Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
stöndum við. Amma var glæsileg og
settleg kona eins og maður segir. Það
var stæll yfir henni. Hún passaði að
hárið væri alltaf vel snyrt og það
hvarflaði ekki að henni að fara í
Sparisjóðinn án þess að fara í lagn-
ingu áður. Ömmu þótti gaman að
punta sig og eignast ný og falleg föt.
Það voru ófáar ferðirnar sem við syst-
urnar fórum með ömmu og mömmu í
Verðlistann og alltaf gat amma keypt
sér eins og eina skyrtu eða peysu.
Ömmu fannst gaman að skreyta sig
með skartgripum og við gleymum
ekki hversu ánægð hún var með gull-
hringinn sem við gáfum henni þegar
hún var níræð. Já, hún amma okkar
var sko pæja sem tekið var eftir.
Amma okkar var mikil félagsvera og
tók virkan þátt í félagsstarfinu á
Hraunbúðum, elliheimilinu í Eyjum.
Amma var ákveðin, þrjósk og mikil
keppniskona og þau voru ófá verð-
launin sem hún vann í bingó í gegnum
árin. Okkur systkinunum þóttu ferða-
vinningarnir með Herjólfi fyndnastir,
því þeir voru það margir að hún gat
nánast farið vikulega upp á land með
Herjólfi í heilt ár án þess að borga
krónu.
Þeir sem þekktu ömmu vissu að
það var erfitt að ná henni í síma í há-
deginu eða um eftirmiðdaginn, sá tími
var helgaður sápuóperum. Okkur er
minnisstætt eitt árið þegar amma fór
í mánuð til Kanaríeyja en þá bað hún
okkur systkinin að taka upp þættina á
spólu, það mátti ekki missa úr þátt.
Við höfum því átt margar umræður í
gegnum tíðina með ömmu um Harold
og vini okkar í Ramsey Street.
Við systkinin eigum það sameigin-
legt að flestallir okkar vinir þekkja
ömmu Friðrikku. Amma bjó jú í Eyj-
um og var höfðingi heim að sækja.
Heimilið hennar var því að sjálfsögðu
samkomustaður vina okkar á Þjóðhá-
tíð. Amma bauð öllum okkar vinum í
mat og tók ekki annað í mál en að all-
ur hópurinn myndi mæta í kvöldverð
því það þyrftu allir að nærast vel fyrir
átök kvöldsins. Amma átti það jafnvel
til að þvo fötin af hópnum ef illa viðr-
aði því það skyldu allir mæta í hrein-
um fötum í Dalinn.
Við systkinin eigum dýrmætar og
góðar minningar um yndislega mann-
eskju. Manneskju sem kenndi okkur
svo mikið og var okkur góð fyrir-
mynd. Með þessum orðum kveðjum
við þig, elsku amma okkar, takk fyrir
allar yndislegu stundirnar sem við
áttum með þér.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Hvíldu í friði, elsku amma.
Ásta, Ólöf og Friðrik Árni
Friðriksbörn.
Elsku amma mín. Það er svo sárt
að kveðja, þó svo ég hafi vitað að stutt
væri í þennan dag þá var ég nú samt
búin að telja mér trú um að við ættum
eftir að eiga fleiri stundir saman. Ég á
eftir að sakna þess að geta ekki komið
í heimsókn til þín niðrá Elló þegar ég
er í Eyjum. Það var orðinn fastur lið-
ur að kíkja á þig og heyra allar slúð-
ursögurnar af því helsta sem var að
gerast á Elló.
Ég gleymi því seint þegar ég, þú,
Hjördís heitin og fleiri vinkonur þínar
sátum saman heilt kvöld niðrá Elló og
slúðruðum um allt milli himins og
jarðar. Þær hafa örugglega tekið vel
á móti þér og fegnar að fá þig við sitt
borð á ný.
Elsku amma, þær eru ófáar minn-
ingarnar sem koma upp í huga mér
þegar ég hugsa til þín, Það er þó ein
sem stendur upp úr. Þegar ég, þú og
mamma fórum á leik hjá Birki heima í
Eyjum, hann þá kominn í Hauka að
keppa við ÍBV. Þegar nokkuð var lið-
ið á leikinn og Birki að ganga mjög vel
þá er einhver úr stúkunni sem hreytir
í hann ófögrum orðum. Þó að þú hafir
verið komin vel á níræðisaldurinn, þá
þurftum við mamma að hafa okkur
allar við til að halda þér kyrri í sæt-
inu. Þú ætlaðir einfaldlega að hjóla í
manninn. Það skyldi enginn voga sér
að hreyta einhverju í barnabörnin
þín.
Þetta lýsir því kannski hversu vel
þú stóðst við bakið á þínum og studdir
okkur í öllu sem við tókum okkur fyr-
ir hendur. Elsku amma, ég er svo
óendanlega þakklát fyrir allan þann
tíma sem við höfum átt saman, takk
fyrir allar minningarnar, stuðninginn
og hlýjuna sem þú hefur veitt mér.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Megi guðs englar vaka yfir þér,
elsku amma mín
Þín
Þórey Friðrikka.
Jæja, elsku amma, þá er þinn tími
hér í okkar veröld liðinn og þú horfir
eflaust niður til okkar ánægð á nýja
samverustaðnum.
Þegar ég skrifa þetta þá hellast yfir
mig margar og ánægjulegar æsku-
minningar. Ég man eftir jólaboðun-
um þar sem ég og Þorsteinn Elías
gerðum ævinlega eitthvað af okkur
en vorum undir verndarvæng ömmu
þannig að við sluppum með skrekkinn
í þau skiptin.
