Morgunblaðið - 03.04.2010, Síða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
H
alldór Gunnarsson,
prestur og bóndi í
Holti undir Eyjafjöll-
um, hefur varið ævi
sinni í baráttu fyrir
hrossabændur og þjóðkirkjuna.
Hefur oft skipað sér í fylking-
arbrjóst þar sem orrustan hefur
verið hörðust. Sveitapresturinn á
sér þó mýkri hlið. Hann ætlaði að
verða verkfræðingur en tákn frá
Guði vísuðu honum leiðina inn í guð-
fræðina og að Holti þar sem hann
hefur setið í 43 ár. Halldór er með
mestu starfsreynslu þeirra presta
sem nú starfa og þar af leiðandi sá
sem lengst hefur setið sama stað.
Þeirri sögu er að ljúka því Halldór
lætur af störfum í byrjun næsta árs,
þegar hann verður sjötugur, en
hann er ekki líklegur til að sitja
lengi með hendur í skauti.
Í Halldóri búa tveir ólíkir menn,
eins og hann lýsir sjálfur. „Í föð-
urættinni er sérstaklega sterk til-
finning fyrir réttlæti og að gefa ekki
eftir í neinu. Þar eru Jón harði bóndi
og Kristján ríki í Stóradal áberandi.
Eldra fólk sem þekkti Gunnar
Bjarnason veit þetta,“ segir Halldór
sem er sonur Gunnars Bjarnasonar
hrossaræktarráðunautar sem var
mikill eldhugi og baráttumaður.
„Í móðurætt minni eru hinsvegar
embættismenn; mikið prestar og
biskupar allt aftur til Guðbrands
Þorlákssonar Hólabiskups.“ Svava
móðir Halldórs var dóttir Halldórs
Vilhjálmssonar skólastjóra á
Hvanneyri. Afi hennar var Þórhall-
ur Bjarnarson biskup.
„Ég er því öðrum þræði tilfinn-
ingaríkur prestur, á stundum erfitt
með mig og fer jafnvel að gráta á
viðkvæmum stundum,“ segir Hall-
dór þegar hann lýsir mjúka mann-
inum. „Hins vegar er harði bóndinn.
Ef mér finnst vera brotið á mér eða
umhverfinu get ég verið afskaplega
harður í horn að taka.“
Regnboginn breytti öllu
Halldór er fæddur 14. janúar
1941. Hann tók mikinn þátt í fé-
lagsmálum í Menntaskólanum á Ak-
ureyri og var ákveðinn í því að verða
verkfræðingur. Stærðfræðin lá vel
fyrir honum en tungumálin síður.
Það átti ekki eftir að verða vegur
hans að hafa atvinnu af útreikn-
ingum. „Ég stóð frammi fyrir
ákveðnu uppgjöri og gat ekki annað
en farið í guðfræðideild þótt ég væri
ekki undir það búinn,“ segir Halldór
en vill ekki fara nánar út í þá sálma.
„Þegar ég hafði lokið náminu eftir
tiltölulega stuttan tíma var ég ekki
tilbúinn að verða prestur og var ráð-
inn í að fara í framhaldsnám til
Skotlands.“
Örlögin gripu í taumana sem fyrr.
Það vantaði prest í Holtsprestakall
undir Eyjafjöllum. Sóknarnefnd-
arformaðurinn, Eysteinn Einarsson
vegaverkstjóri á Brú, frétti að sonur
Gunnars Bjarnasonar hefði verið að
útskrifast og hafði trú á að hann
væri líkur föður sínum. „Ég man að
ég hitti Eyjólf á hestamannamóti á
Rangárbökkum. Hann var vel
klæddur og höfðinglegur, og tók of-
an hattinn þegar hann hitti okkur.
Ég var aftur á móti klæddur í lopa-
peysu, strákslegur í útliti – eins og
ég er enn þann dag í dag.“
Eysteinn talaði til Gunnars eins
og Halldór væri ekki viðstaddur:
„Við höfum heyrt að þú eigir son,
nýútskrifaðan guðfræðing. Vill hann
ekki koma í Holt?“ Halldór segist
hafa séð á fasi hans að hann teldi að
það hlyti að vera hægt að nota son
Gunnars Bjarnasonar.
„Ég sagði nei og gaf þá skýringu
að ég hefði ekki hugsað mér að ger-
ast prestur. Eysteinn lýsti því hvað
kirkjurnar í Holtsprestakalli væru
fallegar og gott að vera í Holti. Ey-
steinn gafst ekki upp við nokkurt
mál og að endingu lofaði ég að heim-
sækja hann.“
Halldór ók austur á fallegum degi
í ágúst 1967. „Það hafði rignt og loft-
ið var tært og Fjöllin gátu ekki verið
fegurri. Ég skoðaði kirkjurnar og
þær voru vissulega fallegar. Í Holti
var hins vegar allt í niðurníðslu.
Vatn í kjallara og saggi í öllu húsinu.
