Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 24

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 24
Apótekarinn í Garðs Apóteki byggir á góðum grunni í fjallgöngum því hann stundaði maraþonhlaup. Hann segist þó ekki hafa hlaupið lang- hlaup að gagni eftir að hann keypti apótekið, því sé verr og miður. Síðast hljóp hann maraþon í London árið 2006. Helsta hreyfingin núna sé 30-50 mínútna gönguferð með hundinum á hverju kvöldi. Haukur er ekki við eina fjölina felldur þegar að íþróttum kemur því hann varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik í tennis í öðlingaflokki fyrir nokkr- um árum. Hann vill þó ekki gera mikið úr því, segir svo fáa keppa í þeirri íþróttagrein eftir fertugt. Meðspilari hans er frægur knattspyrnukappi og landsliðsmaður, Ómar Torfason. „Maður gutlar í þessu meðfram. Það er fínt að spila tennis úti yfir sumartímann. Við tókum titilinn einkum af því að svo fáir keppa í þessum flokki, það þurfti ekkert sérstaklega mikið til!“ Maraþon og tennis 24 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Bláa lónið er opið alla páskana frá kl. 10.00–20.00 • Sími 420 8800 • www.bluelagoon.is Spennandi páskadagskrá: Laugardagurinn, 3. apríl kl. 14.00 og 14.45 Annar í páskum, 5. apríl kl. 13.00 Annar í páskum, 5. apríl kl. 14.30 og 16.30 Body Balance í boði Hreyfingar í fundarsal Bláa Lónsins. Fyrstir koma fyrstir fá. Menningar- og sögutengd gönguferð. 2-3 tíma gönguferð fyrir alla fjölskylduna um nágrenni Bláa lónsins. Mæting við bílastæði Bláa lónsins kl. 13.00. Ekkert þátttökugjald er í gönguna. Vatnsleikfimi í boði Hreyfingar fyrir gesti Bláa lónsins. Nói Siríus býður öllum börnum páskaegg á meðan birgðir endast Þriggja daga gestakort í Hreyfingu og Blue Lagoon Spa í boði Eftir Jónas Haraldsson GARÐSAPÓTEK, sem er í eigu Hauks Ingasonar, er ódýrara en aðrar lyfjaverslanir, slær m.a. við lyfjakeðjunum, það sýnir ný könnun Neytendastofu á verði nokkurra lausasölulyfja. Í sjö til- fellum af tíu var verðið lægst í Garðsapóteki, m.a. á vinsælum verkjalyfjum. Könnunin náði til 31 apóteks á höfuðborgarsvæð- inu. Algengur verðmunur á ódýr- ustu og dýrustu vörunni var í kringum 30% en tæplega 50% þar sem mest var. Garðsapótek, á mótum Rétt- arholtsvegar og Sogavegar í Reykjavík, er miðsvæðis á höf- uðborgarsvæðinu og byggir á gamalli reynslu, er meira en fimmtíu ára gamalt en Haukur apótekari keypti það árið 2006. „Ég gaf þá yfirlýsingu fyrir margt löngu að ég myndi gerast feitur apótekari þegar ég yrði fimm- tugur. Það stóðst nokkurn veginn, ég var 49 ára gamall þegar ég keypti,“ segir hann. Lágt lyfjaverð og góð þjónusta Þekkt eru dæmi þess að þeir sem fyrirferðarmiklir eru á þess- um markaði þrengi að hinum smærri en Haukur kvartar ekki. Slík dæmi séu fremur frá lands- byggðinni þar sem lyfjakeðjur hafi stillt upp apótekum við hlið annarra apóteka. Lyfjaverslanir séu allt í kringum Garðsapótek og keðjurnar ekki frekar í sam- keppni við það en önnur á svæð- inu. Garðsapótek hafi lengi verið á sínum stað en fáir hafi sýnt áhuga á að kaupa það. Það sé ekki í verslunarkjarna þar sem keðjurnar vilji vera, helst með matvöruverslun við hliðina. Garð- sapótek var hverfisapótek en þegar brúin kom yfir Miklubraut- ina varð það miðsvæðis og náði til fleiri. Haukur segir Garðsapótek bjóða lágt verð á lausasölulyfjum og lyfseðilsskyldum lyfjum, enda sé kjörorðið lágt lyfjaverð og góð þjónusta. Reynt sé að þjónusta viðskiptavini vel svo þeir komi aft- ur. Um helmingur komi úr hverf- unum í kring en hinn helming- urinn víða að, frá Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Garðabæ, Álftanesi auk fjarlægari hverfa Reykjavíkur. Fólkið hefur fengið sig full- satt af útrásarvíkingunum „Fólk kemur vegna verðs og þjónustu en einnig vegna þess að apótekið er einkarekið. Margir vilja ekki versla lengur við keðj- urnar. Við njótum þess. Fólk kem- ur beinlínis vegna þess og hefur fengið sig fullsatt af útrásarvík- ingunum. Apótekakeðjurnar Lyf og heilsa annars vegar og Lyfja hins vegar voru mitt í því æði öllu saman. Þeir sem að þeim stóðu fóru á sín- um tíma hringinn í kringum landið og keyptu upp öll apótek sem þeir gátu keypt, með peningum úr bönkunum og hótunum. Nú hafa hins vegar skapast tækifæri fyrir fleiri að koma með einkarekin apótek en svo veit maður ekki hvað verður um þess- ar keðjur þegar ríkið eignast þær, hvort þær verða seldar í heilu lagi eða bútaðar niður. Ég reikna þó með að ríkið reyni að selja þær í heilu lagi, en svo er spurning hver kemur til með að kaupa? Þetta var komið í tóma vitleysu. Það var enginn lyfjafræðingur sem kom nálægt stjórnuninni á þessum lyfjakeðjum, bara brask- arar og bisnessmenn.“ Engin yfirbygging Haukur segir rekstur Garð- sapóteks ganga vel vegna þess að engin yfirbygging sé á því. Bók- haldið sé unnið úti í bæ enda gott að vera laus við það. „Hér vinnur konan mín og fleiri í ættinni en í heild eru starfsmenn tíu. Þetta er mikil vinna en það er lokað um helgar – og bara opið frá 9-18. Þess vegna gat ég gengið á Fimmvörðuháls um síðustu helgi og skoðað gosið og fyrir nokkrum vikum varð ég Íslandsmeistari í bridge með spilafélaga mínum, Jóni Þorvarðarsyni kennara. Ég nota helgarnar í annað en vinn- una, t.d. útivist og spila- mennsku.“ Fólk kemur vegna verðs og þjónustu  Haukur Ingason varð apótekari 49 ára gamall, þegar hann keypti Garðsapótek sem slegið hefur lyfjakeðjum við í verðkönnunum undanfarið  Segir fólk hafa fengið sig fullsatt af útrásarvíkingum Morgunblaðið/Eggert Lyf „Margir vilja ekki versla lengur við keðjurnar. Við njótum þess. Fólk kem- ur beinlínis vegna þess og hefur fengið sig fullsatt af útrásarvíkingunum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.