Austri - 26.05.1978, Qupperneq 5
Egilsstöðum, 26. maí 1978
AUSTRI
5
Hitaveitan
Hitaveita er stærsta mál sveitarfélagsins í svipinn. Á myndunum hér að ofan sést yfir Urriðavatn og athafnasvæðið við borholuna. Á minni myndinni
er op borholunnar sem býður þess að lokinu verði lyft af og ylurinn fari að streyma frá henni.
Nú er komin frumáætlun um hita-
veitu fyrir Egilsstaðahrepp unnin af
verkfræðistofu Sveins Þórarinssonar
og Guðmundar G. Þórarinssonar. í
áætluninni er að finna margvísiegar
upplýsingar varðandi framkvæmdina
og eru niðurstöður hennar byggðar
á upplýsingum frá sérfræðingum
Orkustofnunar sem séð hafa um bor-
un og athugun á holunni. Þó verður
að taka þessar athuganir með nokkr-
um fyrirvara, þar sem ekki er búið
að fullrannsaka holuna og fá út hvað
hún gefur mikið vatnsmagn og hvaða
hitastig hún gefur.
Reiknað er með að fáist 30 sek-
úndulítrar af 65 - 70 gráðu heitu
vatni.
Aðveituæðin er 5.3 km. á lengd og
stofnæðar í dreifikerfi 8.6 km. Vænt-
anlega verða notaðar einangraðar
stálpípur á steyptum stöplum.
Heildarkostnaður við framkvæmd-
ina er áætlaður 377 miljónir ki'óna,
og hafa þá verið teknar inn 40 mil-
jónir sem er borunarkostnaður við
holu númer 4, búnaður við borholu,
háspennulína, dælustöð, vatnsmiðlun-
argeymir, aðveita og dreifikerfi.
Fram kemur að hitaveitan er mjög
hagkvæm framkvæmd því samkvæmt
greiðsluyfirliti áætlunarinnar skilar
hún greiðsluafgangi strax á fyrsta
ári, þegar afborganir, vextir og rek-
sturskostnaður hefur verið dreginn
frá tekjum, þó mismunandi mikill
eftir því hver lánakjörin eru.
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í
Valaskjálf föstudaginn 2. júní og liefst kl. 20.00
Ólafur Jóliannesson dómsmálaráðherra heldur
ræðu of: svarar fyrirspurnum fundarmanna.
Ávörp flytja:
Halldór Ásgrímsson, alþingismaður
Jón Kristjánsson, verslunarstjóri
Alrún Kristmannsdóttir, skrifstofum.
Fundarstjóri:
Vilhjálmur Hjáhnarsson, menntamála-
ráðherra.
Fundurinn er öllum opinn.
Kjördæmissamband Framsóknarmanna
Austurlandi.
I
!