gamespot 8,5 af 10 / IGN 9 af 10 / Eurogamer 8 af 10 Resistance 3 TÖ LV U L E I K U R ALLT AÐ GERAST ALLA FIMMTUDAGA! Að horfa á myndband er góð skemmtun. Þá gildir einu hvarhorft er á myndbandið, það er notalegt að kíkja á vídjóliggjandi á sófanum heima í stofu, fljúgandi um háloftin í flugvél eða bara inni í skólastofu á lítilli og snoturri fartölvu. Flestir eru þó sammála um að mestur ljómi sé yfir bíómyndum sé horft á þær í kvikmyndahúsi. Bíó hefur nefnilega upp á svo margt að bjóða; mannlíf, popp og kók, hörkuhljóðkerfi ásamt hinni vinsælu þrívídd, svo eitthvað sé nefnt. Það vill verða þannig að meginþorriþeirra sem leggja leið sína í bíó kaupisér eitthvað til að japla á í sjoppu kvikmyndahússins, hvort sem það er vegna ávanans eða vegna nammigirndar. Undirritaður er sjálfur hluti af þessum hópi. Það er alltaf ákveðin stemning í þvíað ganga síðan inn í bíósal meðpopppoka í annarri og kókglas í hinni, svipast um eftir heppilegu sæti og jafnvel kunnuglegum andlitum í leiðinni. Eftir að maður hefur hlammað sér á vel valinn bekk í salnum fer, eins og gefur að skilja, helsta einbeiting manns í að fylgjast með bíómyndinni sjálfri en engu að síður hefur eftirfarandi skotist upp í kollinn á mér í undanförnum bíóferðum: Af hverju henda allir öllu rusli beint á gólfið inni í bíósal? Ég bið lesendur að taka því ekkiþannig að ég sé einhver siða-postuli eða samfélagsnöldrari, ég hendi popppokanum mínum alveg líka á gólfið í bíó. Þetta er enginn „þú myndir ekki stela bíl, þú myndir ekki henda rusli á gólfið heima hjá þér“-áróður, þetta er bara svolítið sem ég hef lengi velt fyrir mér. Af hverju er það eitthvað viðurkennt sport eða „eðlileg“ leið til að losa sig við rusl innandyra að henda því á gólfið? Það myndi enginn henda rusli beint á gólfið í strætó, heima hjá vini sínum, inni í skólastofu eða við matarborðið í einhverju matarboði. Er það vegna þess að það eru slökkt ljós í salnum og þá þykir öllum voða lúmskt rétt að vippa súkkulaðibréfinu á gólfið? Varla, því þetta þekkist ekki á tónleikum né í leikhúsi, allavega ekki í sama mæli. Hvers vegna þetta tíðkast er mér í raun hulin ráðgáta. Staðreyndin er sú að það eruruslatunnur í öllum helstukvikmyndasölum landsins og batnandi manni er best að lifa. Einu sinni þótti það eðlilegasti hlutur í heimi að reykja í bíl, heimahúsum og inn um allt og alla. Ég veit að það fær enginn lungnakrabbamein af því að henda rusli á gólfið, en þið skiljið hvað ég á við. Hugmyndin er einfaldlega sú að fólk prófi að nota ruslatunnurnar í bíóum og smám saman gæti það orðið kúl. Þangað til eru þessar ruslatunnur eiginlega bara eins og sólgleraugu innandyra, bara upp á lúkkið. Einar Lövdahl Gunnlaugsson einar@monitor.is ORÐ Í BELG Bíóin alveg í rusli E N N E M M / S ÍA / N M 4 7 6 7 6 Meira Ísland með Símanum á stærsta 3G neti landsins siminn.is Skannaðu kóðann eða sendu sms-ið M í 1900 og fáðu M-ið beint í símann þinn Skannaðu hérna til að sækja B arcode Scanner Meira Ísland M-ið er ómissandi ferðafélagi Meira Ísland Hafnarfjörður Greitt er samkvæmt gjaldskrá. Nánar á Siminn.is monitor@monitor.is

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.