Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 93. DAGUR ÁRSINS 2010 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Horfin stúlka fannst látin á heimili sínu 2. Barn lést meðan foreldrarnir spiluðu... 3. Slasaðist á Fimmvörðuhálsi 4. „Þetta eru hryðjuverkamenn“  Sólóplata Jónsa, Go, streymir nú í heild sinni á netinu á opinberum síð- um. Formlegur útgáfudagur er á mánudaginn, 5. apríl. Streymið má nálgast á myspace og npr. Allt fram streymir hjá Jónsa  Radíusbræður, þeir Steinn Ár- mann Magnússon og Davíð Þór Jónsson, munu snúa aftur á litla svið Borgarleik- hússins 24. apríl næstkomandi. Munu þeir vinna með tvö uppistönd eftir Ricky Ger- vais sem kallast Pólitík og Villdýr. Davíð Þór Jónsson segist ekki útiloka að umsvif bræðranna verði meiri í kjölfarið. »44. Radíusbræður og Gervais  Páskamarkaður Styrmis verður haldinn í dag á Barböru. Styrmir er íþróttafélag sem stofnað var í þeim tilgangi að hvetja samkyn- hneigða til íþróttaþátttöku. Styrmir mun taka þátt í stóru íþróttamóti í Köln í ágúst næstkom- andi og mun allur ágóði af vöru- og veitingasölu ganga upp í ferðakostn- að vegna mótsins. Páskamarkaður Styrmis á Barböru FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan- og norðaustanátt, víða 5-10 m/s en hvassari á stöku stað. Dálítil él N-lands en léttskýjað að mestu syðra. Veðrið um páskana Norðvestlæg átt, 10-18 m/s á annesjum N-lands. Snjókoma eða él. Víða bjart S- og V- lands. Hiti 0 til 3 stig S- og V-lands. Á páskadag verða vestlægar átti ríkjandi með éljum vestanlands. Frost 0 til 6 stig. Annan í páskum er gert ráð fyrir slyddu SA-lands. Mikil eftirvænting ríkir í Reykja- nesbæ eftir að ljóst varð að grann- liðin Keflavík og Njarðvík mætast í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Njarðvík lagði Stjörnuna og Keflavík sigraði Tindastól í odda- leikjum 8-liða úrslitanna í fyrrakvöld. Fyrsta rimma Suðurnesjastórveld- anna fer fram í Keflavík á mánudags- kvöldið. »4 Grannaslagur fram- undan í körfuboltanum Það er víða pott- ur brotinn í kvennafótbolt- anum. Íslensku landsliðskonurnar kynntust því í Króatíu og Serbíu að vanvirð- ing og neikvætt viðhorf kom fram í ýmsum myndum. Þá vöktu slakir dómarar athygli. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari er ósamþykkur þeirri stefnu UEFA að konur eigi að dæma hjá konum. »3 Vanvirðing og slakir dómarar Kylfingurinn Stefán Már Stefánsson hefur ver- ið á ferð og flugi undanfarnar vik- ur og mánuði. Hann hefur keppt á mótum í þremur heimsálfum eftir áramótin og ætlar sér að spila á þýsku mótaröð- inni fram á haustið. Þá hyggst hann glíma við úrtökumót fyrir Evrópumóta- röðina. »2 Hefur keppt í þremur heimsálfum á árinu Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is SAMKVÆMT formlegri skráningu er jeppinn sem Hafsteinn Reykjalín í Kópavogi á Willys JC 5, árgerð 1947. Í tímans rás hefur bílnum hins vegar verið breytt með ýmsu móti svo úr hefur orðið nokkurs konar blanda bíla af ýmsum teg- undum. „Hvar sem ég fer vekur bíllinn athygli. Svo er hann líka skemmtilega kraftmikill svo að ég verð nánast sautján ára aftur þegar ég fer í bíltúr,“ segir Hafsteinn. Góður í