Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
LJÓST virðist að þann tíma sem
skýrslan fjallar um hafi leikið laus-
um hala ýmsar höfuðsyndir mann-
kyns um árþúsundir; óhóf, græðgi,
dáðleysi, heift, öfund og dramb.
Einnig koma fram sterkar vísbend-
ingar um lögbrot sem framin hafa
verið í rekstri þeirra fyrirtækja sem
mest er um fjallað í skýrslunni,“
sagði Vilmundur Jósefsson, formað-
ur Samtaka atvinnulífsins, um
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
í ræðu sinni á aðalfundinum í gær.
Vilmundur tók til bráðabirgða við
formennsku í SA og var nú kjörinn
formaður með um 87% atkvæða.
Hann sagði „ógnvænlegt“ að um-
svifamestu eignarhaldsfélögin og
fjármálafyrirtækin skyldu geta vald-
ið jafnmiklu tjóni á ekki lengri tíma.
„Samtök atvinnulífsins voru and-
varalaus gagnvart því sem raun-
verulega var að gerast og tóku ekki
mark á þeim aðvörunum sem þó
komu fram á þessu tímabili um
hætturnar sem hagkerfinu voru
búnar,“ sagði Vilmundur. „Samtökin
munu taka alvarlega ábendingar
sem fram koma í viðauka skýrsl-
unnar um siðferði og starfshætti í
tengslum við fall íslensku bankanna
árið 2008. Farið verður yfir ábend-
ingarnar og metið hvað megi betur
fara í starfsemi samtakanna og
hvort setja eigi viðmiðunarreglur
fyrir þá sem starfa á vegum SA í
stjórnum sjóða og stofnana.“
Endurreisn trausts á verð-
bréfamarkaði væri lykilþáttur í upp-
byggingunni eftir hrunið. Fyrir-
tækin yrðu að hafa svigrúm til þess
að stunda nýsköpun, geta hagnast
og greitt eðlilegan arð. Þorri fyr-
irtækja hafi ekki tekið þátt í þeirri
hegðan sem lýst sé í skýrslu rann-
sóknarnefndarinnar. Þvert á móti
stundi flestir rekstur sinn „af kost-
gæfni, hófsemd, þrautseigju og heið-
arleika“.
Hann taldi aðildarviðræður við
Evrópusambandið verða mjög gagn-
legar hvort sem af aðild yrði eða
ekki. Ávinningur af aðild fyrir Ísland
yrði mestur af aðild að mynt-
samstarfi Evrópu og til lengri tíma
með upptöku evru.
Morgunblaðið/Kristinn
Gesturinn Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins á hótel Nordica í Reykjavík
í gær. Mynd af ræðumanni var varpað á stóran skjá en á fjórða hundrað manns sótti fundinn.
Syndir eins og óhóf og
græðgi „léku lausum hala“
Nýr formaður Samtaka atvinnu-
lífsins var harðorður um and-
varaleysi eigin samtaka í ræðu
sinni. En hann sagði rangt að öll
fyrirtæki væru sek; þorri þeirra
hefði ekki tekið þátt í sukkinu.
Formaður Samtaka atvinnulífsins segir þau ekki hafa tekið mark á aðvörunum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
„VITNISBURÐUR rannsóknar-
skýrslunnar um háttalag helstu for-
kólfa atvinnulífsins sem var, hlýtur
að verða lagður til grundvallar með
öðru þegar metið er hvort viðkom-
andi aðilar séu verðir áframhaldandi
samstarfs eða trausts,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, forsætisráð-
herra, í ræðu á aðalfundi Samtaka
atvinnulífsins í gær.
Aðspurð sagðist Jóhanna ekki
eiga við neina tiltekna viðskipta-
menn eða fyrirtæki, heldur einfald-
lega að það viðhorf sem lýst er hér að
ofan yrði almennt haft til hliðsjónar,
m.a. við skuldameðferð þeirra fyrir-
tækja sem bankarnir hafa tekið yfir.
Forsætisráðherra sagði ríkis-
stjórnina þó ekki geta beitt sér fyrir
því með beinum hætti að koma í veg
fyrir að fyrirtækin verði aftur sett í
hendur þeirra sem fá áfellisdóm í
skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
„Það er náttúrulega í höndum skila-
nefnda að vinna úr þessum málum,
en ekki á okkar hendi, og þau hljóta
að gæta að öllum þeim sjónarmiðum
sem koma fram í skýrslunni.“
Meti ávallt trúverðugleika og
áreiðanleika viðskiptamanna
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra, telur einnig að við
skuldameðferð og endurreisn fyrir-
tækja verði að hafa að leiðarljósi það
sem fram kemur í skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar. „Ég held að það eigi
að gera þá kröfu að trúverðugleiki og
áreiðanleiki sé meðal þess sem alltaf
er tekið með í reikninginn við slíka
vinnu. Menn verða að setja sér sið-
gæðisviðmið um hvernig unnið er úr
málefnum þessara fyrirtækja.“
Hann ítrekar þó að enginn sé sek-
ur fyrr en sekt hans hefur verið
sönnuð. „Við verðum að fara að
reglum réttarríkisins í þessum efn-
um eins og öðrum.“
Í Viðskiptablaðinu í gær kom fram
að eignir Hannesar Smárasonar og
Jón Ásgeirs Jóhannessonar verði
kyrrsettar vegna rannsóknar skatta-
yfirvalda. Stærsta málið snúist um
óeðlilega háan rekstrarkostnað FL
Group/Stoða á þeim tíma sem Hann-
es og Jón Ásgeir stjórnuðu félaginu
og voru stærstu eigendur þess.
Eignir fleiri útrásarvíkinga verða
einnig kyrrsettar vegna rannsókn-
anna, segir Viðskiptablaðið.
