Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 40
40 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Sudoku Frumstig 8 3 7 4 7 6 2 5 4 6 7 2 9 5 8 4 7 2 4 7 4 8 9 5 6 3 3 5 2 4 8 1 6 8 6 3 7 3 5 6 6 1 9 3 2 7 8 5 8 1 8 6 4 7 6 4 1 8 2 7 8 3 2 2 8 4 6 7 9 7 3 4 9 6 7 9 8 7 2 4 3 5 1 9 6 8 5 3 1 6 8 9 4 7 2 9 6 8 2 4 7 5 1 3 2 8 6 1 9 3 7 4 5 4 9 3 7 2 5 6 8 1 1 5 7 8 6 4 2 3 9 3 1 5 4 7 2 8 9 6 6 4 2 9 1 8 3 5 7 8 7 9 5 3 6 1 2 4 9 4 8 7 5 6 2 3 1 1 7 2 9 3 8 6 5 4 3 5 6 1 4 2 8 7 9 7 2 1 3 6 9 5 4 8 6 9 4 8 7 5 1 2 3 8 3 5 4 2 1 9 6 7 2 8 7 6 9 4 3 1 5 5 1 3 2 8 7 4 9 6 4 6 9 5 1 3 7 8 2 3 2 1 8 7 5 9 4 6 6 9 4 3 2 1 7 8 5 8 5 7 6 9 4 1 3 2 2 1 9 5 3 8 4 6 7 5 7 8 9 4 6 3 2 1 4 3 6 2 1 7 5 9 8 7 6 3 1 8 9 2 5 4 9 4 5 7 6 2 8 1 3 1 8 2 4 5 3 6 7 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 3. apríl, 93. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.) Víkverji er enn að reyna að geraupp við sig hvort hann eigi að fá sér páskaegg eða ekki. Páskaeggin eru girnileg ásýndar og það fylgir því skemmtileg stemning að opna þau, gægjast inn og finna málsháttinn og brjóta svo fyrsta bitann. En þá byrja líka vonbrigðin, því aldrei skulu páskaeggin standa undir væntingum Víkverja, þau eru bara alls ekki góð. x x x Reyndar er ekki alveg að markaVíkverja því hann verður sífellt vandlátari á sælgæti og hefur raunar áhyggjur af því að hann sé að missa hina svokölluðu „sætu tönn“ eins og Bretar kalla smekkinn fyrir sætind- um. Eitt sinn var það þannig að þegar Víkverji fór út að borða leit hann fyrst á eftirréttarseðilinn og valdi sér svo aðalrétt í samræmi. x x x Nú orðið er Víkverji hinsvegar oftspenntari fyrir forréttinum og sama hversu mikið hann reynir að magna upp löngun í einhvern dísætan eftirrétt þá tekst það ekki. x x x Áhuginn á kökum virðist nefnilegahafa gufað upp að miklu leyti. Það sem af er páskum hefur hann far- ið í tvær fermingarveislur, í hinni fyrri var matur en í hinni seinni var, Víkverja til mikilla vonbrigða, ein- göngu boðið upp á kökur. Þetta varð til þess að Víkverji fór svangur heim. x x x Reyndar hefur Víkverji alltaf veriðog er enn afskaplega hrifinn af súkkulaðikökum. Hann er hinsvegar hættur að sætta sig við hvaða súkku- laðiköku sem er og ef þær eru ekki akkúrat eins og Víkverji vill hafa þær þá gufar áhuginn fljótt upp og Vík- verji klárar sneiðina aðeins fyrir kurteisis sakir. Að sumu leyti er þetta áhugaleysi um sætindi fagnaðarefni en stundum saknar Víkverji þess samt að hafa ekki ólma löngun til að svelgja í sig sætindin sama hverrar gerðar þau eru. Það á til dæmis við um páskaegg- in, því án þeirra eru páskarnir hálf- tómlegir. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 neyðir, 4 þekkja, 7 kostnaður, 8 aula, 9 held, 11 hófdýrs, 13 forboð, 14 hrópa, 15 drepa, 17 húðfellingu, 20 elska, 22 duglausi mað- urinn, 23 báran, 24 sér eftir, 25 kaldur vindur. Lóðrétt | 1 bein, 2 and- blærinn, 3 vært, 4 skikkja, 5 minnast á, 6 sleifin, 10 skriðdýrið, 12 keyra, 13 hryggur, 15 ól, 16 kaldur, 18 bál, 19 stíl- vopn, 20 flanar, 21 nöld- ur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 stirðbusi, 8 gæðum, 9 lugta, 10 ról, 11 syrgi, 13 akrar, 15 hafts, 18 argar, 21 tel, 22 glata, 23 detta, 24 skapanorn. Lóðrétt: 2 tíðar, 3 rúmri, 4 bulla, 5 sægur, 6 uggs, 7 gaur, 12 gat, 14 ker, 15 högl, 16 flakk, 17 stapp, 18 ald- in, 19 gætir, 20 róar. