Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 10
10 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Vissulega kveiktu þessirsjónvarpsþættir á sínumtíma einhvern áhuga envið vitum reyndar að ekki er allt samkvæmt raunveruleik- anum þar. Við sjáum okkur því kannski ekki fyrir okkur í öllu því drama sem þar fer fram. En við vorum bæði ákveðin í því strax í lok grunnskóla að fara í lækn- isfræði,“ segja læknar framtíð- arinnar, þau Anna Mjöll Matthías- dóttir og Hlynur Indriðason. Þau eru bæði á lokaári í Mennta- skólanum í Reykjavík og ætla að þreyta inntökuprófið í læknisfræði við Háskóla Íslands í sumar. Þau eru í bekk sem tilheyrir Nátt- úrufræði 1, en sú deild hefur af gárungunum verið kölluð Litla læknadeildin, vegna þess að margir fara þaðan yfir í læknisfræðina. Þau játa fúslega að hafa valið að fara í MR og í þessa deild einmitt af því að þau vissu að hún væri góður undirbúningur fyrir há- skólanám á heilbrigðissviðinu. Anna Mjöll hefur meira að segja keyrt daglega á milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar undanfarin fjögur ár til að stunda námið í MR. Aðeins 48 af 300 komast inn „En það er alls engin ávísun á að ná inntökuprófinu þótt við komum úr þessari deild. Í fyrra var hlutfall MR-nemenda sem komust inn, mun minna en venjulega, en það eru ein- ungis teknir inn 48 nemendur af þeim 300 sem reyna hverju sinni. Þetta er því augljóslega harður slagur. En við lítum á það sem kost að við útskrifumst sem stúdentar aðeins tveimur vikum áður en inn- tökuprófið fer fram, svo námsefnið verður okkur í fersku minni. Við lesum upp fyrir stúdentspróf allt námsefni þeirra fjögurra ára sem við höfum verið hér í MR, ólíkt því sem er í áfangakerfinu. En auðvit- að hafa allir möguleika á að ná inn- tökuprófinu, úr hvaða framhalds- skóla sem þeir koma,“ segja þau Anna Mjöll og Hlynur og bæta við að núna á lokaárinu þeirra í MR læri þau líffærafræði, um líf- færakerfin, sjúkdóma- og erfða- fræði. „Þetta eru skemmtileg fög sem ýta sannarlega undir áhugann á læknisfræðinni.“ Eru ekki úr læknafjölskyldum Í bekknum þeirra eru um tutt- ugu og fimm nemendur og meiri- hluti þeirra ætlaði í inntökuprófið í læknisfræði núna í júní. „En það hafa þó nokkrir hætt við og sumir eru farnir að efast, eftir að lækna- nemar komu hingað og kynntu læknanámið. Þar kom nefnilega fram að þetta er dýrt nám og það eru ekki mikil laun í boði fyrr en eftir að fólk hefur lokið sérnámi. Fólk fer því ekki í læknisfræði til að eignast peninga, það kemst ekki gegnum þetta nema það hafi mik- inn áhuga. Fyrst þarf að ljúka sex ára grunnnámi hér heima, síðan tekur við eitt ár í kandídatsnámi og svo nokkurra ára sérnám erlendis. Og margir starfa í nokkur ár hér heima áður en þeir fara utan til að sérhæfa sig,“ segja þau Anna Mjöll og Hlynur sem hvorugt kemur úr læknafjölskyldum. Áhuginn á lækn- isfræðinni er því sjálfsprottinn. „Mér finnst læknisfræðinámið einfaldlega heillandi. Mig langar að gera gagn og hjálpa fólki. Ég held það hljóti að vera gefandi,“ segir Anna Mjöll en Hlynur segir að fjöl- breytileikinn sé eitt af því sem hafi dregið hann að læknisfræðinni. „Námið kemur inn á svo margt og það er hægt að velja úr mörgum ólíkum og spennandi sviðum í sér- náminu.