Ég hugsaði með sjálfum mér að hér
yrði ég aldrei prestur, ég héldi
stefnu minni og færi utan.
Þegar ég kom út á tröppurnar og
leit til fjalls myndaðist fallegur
regnbogi. Það var eins og talað væri
til mín að hér ætti ég að verða prest-
ur og það varð.“
Barist gegn stöðnuðu kerfi
Halldór segir að vissulega hafi
það verið erfitt hlutskipti að vera
prestur í Holti með þessa tvo ólíku
menn innra með sér og sem tókust
stundum á. Prestar voru með lág
laun og þurftu að vinna við kennslu
eða vera með búskap til að afla
heimilinu tekna. Halldór sogaðist
fljótt inn í félagsmál hrossabænda.
Það byrjaði þannig að Albert Jó-
hannsson í Skógum, formaður
Landssambands hestamanna, fékk
hann til að ritstýra tímaritinu Hest-
inum okkar 1971. Það varð hlut-
skipti hans að sinna fullri kennslu og
starfa sem bóndi og ritstjóri, auk
embættisstarfanna.
„Þá kynntist ég hestamönnum og
baráttu þeirra við bændaforystuna
sem vildi aðeins flytja út annars
flokks hross. Ég vildi líka hjálpa föð-
ur mínum í hans baráttu fyrir hesta-
menn. Tók þátt í stofnun Félags
hrossabænda 1975 með Einari E.
Gíslasyni á Skörðugili og fleiri góð-
um mönnum. Ég vildi breyta þessu
staðnaða félagskerfi. Fór fyrst á
Stéttarsambandsfund 1985 og var
þar í félagsmálabaráttu í tíu ár. Það
var ógurlega erfitt að fá fram breyt-
ingar á því kerfi sem bændur
bjuggu við. Ég setti fram í blaða-
grein hugmyndina um beinar
greiðslur til bænda og einnig að fá
það upp á borðið hvað bændur voru
raunverulega að greiða í félagsgjöld
og annað. Það hafði allt verið falið í
heildsöluverði og flóknu millifærslu-
kerfi.“
Halldór var formaður markaðs-
nefndar Félags hrossabænda og síð-
ar framkvæmdastjóri félagsins og
stóð fyrir ýmsum nýjungum í mark-
aðsmálum. „Við fengum ekki ásætt-
anlegt verð hjá sláturleyfishöfum
þannig að við fórum sjálfir í útflutn-
ing. Fluttum út sláturhross og reið-
hross með flugvélum og hrossakjöt
með flugvélum til Japans. Þannig
fengust allt önnur verð fyrir afurð-
irnar.“
Unnið fyrir þjóðkirkjuna
Harði bóndinn í Halldóri hellti sér
síðan út í kirkjumálin. Hann hafði
verið í starfsháttanefnd kirkjunnar
á áttunda áratugnum og vann að því
að tryggja eignarhald þjóðkirkj-
unnar á kirkjujörðum og prestsetr-
um. Hann segir að baráttan hafi ver-
ið erfið og tekið langan tíma en allt
hafi náðst fram að lokum.
Halldór var kjörinn fulltrúi á
kirkjuþing 1982 en flutti svo margar
tillögur að hann var talinn ofvirkur
og eldri prestar á Suðurlandi ákváðu
að kjósa annan fulltrúa að loknu
fjögurra ára kjörtímabili. Halldór
kom aftur inn á kirkjuþing 1998 og
lýkur störfum þar á þessu ári. Þá
hefur hann verið átta ár í kirkjuráði
sem fer með framkvæmdavald
kirkjunnar. Þar hefur einnig reynt á
harða bóndann – og stærð-
fræðikunnáttuna.
Þrátt fyrir tímafrek og krefjandi
félagsmálastörf fyrir hrossabændur
og þjóðkirkjuna hefur starfsvett-
vangur Halldórs fyrst og fremst
verið heima í Holti þar sem hann
hefur sinnt sínum prestsstörfum,
fyrst í Holtsprestakalli og síðan
einnig í Bergþórshvolsprestakalli í
Landeyjum frá 1997 þar til það var
sameinað Holtsprestakalli. Jafn-
framt hefur presturinn verið með
töluverðan búskap, hátt í hundrað
hross og sauðfé.
„Ég hefði aldrei getað tekist á við
þetta nema hafa Margréti Jóns-
dóttur Kjerúlf, mína yndislegu
konu, mér við hlið. Það er ekki lítið
hlutverk sem eiginkona prestsins
hefur. Hún hefur alltaf verið tilbúin
að taka á móti gestum og verið til
staðar í þjónustu við starf mitt án
þess að það hafi verið metið.“
Er í gamla Bændaflokknum
„Það veit enginn ævina fyrr en öll
er,“ segir Halldór þegar hann er
spurður um það hvað taki við. Póli-
tíski vettvangurinn er alltaf til stað-
ar.
