Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 22

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 22
22 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is MEÐ hækkandi hitastigi hefur út- breiðsla skóga aukist hér á landi með hverju árinu. Enn er spáð hækkandi hitastigi á komandi áratugum, sem myndi hafa í för með sér bætt skil- yrði fyrir skógarplöntur. Svo gæti farið að í lok þessarar aldar sæjust hér skógar framandi plantna sem til þessa hafa ekki verið þekktar hér á landi. Skógarmörk hækka Björn Traustason og Þorbergur H. Jónsson, sérfræðingar á Rann- sóknastöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá, hafa velt fyrir sér mögu- legri útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi og flutti Björn fyrirlestur um efnið á fagráð- stefnu skógræktarinnar fyrir skömmu. Í örstuttu máli eru niðurstöður þeirra að skógarmörk birkis muni hækka vegna sjálfsáningar, hægt verður að rækta innfluttar trjáteg- undir hærra í landinu en nú er gert og möguleikar aukast á ræktun inn- fluttra tegunda sem ekki hafa verið raunhæfir kostir hingað til. Á heild- ina litið mun hækkun hitastigs hafa veruleg áhrif á útbreiðslu trjáteg- unda. Þeir Björn og Þorbergur gerðu landfræðilega greiningu á því hvern- ig útbreiðsla rauðgrenis, birkis og eikar gæti breyst út frá hugsanlegri hækkun hitastigs. Fyrir rauðgreni og eik var útbreiðslan afmörkuð með lágmarkshitastigi trjátegundanna, seltu og vindálagi, en fyrir birki voru einungis sett skilyrði um lágmarks- hitastig. Möguleg útbreiðsla var reiknuð út fyrir tímabilin 1823-1900, og hitagögn frá Stykkishólmi lögð til grundvallar, gögn frá Veðurstofunni um hitastig voru notuð til að reikna útbreiðslusvæðin, fyrir meðaltal ár- anna 1961-2006 og sviðsmyndir mið- að við spár um þróunina um miðja þessa öld og í lok hennar. Miðað var við 9,7°C meðalhita júní, júlí og ágúst fyrir rauðgreni og 7,6°C fyrir birki. Fyrir eik var miðað við 12,6°C meðalhitastig júní, júlí, ágúst og september. Björn tekur fram að inni í meðaltalinu 1961-2006 séu hafísárin n á 7. og 8. áratugnum og þau kunni að skekkja myndina eitthvað fyrir norðan- og austanvert landið. „Það sem þessi greining sýnir ekki síst er hversu miklar breytingar á mögulegri útbreiðslu trjátegunda hafa orðið nú þegar og munu verða ef hlýnun verður tvær til fjórar gráð- ur til viðbótar,“ segir Björn í samtali við Morgunblaðið. Getur átt við um gróðurfar almennt „Þessi þróun getur ennfremur átt við um gróðurfar almennt sem vænt- anlega kemur til með að taka miklum breytingum á næstu áratugum. Við tökum ekki tillit til jarðvegs í þessari greiningu okkar og ekki er til dæmis gert ráð fyrir skordýraplágum sem geta takmarkað útbreiðslu trjáteg- unda í hlýnandi veðurfari.“ Meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð um hvernig þróunin getur orðið. Björn nefnir sem dæmi að rauðgreni hafi lengi vel átt erfitt uppdráttar hér á landi, en hafi tekið vel við sér á síðustu árum með aukn- um hlýindum. Varðandi þróunina á þessari öld segir hann að bæði hafi sést ýktari og íhaldssamari spár en hér er miðað við. „Við erum einfaldlega að sýna há- mark þess útbreiðslusvæðis þar sem væri hægt að setja niður plöntur út frá ákveðnum forsendum. Það sem mér finnst vera lærdómurinn af þessu verkefni er hversu ofboðslega miklar breytingar geta verið fram- undan,“ segir Björn Traustason. Birkið gæti þakið landið í lok aldar  Aukið hitastig eykur möguleika framandi plantna  Rauðgrenið hefur þegar náð sér vel á strik  Miklar breytingar nú þegar  „Ofboðslega miklar breytingar geta verið framundan“ Eikartré finnast vissulega hér á landi og þeim gæti fjölgað verulega á komandi áratugum eins og sjá má á korti sem sýn- ir mögulega útbreiðslu eikar. Fleira er að breytast í skóg- ræktinni eins og Jón Loftsson skógræktarstjóri nefndi í sam- tali við Morgunblaðið í fyrra- haust er hann ræddi um ís- lenska skóga: „Fyrir 30-40 árum þegar ver- ið var að efna í þessa skóga þá var leitað að kvæmum, sem menn töldu best henta íslensk- um aðstæðum. Við náðum í lerkikvæmi lengst inni í Síberíu, en á þessum áratugum hefur hlýnað verulega og auk þess gerir oft hlýindakafla á miðjum vetri, sem þessi Síberíu-kvæmi þekkja ekki og þola hlýnunina illa. Það sem var gott fyrir 30 árum er ekki endilega gott lengur.“ Eikin á möguleika með hækkandi hitastigi „UNDIRBÚNINGURINN felst ekki síst í því að safna orku fyrir lotuna,“ segir Sigurði Heiðar Höskuldsson. Þeir Sigurður og Ingi Þór Haf- dísarson áforma að slá heimsmet í vasabiljarði (pool) og ætla að standa við borðið í 72 klukku- stundir. Þetta gera þeir í framhaldi af því að félagi þeirra, Brynjar Valdimarsson, greindist nýlega með MS-sjúkdóminn. Heimsmetstilraunin hefst á hádegi annars dags páska, mánudaginn 5. apríl, og stendur til jafnlengdar á fimmtudag eða í samtals 72 klukkustundir. Núgildandi heimsmet í pool- leik sem skráð er hjá Guinness eru rúmar 53 klukkustundir. „Viðbrögðin sem við höfum fengið eru mjög góð og við teljum þetta jafnframt ágæta leið til að vekja athygli á MS-sjúkdómnum,“ segir Sigurður sem líkt og Ingi hefur leikið pool í áraraðir. Brynjar er hins vegar snókerleikari og fyrrverandi atvinnumaður í greininni. Bein útsending verður á netinu allan tímann á www.pool.is og stofnuð hefur verið Facebo- ok-síða: „Heimsmetstilraun Sigurðar Heiðars og Inga Þórs“. Þeir félagar standa nú í ströngu við skipu- lagningu svo metið fáist skráð í Heimsmetabók Guinness, en til þess þarf að uppfylla mörg og ströng skilyrði. Eitt skilyrðanna er að óháð vitni og tímaverðir sitji yfir þeim. Hægt er að heita á kappana og renna öll áheit óskipt til MS-félags Íslands. Áheitasöfnunin fer fram í síma 568 8620 (milli kl. 10 og 15 virka daga) og með tölvupósti á msfelag@msfelag.is en einnig verður hægt að skrá áheit á staðnum. Þá er hægt er að millifæra á reikning MS- félagsins nr. 0115-26-102713 – kennitala 520779-0169. sbs@mbl.is Ætla að slá heimsmet í vasabiljarði Morgunblaðið/Kristinn Brattir Sigurður H. Höskuldsson og Ingi Þór Hafdísarson ætla að slá heimsmet í vasabiljarði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.