“ Þau segjast ekki vera búin að ákveða hvaða sérnám þau ætli að leggja fyrir sig, enda gera þau ráð fyrir að það komi í ljós þegar þau eru byrjuð í náminu og jafnvel ekki fyrr en þau fara að vinna inni á ólíkum deildum í starfsnáminu. Þó hafa þau vissulega leitt hugann að Læknar framtíðarinnar Þau neita því ekki að hafa horft á Bráðavaktina og Grey’s Anatomy og að sá heimur sem þar birtist af spítalalífi virki þó nokkuð heillandi. En það hafði ekki úrslitaáhrif á að þau ákváðu að leggja fyrir sig læknisfræði. Morgunblaðið/Ómar Í læknaleik Anna Mjöll og Hlynur æfa sig með alvöru græjur og í réttu klæðunum. Brúða með sýnileg líffæri að baki. „Ég er að fara upp á Fimm- vörðuháls á morgun [fimmtudag] með eldri börnum mínum tveimur og manni. Það er alltaf gaman að gera eitthvað saman og þetta verður eflaust mögn- uð lífsreynsla. Við komum heim á föstudaginn svo ég býst við að laugardeginum verði tekið rólega,“ sagði Dóra Magnúsdóttir mark- aðsstjóri Höfuðborgarstofu, þegar blaðamaður hringdi í hana á miðvikudaginn og spurði hvernig hún ætlaði að eyða komandi laugardegi. „Þar sem laugardagurinn er hluti af stærra fríi ætla ég að taka því rólega og gera vel við fjölskylduna. Ég ætla að byrja daginn á því að baka heilsupönnukökur í morgunmat sem er alltaf voða vinsælt á mínu heimili. Eftir hádegi ætla ég í sund með börnin í einhverja skemmtilega barnalaug eins og t.d í Kópavoginum og slaka á þar. Svo væri tilvalið að fara í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinn en við förum þangað á svona tveggja mánaða fresti,“ segir Dóra sem á fimm börn á aldrinum ellefu mánaða til sautján ára. „Um kvöldið er það síðan sjónvarpsdagskráin og að nudda úr sér harðsperrur eftir fjallgönguna.“ Hvað ætlar þú að gera í dag? Rólegheit með fjölskyldunni Morgunblaðið/Arnaldur Morgunverður Dagurinn byrjar á pönnukökum. Dóra Magnúsdóttir Útvarpsleikhúsið frumflytur Blessuð sé minning nætur- innar eftir Ragnar Ísleif Bragason á morgun, Páskadag, kl. 14 á Rás 1. Verkið fjallar um Sif sem missti eitt sinn barn og hef- ur eytt ævinni í að kljást við sorgina. Barnið sem „aldrei varð til“ er Adam, sem þráir það eitt að gera heiminn fallegri með því að trufla mannfólkið ekki. Adam og Sif fá tækifæri til að hittast aftur og uppgjör þeirra er nauðsynlegt ef Sif á að geta náð sátt við sjálfa sig og Adam sátt við heiminn. Leikstjóri verksins er Símon Birgisson. Endilega... ...hlustið á Útvarpsleikhúsið Adam og Eva Eða Adam og Sif? Ef konur forðast eftirfarandi tíu tískumistök sem vefsíðan Msn.com telur upp eru þær nokkuð öruggar um að líta þokkalega út.  Versla í unglingadeildinni. Ef þú ert kynþroska er tími til að hætta að versla í þessari deild. Unglingatískan getur líka látið þig líta út fyrir að vera eldri en þú ert.  Klæðast húðlituðum fatnaði. Eng- inn lítur vel út í húðlit, hann dregur fram hverja ófullkomnun í húðinni á þér eins og bauga og rauða bletti.  Litlar handtöskur með tísku- merki. Þó litla taskan þín skarti stóru tískumerki þýðir það ekki að hún líti út fyrir að vera dýr.  Gallaefni með gallaefni. Það er mjög óklæðilegt að vera í gallabux- um og gallajakka og jafnvel í galla- skyrtu innan undir. Sem ein heild gerir þetta ekkert fyrir þig en að- skilið virkar þetta vel.  Bolir í einni stærð. Ein stærð sem á að passa öllum passar engum. Konur þurfa snið.  Íþróttapeysur. Í góðu lagi ef þú ert að vinna í garðinum eða ert veik heima. Í öðrum tilfellum lítur þú pokalega út í íþróttapeysu, ólöguleg og hversdagsleg.  Mömmugallabuxur. Þó þú sért að snýta börnum og taka til allan dag- inn þýðir það ekki að þú þurfir að líta illa út. Ekki klæðast ljósum gallabuxum með hátt og vítt mitti.  Hvítir íþróttaskór. Það á að klæð- ast íþróttaskóm við íþróttaiðkun og það er enginn flottur með skærhvíta fætur. Prófaðu frekar götu- íþróttaskó í flottum litum.  Örugg allan tímann. Það er ekk- ert að því að vera örugg en fata- skápur fullur af slíkum fötum er svæfandi. Mynstur og litir gera þig áhugaverða.  Röng stærð. Ef fötin passa ekki ertu ekki flott. Ekki vera föst í stærðum og taktu a.m.k. tvær stærðir með þér í mátunarklefann. Tíu algeng tískumistök Reuters Tískufyrirmynd Paris Hilton hefur gert mörg tískumistök í gegnum tíðina. Ekki er flott að klæðast gallaefni við gallaefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.