Hann segist vera í Bændaflokkn-
um sem sameinaðist Frjálslynda
flokknum og síðan Íhaldsflokknum
og varð að Sjálfstæðisflokknum sem
vildi standa vörð um það sem er rétt
og þola eigi órétt. Hann segist hafa
reynt að segja skoðanir sínar á þeim
vettvangi en sé ekki fyllilega sáttur
við stöðu mála. „Ég vil að starf
bóndans verði metið að verðleikum
og er alltaf tilbúinn til að leggja
þeim lið sem vilja berjast fyrir góð-
um málstað,“ segir Halldór Gunn-
arsson.
Tveir ólíkir menn búa
innra með prestinum
Halldór Gunnarsson hefur setið Holt í 43 ár Harði bóndinn hefur staðið í
baráttu Embættismaðurinn hefur lifað með sóknarbörnunum í gleði og sorg
Morgunblaðið/RAX
Prestshjónin Séra Halldór Gunnarsson og Margrét Jónsdóttir Kjerúlf í stofunni í Holti. Þegar presturinn lítur yfir
farinn veg finnst honum einna dýrmætast að hafa fengið það hlutverk að verða sveitaprestur og bóndi.
„FÓLKI finnst þetta sárt og er ekki
sátt við þessa breytingu. En hún er
óumflýjanleg vegna þeirra breyt-
inga sem orðið hafa í landinu,“ segir
Halldór Gunnarsson um prestakall-
ið sitt sem lagt verður niður þegar
hann lætur af störfum í upphafi
næsta árs.
Séra Haraldur Kristjánsson í Vík
tekur við Eyjafjallasóknum og
Landeyjarnar falla til séra Önundar
Björnssonar á Breiðabólsstað.
„Þegar ég kom hingað fyrir 43 ár-
um voru fjórir barnaskólar og einn
héraðsskóli undir Eyjafjöllum. Nú
er hér enginn skóli. Þegar ég kom
voru um fjörutíu kúabú í hverjum
hreppi en nú eru um fimm til tíu
kúabú í hverjum hinna gömlu
hreppa.
Ég hefði viljað kveðja sókn-
arbörnin sátt á mínu síðasta starfs-
ári. Þegar ég lít yfir starfsævina
finnst mér hlutskipti mitt sem prest-
ur og bóndi dýrmætt. Ég hef verið
með fólkinu í erfiðleikum og gleði,
við skírnir, fermingar, giftingar og
jarðarfarir. Það er reynsla mín að
sóknarbörnin meta prestinn sinn
mikið út frá því hvernig þessar at-
hafnir takast.“
Þegar hann er spurður hvaða ein-
kunn hann vilji fá frá sóknarbörn-
unum stendur ekki svari: „Góður
prestur en stundum fljótfær. Þetta
hefur oft verið sagt um mig. Þegar
ég lít til baka finnst mér það góð
gjöf að hafa verið fljótfær því það
varð kveikja að svo mörgu sem ég
gerði og er ánægður með en hefði
annars látið ógert,“ segir Halldór.
Góður prest-
ur en stund-
um fljótfær
Prestssetur Holt var kirkjustaður
og sögu prestssetursins lýkur senn.
„Í DAG hefði ég gjarnan viljað fá að
sitja við þær aðstæður að ljúka
starfi sem sáttur prestur. En þá
vaknar með mér réttlætiskennd
gagnvart þeirri stöðu sem uppi er í
þjóðfélaginu núna og mér finnst ég
ekki geta setið hjá,“ segir Halldór
Gunnarsson.
„Í fyrsta skipti á minni starfsævi
er að koma til mín fólk í miklum
fjárhagserfiðleikum, skuldum vafð-
ir bændur sem eru meðhöndlaðir
eins og bónbjargarmenn hjá banka-
stofnunum, allir peningarnir eru
teknir og þeim skammtað eitthvað
smáræði til að lifa, og bændur sem
skulda áburðinn frá því í fyrra og
sjá ekki fram á að geta keypt áburð
í ár. Stjórnmálamenn sem hafa látið
allt reka á reiðanum í eitt og hálft
ár tala nú eins og búið sé að leysa
öll mál.“
Halldór metur stöðuna þannig að
eina leiðin til að takast á við erf-
iðleikana sé að ná samstöðu í
stjórnmálunum. Til þess þurfi að
mynda þjóðstjórn. „Þá getum við
sett upp hvíta flaggið og óskað eftir
nýjum sáttmála við Norðmenn, ólík-
um Gamla sáttmála. Við getum átt
samstarf um nýtingu olíuauðlinda
og fiskveiðar, um hina nýju sigl-
ingaleið um Norðurskautið og um
Evrópska efnahagssvæðið. Ef
Norðmenn vilja þetta ekki verðum
við að leita til Kanada. Ef vestræn-
ar þjóðir hafna okkur verðum við
að snúa okkur austur, fyrst til
Kína,“ segir Halldór.
Þjóðstjórn
setji upp
hvíta flaggið