Sömu reglur fyrir alla banka
Steingrímur segist ekki geta tjáð
sig um mál einstakra aðila og bendir
á að ekki hafi verið staðfest hjá
skattayfirvöldum að áðurnefndir að-
ilar séu til rannsóknar. Aðspurður
hvort ásættanlegt sé að bankar í eigu
ríkisins setji eftir skuldameðferð
fyrirtæki aftur í hendur einstakling-
um sem eru til rannsóknar, segir
fjármálaráðherra að setja verði al-
menn viðmið í þessum efnum sem
gildi um öll fjármálafyrirtæki.
„Eignarhald á viðkomandi fjár-
málastofnun á ekki að skipta sköpum
í þeim efnum. Við ætlum ekki að búa
til tvo siðferðisstaðla, annars vegar
fyrir banka í eigu ríkisins og hins
vegar banka í einkaeigu,“ segir
Steingrímur.
Skýrslan til grundvallar
Í HNOTSKURN
» Í skýrslu rannsóknar-nefndarinnar er að finna
leiðarljós að þeim siðferðisvið-
miðum sem gilda eiga við end-
urreisn fyrirtækja, segir fjár-
málaráðherra.
» Forsætisráðherra segir aðhorfa verði á það sem sagt
er um forkólfa í atvinnulífinu
þegar meta á hvort þeir séu
verðir áframhaldandi sam-
starfs.
Forsætis- og fjármálaráðherra segja að byggja verði á því sem fram kemur í
rannsóknarskýrslunni við skuldameðferð og endurskipulagningu fyrirtækja
Jóhanna
Sigurðardóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
GEORG Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, segir að framleið-
endur vélanna í varðskipinu Þór
séu enn að meta skemmdir sem
urðu á skipinu í jarðskjálftanum í
Chile í febrúar. Búast þeir við að
skila niðurstöðu 10. maí.
Dótturfyrirtæki Rolls Royce-
verksmiðjanna, Bergen Diesel í
Noregi, annast smíði vélanna en
sjór komst í búnaðinn þegar flóð-
alda skall á stöðinni í Concepcion.
Unnið er að ýmsum frágangi í skip-
inu en búkur þess slapp við tjón.
Ekki er hægt að segja neitt um af-
hendingartíma fyrr en búið er að
meta tjónið á vélunum.
Enn verið að meta
tjónið á vélunum
í nýja Þór í Chile
Þór Varðskipið við bryggju í skipa-
smíðastöðinni í Chile.
RAGNHEIÐUR
Elín Árnadóttir,
þingmaður og
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurkjördæmi,
tók í gær við sem
formaður þing-
flokks sjálfstæð-
ismanna á fundi
þingflokksins.
Einar K. Guð-
finnsson, þingmaður og fyrrver-
andi sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, tók við starfi vara-
formanns þingflokksins en Ragn-
heiður Elín gegndi því starfi áður.
Ólöf Nordal, þingmaður í Reykja-
vík suður, kemur ný inn í þing-
flokksstjórnina. Hún var kjörin rit-
ari þingflokksins.
Formaður þingflokks
sjálfstæðismanna
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
FYRRVERANDI
framkvæmda-
stjóri rekstrar-
sviðs Lands-
banka Íslands
var í gær sýkn-
aður í Héraðs-
dómi Reykjavík-
ur af ákæru um
fjárdrátt. Honum
var gert að sök
að hafa dregið sér 118 milljónir
króna í október 2008.
Maðurinn millifærði fjárhæðina
af innlendum gjaldeyrisreikningi í
eigu NBI Holding, félags á vegum
bankans sem hann í tengslum við
starf sitt var stjórnarmaður í og
hafði prókúru fyrir, yfir á eigin
bankareikning. Daginn eftir milli-
færði hann fjárhæðina aftur yfir á
annan bankareikning, sem einnig
var í hans eigu. Hann neitaði að
hafa gerst sekur um auðgunarbrot.
Fram kemur í dómi héraðsdóms
að ekki hafi verið nægur grundvöll-
ur til að hafna þeirri skýringu
mannsins að hann hafi einungis ætl-
að að tryggja það að fé félagsins
glataðist ekki við greiðsluþrot
Landsbanka Íslands. Gegn neitun
hafi því ekki tekist að sanna að
hann hafi haft ásetning til auðg-
unar.
Sýkn af ákæru um
118 milljóna fjárdrátt
Jóhanna Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra, flutti ræðu á
fundi SA og sagði meðal annars
að bætt skuldastaða hins op-
inbera hefði skilað þeim árangri
að draga mætti úr áætluðum
samdrætti ríkisútgjalda. En sam-
drátturinn yrði samt mikill, það
væri óhjákvæmilegt.
„Rannsóknarskýrsla Alþingis
bendir okkur á að smáar og van-
burða einingar í stjórnkerfinu,
sem margar fást við áþekk verk-
efni eru ekki líklegar til að skila
tilætluðum árangri,“ sagði Jó-
hanna. „Uppstokkunar og endur-
skoðunar er þörf.“
Forsætisráðherra minnti á til-
lögur í stjórnarsáttmálanum um
eitt atvinnuvegaráðuneyti en
deilt er um þær í ríkisstjórn-
inni.
„Það hafa allar atvinnugrein-
ar á Íslandi þörf fyrir stefnu-
mótun, rannsóknir, nýsköpun og
þróun og um það á starfsemi
nýs atvinnuvegaráðuneytis að
snúast. Í því efni veit ég að þið
eruð mér sammála en það er
hins vegar að halda í liðna tíð
að viðhalda ráðuneytum kring-
um sérhagsmuni einstakra at-
vinnugreina,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir.
Uppstokkun í stjórnkerfinu