heyskapnum Á eftirstríðsárunum var mikill fjöldi Willys-jeppa fluttur til lands- ins, enda eru þeir hentugir sem landbúnaðartæki. „Við pabbi keypt- um þennan bíl í sameiningu árið 1956 þegar ég var sextán ára. Þar sem ég ólst upp á Hauganesi við Eyjafjörð var ansi hentugt að vera með svona jeppa, enda voru allir með sjálfsþurftarbúskap og því var gott að nota Willys í heyskapnum, til að komast í kaupstaðinn, á böllin og hvaðeina,“ segir Hafsteinn. Þegar fram liðu stundir var jepp- anum lagt svo hann fór að grotna niður. „Ég flutti suður en vissi allt- af af bílnum heima á Hauganesi. Í einhverri ferðinni norður, líklega í kringum 1985, ákvað ég hins vegar að kippa jeppanum með mér suður og hóf í famhaldinu endursmíði hans í bílskúrnum. Setti undir hann nýjar hásingar og drif og 350 cb vél, miklu stærri og aflmeiri en þá upprunalegu. Einnig nýja sjálf- skiptingu. Þá var húsið á bílnum farið að ryðga svo ég fór inn í Vökuport og fann þar ágætt hús af Bens-fólksbíl. Ég logskar það af, sneið til og festi síðan á Willysinn og það kom bara ljómandi vel út,“ segir Hafsteinn. Breiðdekkjaður í jöklaferðir Jeppinn er á 38 tommu breið- dekkjum og hentar því því vel til aksturs á snjó. Ferðirnar til dæmis yfir Langjökul, Skjaldbreið og fleiri fjöll sunnan heiða eru ófáar og eins veiðitúrarnir á sumrin. Oft lenda menn þá í slarki. En aldrei klikkar Willysinn – sem Hafsteinn er búinn að eiga í 54 ár og ætlar að nota áfram og stefnir á ferðalag á Eyja- fjallajökul að gosstöðvum nú um páskana. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jeppamaður Hafsteinn Reykjalín við jeppann, sem klikkar aldrei þrátt fyrir að vera kominn til ára sinna. Ætlar að eldgosinu á 63 ára gömlum Willys-jeppa NORRÆNA vatnslitasafnið var í liðinni viku valið Besta safn Svíþjóðar árið 2010. Bera Nor- dal stýrir safninu sem þykir í fremstu röð fyrir sýningar á heimsmæli- kvarða og einnig fyrir rannsóknir og menntun. „Safnið er tíu ára í júní og þessi viðurkenning er besta afmælisgjöf sem við gátum fengið,“ segir Bera. Í úrskurði dómnefndar kemur fram að safnið hafi náð fram- úrskarandi árangri í að vekja at- hygli almennings á þeirri breidd og gæðum sem finna megi í vandaðri vatnslitalist, auk þess sem það hafi náð að viðhalda miklum vinsældum meðal gesta. Með starfinu í safninu hafi tekist að umbreyta nærsam- félaginu. Bera ræðir safnið og listina í Sunnudagsmogganum. Bera stýrir besta safninu Bera Nordal „ÉG á Kvenna- smiðjunni mikið að þakka,“ segir María Sif Erics- dóttir. Eftir vímuefnaneyslu frá unglings- árum náði María Sif fótfestu í Kvennasmiðj- unni sem er sam- starfsverkefni Tryggingastofn- unar og velferðarsviðs Reykjavík- urborgar. Frá því úrræðið var sett á laggirnar 2001 hafa 110 konur í þrettán hópum lokið námi. Mark- miðið er að auka lífsgæði einstæðra mæðra sem búa við félagslega erf- iðleika og styðja þær til sjálfs- bjargar. Úrræðið þykir hafa heppn- ast vel en það er kynnt sérstaklega nú í tilefni Evrópuársins 2010 sem helgað er baráttu gegn fátækt og félagslegri einangrun. | 4 Kvennasmiðja heppnast vel Maria Ericsdóttir ásamt börnum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.