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. O-O Be7 8. Kh1 Dc7 9. f4 Rc6 10. Bf3 Bd7 11. Be3 Hc8 12. g4 h6 13. Hg1 b5 14. a3 Ra5 15. g5 hxg5 16. Hxg5 Rc4 17. Bc1 e5 18. Rf5 Bxf5 19. exf5 e4 20. Bg2 Kf8 21. b3 Rb6 22. Bb2 d5 23. Dd2 Hh4 24. Hf1 Rg4 25. Rxd5 Hxh2+ 26. Kg1 Bc5+ 27. Bd4 Rxd5 28. Hxg4 Hh7 29. Hg3 Staðan kom upp í seinni hluta Ís- landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla í Reykjavík. Stefán Bergsson (2070) hafði svart gegn Matthíasi Péturssyni (1932). 29… Rxf4! 30. Hxf4 Bxd4+ 31. Kf1 hvítur hefði einnig tapað eftir 31. Dxd4 Dxf4. 31… Be5 32. Db4+ Bd6 33. Dxe4 Bxf4 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Göslarar. Norður ♠-- ♥10943 ♦ÁD8 ♣ÁD10932 Vestur Austur ♠G63 ♠109875 ♥KG652 ♥D7 ♦1053 ♦974 ♣G6 ♣K54 Suður ♠ÁKD42 ♥Á8 ♦KG62 ♣87 Suður spilar 6G. Þeir fóstbræður, Helness og Hel- gemo, spila opið og lausbeislað kerfi. Það dugir þeim jafnan vel á lægri sagn- stigum, en slemmutæknin er brokk- geng. Í þessu spili Vanderbilt-úrslitanna enduðu þeir í 6G, sem er vægast sagt hræðileg slemma og steindauð með hjartaútspili. Sagnir þróuðust þó skyn- samlega framan af: Opnun á 1♠ hjá Hel- gemo í suður, svar á 2♣ og svo 2♦ hjá opnara. Nú meldaði Helness fjórða lit- inn, sagði 2♥, sem í þessari stöðu neitar góðri grandfyrirstöðu. Helgemo sagði 2G og Helness lyfti í 3G. Með 17 punkta taldi Helgemo að hann yrði að gera meira og sagði 4♠ – eins konar slem- muáskorun með góðan spaða. Þá tók Helness undir sig stökk í 6G. Tveir niður? Nei, Levin í vestur þorði ekki að hreyfa hjartað og lagði af stað með ♣G!? (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ekki hafa svo miklar áhyggjur af öllum sköpuðum hlutum að þú komir engu í verk. Láttu það eftir þér að vera ein/n með sjálfum/sjálfri þér í dag. (20. apríl - 20. maí)  Naut Einhver mál koma upp á yfirborð- ið. Vandaðu því vel mál þitt svo að ekki þurfi að koma upp misskilningur að ástæðulausu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Stöðugleiki er þín sterka hlið, en þér finnst líka stundum sem þú sért að springa. Þú sérð fram á rólegri daga. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú færð góðar hugmyndir í dag um það hvernig þú getur nýtt orku ann- arra til að gera gagn. Haltu þínu striki því sumum er ekki sjálfrátt vegna eigin mistaka. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nýjar hliðar á vandasömu verkefni krefjast allrar þinnar athygli og atorku. Þú átt erfitt með að einbeita þér að vinnunni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Í dag væri ekki vitlaust að leiða til lykta vandamál tengd samskiptum við hið opinbera. Reyndu að leita skjóls frá kröfum annarra og hvíla þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú finnur þig bæði í að vera leið- togi og sem hluti af hópnum. Með yf- irvegun vinnur þú best. Láttu slag standa. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú veist ekki af hverju en þú ert eitthvað óákveðin/n í dag. Komdu jafnvægi á hugann svo þú getir komið einhverju í verk. