Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Atvinnuauglýsingar 569 1100                                                           !                                  "             # $  %        #                 & '         ()*))+,)-. / % 0  &  0    ' 1   ()*))+,)-+ 2    3   &   ()*))+,)-(       4   4 %  ()*))+,)-* Kennsluráðgjafi Laus er til umsóknar 50% staða kennsluráðgjafa á Skólaskrifstofu Suðurlands. Helstu verkefni: Ráðgjöf til kennara um kennsluhætti og leiðbeiningar til foreldra. Greining á námslegri stöðu einstaklinga og hópa. Athuganir á hegðun og líðan nemenda. Ýmis sérverkefni. Menntunarkröfur: Grunnskólakennararéttindi og framhalds- nám í sérkennslufræðum og/eða kennslufræðum. Ágæt laun eru í boði og vel að starfsmönnum búið til að sinna endur- og símenntun. Umsókn um starfið, ásamt yfirliti um náms- og starfsferil sendist Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss fyrir 16. apríl 2010. Á vefslóðinni www.skolasud.is er að finna upplýsingar um skrifstofuna. Nánari upplýsingar veitir Kristín Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri, sími 480 8240 eða 862 9905. Í boði eru: Áhugaverð og krefjandi verkefni. Góð starfsskilyrði og sveigjanlegur vinnutími. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við BHM og af ein- staklingsbundnum hæfileikum og frammistöðu í starfi. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar um störfin gefa Gunnar Th. Kristjánsson og Ásmunda B. Baldursdóttir, í síma 550 8800. Umsóknir með upplýs- ingum um menntun, fyrri störf og annað er máli kann að skipta, þurfa að hafa borist skattrannsóknarstjóra ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík, eða á netfangið skattrann@skattrann.is - eigi síðar en 19. apríl n.k. SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI RÍKISINS Rannsóknarmenn – Lögfræðingar Störf í boði hjá skattrannsóknarstjóra Skattrannsóknarstjóri ríkisins óskar að ráða rannsóknarmenn til rannsókna á skattsvikum og lögfræðinga til lögfræðistarfa. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun á sviði viðskipta, lögfræði, eða aðra sambærilega menntun, eiga auðvelt með mannleg samskipti, vera talnaglöggir, skipulagðir, nákvæmir og áreiðanlegir. Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Þekking á skattarétti er kostur. Starfslýsing/rannsóknarmaður: Starfssvið er rannsóknir skattsvika. Í því felst m.a. rannsókn á bókhaldi og skattskilum, um- sjón með skýrslugjöf, ritun skýrslna og ýmiss konar önnur gagna- og upplýsingaöflun og úr- vinnsla þeirra. Starfslýsing/lögfræðingur: Starfssvið er m.a. framkvæmd sektargerða, rit- un kröfugerða og kærubréfa. Þekking á skatta- rétti, stjórnsýslurétti og opinberu réttarfari er æskileg. Kerfisstjóri/forritari Vitvélastofnun Íslands auglýsir eftir kerfisstjóra og/eða forritara í hlutastarf. Viðkomandi þarf að hafa reynslu í rekstri Linux netþjóna með Apache og mysql, auk þess er æskilegt að viðkomandi hafir reynslu í vefforitun á Ruby og sé fær í póstumsjón. Hæfir umsækjendur geta átt þess kost að taka þátt í fleiri verkefnum tengdum Vitvélastofun, sem stundar rannsóknir á sviði gervigreindar og hermunar. Allar nánari upplýsingar veitir Heiða Kristín Helgadóttir í síma 552 1020 eða með tölvupósti á heida@iiim.is. Umsóknum skal skilað inn rafrænt á netfangið jobs@iiim.is ICELANDIC INSTITUTE FOR INTELLIGENT MACHINES V I T V É L A S T O F N U N Í S L A N D S

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.