Eins voru gamlárskvöldin líka
skemmtileg, þegar þú, Guðný amma
og Ása hittust á Helgafellsbrautinni
og skemmtuð ykkur fram eftir nótt-
unni og oftast hressasta fólkið.
Stuðningi þínum við mig í íþróttum
á ég aldrei eftir að gleyma. Þú varðst
fyrst til að setjast fyrir framan sjón-
varpið ef leikir voru sýndir beint,
komst á leiki ef spilað var í Eyjum og
studdir einungis það lið sem ég spilaði
með.
Mig langar að þakka þér fyrir allar
stundirnar og að hafa alltaf verið til
staðar fyrir mig og mína fjölskyldu.
Adela Björt vill einnig þakka fyrir
alla þá ást og hlýju sem þú gafst
henni og fyrir allar súkkulaðirúsín-
urnar.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(Vald. Briem.)
Birkir, Kristín, Saga og Adela.
HINSTA KVEÐJA
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Þín barnabarnabörn,
Ragnar, Kristófer Már, Bára,
Guðrún Ósk og Kolfinna.
Hún amma mín var
engum lík, hún var
einstök. Það er skrýtið
að hugsa sér lífið án
hennar Erlu ömmu minnar sem ég
hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að
hafa átt að í næstum 39 ár.
Amma var ekki aðeins amma mín
heldur einnig besti vinur minn og
okkar barnabarnanna og gátum við
leitað til hennar með allt milli himins
og jarðar. Hún hafði alltaf brennandi
áhuga á því sem við vorum að gera
og fylgdist ávallt vel með þeim
straumum og stefnum sem voru í
gangi hverju sinni.
Heimili ömmu og afa í Barðavog-
inum var okkar aðalsamkomustaður
og athvarf, þar átti maður öruggt
skjól. Amma og afi tóku okkur alltaf
opnum örmum og vissu ekkert
skemmtilegra en að hafa sem flesta í
kringum sig enda var ávallt líf og fjör
Erla Egilson
✝ Erla Kristín Þor-valdsdóttir Eg-
ilson fæddist á Pat-
reksfirði 13. mars
1924. Hún lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 14. mars 2010.
Útför Erlu var gerð
frá Dómkirkjunni í
Reykjavík 22. mars
2010.
í Barðvoginum. Eftir
að afi dó héldum við
frændsystkinin
„ömmukvöld“ en þá
hittumst við öll heima
hjá ömmu. Þessi kvöld
eru ógleymanleg í
minningunni því aldrei
hefur maður hlegið
eins mikið og á þess-
um kvöldum. Amma
átti stóran þátt í þess-
um gleðistundum
vegna þess að hún var
mikill húmoristi og
hafði einstakan húmor
fyrir sjálfri sér og hló yfirleitt manna
mest. Alltaf var hún tilbúin til að fara
með okkur í leikhús, í bæinn, út að
borða eða hvert sem við vorum að
fara, hún var opin fyrir öllu. Amma
var líka einstaklega sterk og raunsæ
kona sem stóð ávallt sterk, sama
hvað bjátaði á, það sá maður þegar
stór áföll urðu í fjölskyldunni.
Ég kveð hana ömmu mína með
miklum söknuði en jafnframt þakk-
læti fyrir að hafa alltaf verið til stað-
ar fyrir mig, fyrir að vera mér ein-
stök fyrirmynd og besti vinur sem
hægt er að hugsa sér.
Minningarnar eru ótal margar og
geymi ég þær með mér um ókomin
ár.
Þórunn Erla.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt
á reitinn Senda inn efni á forsíðu
mbl.is og viðeigandi efnisliður val-
inn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birt-
ingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
• Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
• Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
• Næg bílastæði og gott aðgengi.
Grand
erfidrykkjur
Grand hótel Reykjavík,
Sigtúni 38, sími 514 8000.
erfidrykkjur@grand.is • grand.is
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, systur, mágkonu,
ömmu og langömmu,
JÓNU GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
og heiðruðu minningu hennar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða.
Ólafur Eggertsson,
Gunnar Marel Eggertsson, Þóra Guðný Sigurðardóttir,
Guðfinna Edda Eggertsdóttir, Kristinn Hermansen,
Sigurlaug Eggertsdóttir, Halldór Kristján Sigurðsson,
Einar Ólafsson, Viktoría Ágústa Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
MARÍASAR Þ. GUÐMUNDSSONAR
frá Ísafirði,
Efstaleiti 14,
Reykjavík.
Málfríður Finnsdóttir,
Hildur Maríasdóttir, Þórður Oddsson,
Guðm. Stefán Maríasson, Kristín Jónsdóttir,
Áslaug Maríasdóttir, Skúli Lýðsson,
Bryndís H. Maríasdóttir, Kristján Einarsson,
Árni Maríasson, Guðrún Oddsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og hlýhug vegna andláts
foreldra okkar, tengdaforeldra, afa og ömmu,
STEINGRÍMS ÞÓRÐARSONAR
frá Ljósalandi
í Vopnafirði
og
HÖLLU EIRÍKSDÓTTUR
frá Eskifirði.
Eiríkur Steingrímsson, Sigríður Sigurjónsdóttir,
Þórður Steingrímsson, Guðbjörg Eysteinsdóttir,
Elsa Albína Steingrímsdóttir, Hans Guttormur Þormar
og barnabörn.