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú vilt sjá árangur erfiðis þíns og þá er ekki við neinn annan að tala en sjálfan þig. Einhver kemur þér til bjargar í erfiðum aðstæðum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Óþroskað fólk sem tekur meira en það gefur rænir þig tíma og krafti þegar til langs tíma er litið. Sýndu öðrum þolinmæði og reyndu að sýna meiri skilning og umburðarlyndi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Sumir leita til þín með mál sín í fullri alvöru, en svo eru þeir, sem eru bara að tékka á skoðunum þínum. Varðandi gamla ást: um leið og þú gleymir henni þá minnir hún á sig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft að fá frí frá miklum önnum. Njóttu þess sem þú hefur. Hugsun þín er skýr og þú ert tilbúin/n til að sökkva þér niður í hlutina. Stjörnuspá 3. apríl 1939 Gengi íslensku krónunnar var fellt í fyrsta sinn. Sterlings- pund kostaði 27 krónur í stað 22,15 kr. áður. 3. apríl 1943 Listamannaskálinn við Kirkju- stræti í Reykjavík var vígður við hátíðlega athöfn og opnuð „fjölskrúðugasta listasýning eftir íslenska myndlistarmenn er sýnd hefir verið til þessa,“ eins og sagði í Morgunblaðinu. Skálinn var rifinn árið 1968. 3. apríl 1984 Hundahald var leyft í Reykja- vík, að uppfylltum ströngum skilyrðum. Það hafði verið bannað haustið 1971. 3. apríl 1997 Gústaf Bjarnason handknatt- leiksmaður setti met í marka- skorun í landsleik gegn Kín- verjum, skoraði 21 mark. Ísland vann 31:22. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Hákon Sig- tryggsson tækni- fræðingur og fyrrverandi starfsmaður Vegagerðar rík- isins verður ní- ræður mánudag- inn 5. apríl. 90 ára Helga Rún Gunnlaugsdóttir, Aníta Guðrún Sigurðardóttir og Ágústa Sigurðardóttir héldu tom- bólu og söfnuðu kr. 2.998 fyrir börnin á Haítí, sem þær afhentu Ár- nesingadeild Rauða krossins. Hlutavelta „ÉG er enn ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera í tilefni dagsins, þ.e. hvort ég eigi að halda partí eða bara fara með einhverjum út að borða,“ segir Halla Kristín Einarsdóttir, kvikmyndagerðarkona, sem ætlar að njóta þess í páskafríinu að liggja í leti og lesa góðar bækur ásamt sex ára gamalli dóttur sinni. Spurð um eftirminnileg afmæli nefnir Halla af- mælisveislu sem vinir hennar skipulögðu til að koma henni á óvart. „Þannig var að ég hélt ekkert upp á 30 ára afmælið mitt og þegar ég varð 31 árs ákváðu vin- ir mínir að halda upp á 30 ára afmælið með óvæntri afmælisveislu,“ segir Halla og tekur fram að vinum hennar hafi al- gjörlega tekist að plata hana upp úr skónum, dressað hana upp og látið hana halda að hún væri aðeins að gera vinkonu sinni greiða með því að sitja fyrir í myndatöku og þannig skilað henni á partístaðinn algjörlega grunlausri. „Sem barni þótti mér alltaf leiðinlegt þegar afmælið mitt bar upp á páskadag því þá fékk maður ekkert nema páskaegg. Ég hef hins vegar aldrei verið neinn sérstakur súkkulaðifíkill,“ segir Halla og nefnir sem dæmi að þegar hún varð 7 ára hafi hún fengið 11 páskaegg í afmæl- isgjöf sér til lítillar ánægju. silja@mbl.is Halla Kristín Einarsdóttir 35 ára Enginn súkkulaðifíkill Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.