Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 9

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið í dag 10-16 Gleðilega páska www.gisting.dk/gisting.html sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer) Ódýr gisting í Kaupmannahöfn Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Fermingarmömmur og -ömmur Glæsilegur sparifatnaður • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is HREIN SNILLD Drjúgt, fjölhæft og þægilegt... Gott á: gler plast teppi flísar stein ryðfrítt stál fatnað áklæði tölvuskjái omfl. ATH. frábært á rauðvínsbletti og tússtöflur S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is Opið í dag í Bæjarlind 6, 10-16 sími 554 7030 Lokað í Eddufelli www.rita.is NÝ SENDING Skokkur m/bol Kjóll kr. 11.900 fleiri litir str. 40-58 Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-16 Nýjar vörur Glæsilegar stuttkápur Verð 19.900 Gallajakkar • Bolir Útsalan heldur áfram, enn meiri lækkun Laugavegi 63 • S: 551 4422 VOR YFIRHAFNIRNAR KOMNAR OPIÐ Á LAUGARDAG 10-16 Eftir Gunnlaug Auðun Árnason Stykkishólmur | Það voru óvenju- legir tónleikar sem Hólmurum var boðið upp á fyrir skömmu. Nem- endur 10. bekkjar grunnskólans tóku sig saman og æfðu, útsettu og fluttu fjölbreytta tónlistardagskrá. Tilgangur sýningarinnar var fjár- söfnun fyrir ferðasjóðinn, en bekk- urinn ætlar í vor að heimsækja jafn- aldra sína í Kolding í Danmörku. Í haust kviknaði sú hugmynd að halda tónleika þar sem eingöngu nemendur bekkjarins kæmu að. Mikill samhljómur myndaðist í bekknum og nemendur tóku hönd- um saman og vildu sýna hvers þeir væru megnugir þegar viljinn væri til staðar. Æft af kappi Æfingar hófust fyrir jól og síðan hefur verið æft af kappi. Það þurfti að velja lög og hljóðfæri og útsetja. Allt vildu nemendurnir gera sjálfir og tókst þeim það hjálparlítið. Krakkarnir komust að því að það var meira verk en þeir héldu í fyrstu. En það dró ekki úr þeim kjarkinn því þeir ætluðu að ná sínu markmiði. Margir nemendur í bekknum hafa stundað nám við tónlistar- skólann og kom í ljós á tónleik- unum að þeir hafa náð mikilli færni á sín hljóðfæri. Tónleikarnir voru góð skemmt- un. Fjöldi gesta mætti og fylgdist með þessu framlagi nemendanna. Flytjendur voru að vonum ánægð- ir með undirtektirnar og sáu ekki eftir þeirri fyrirhöfn sem þeir þurftu að leggja fram. Þau fundu það líka að samheldnin innan bekkjarins hafði aukist mikið við að takast á við þetta skemmtilega en um leið krefjandi verkefni. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Dugleg Nemendur 10. bekkjar tóku sig saman og héldu alvöru tónleika þar sem þeir voru í öllum hlutverkum. Allir sem einn tóku þátt  Grunnskólanemar í Stykkishólmi stóðu fyrir tónleikumEftir Líneyju Sigurðardóttur Þórshöfn | Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga fékk veglega gjöf fyrir skömmu en það var vandaður skoð- unarbekkur, sem leysir af hólmi annan sem kominn var allmjög til ára sinna. Gefandinn er Ísfélag Vestmannaeyja, sem á og rekur Hraðfrystistöðina og verksmiðju hér á staðnum. Andvirði gjaf- arinnar um hálf milljón króna og sá heilsugæslulæknirinn Haraldur Tómasson um val á bekknum. Fyrir heilbrigðisstofnunina eru slíkar gjafir og velvilji alltaf mikils virði, ekki síst á tímum þegar nið- urskurður og samdráttur blasir við í heilbrigðiskerfinu. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Saman Starfsfólk Ísfélags og Heil- brigðisstofnunar við nýja bekkinn: Elfa Benediktsdóttir, Ásta Þór- arinsdóttir, Haraldur Tómasson læknir og Rafn Jónsson, Ísfélagi. Góð gjöf á heilbrigðis- stofnunina SJÖFN Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla – Landssamtaka foreldra, afhenti menntamálaráð- herra í vikunni fyrstu eintök af lestrarbókum SAFT um örugga og jákvæða netnotkun fyrir börn og er tilgangurinn með bókunum að kynna yngstu leshópunum netið. Afhendingin fór fram í leikskól- anum Sólbrekku á Seltjarnarnesi. Höfundur bókanna, Þórarinn Leifs- son, var einnig viðstaddur afhend- inguna. Bókunum verður dreift sem gjöf á alla leik- og grunnskóla landsins. Lestrarbækurnar eru þrjár og ætlaðar börnum í fyrsta, öðrum og þriðja bekk grunnskóla og elstu árgöngum leikskóla. Öryggi Höfundur og menntamála- ráðherra voru við afhendinguna. Börn læra um netið AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.