Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 NÚ ERU ný umferð- arlög komin fyrir Al- þingi eins og jafnan gerist með nokkuð löngu millibili. Því er rétt að vanda vel til verks og í því skyni setti samgöngu- ráðuneyti á fót nefnd með vel völdum að- ilum til að koma með fyrstu drög. Að vísu var enginn aðili í nefndinni með sérþekkingu á málefnum mót- orhjóla enda ekki laust við að þau yrðu pínulítið útundan í fyrstu drögum nefndarinnar. Bifhjóla- samtök lýðveldisins, Sniglar, voru því fljót að koma með sínar at- hugasemdir og var þeim vel tekið með flest. Áttum við gott samstarf með nokkrum aðilum nefndarinnar sem skilaði sér breytingum til batnaðar. Þegar drög númer tvö voru tilbúin frá nefndinni vorum við orðin nokkuð sátt við útlitið og sáum fram á að ná loks árangri í veigamiklum atriðum varðandi hagsmunamál bifhjólafólks. Það kom því okkur verulega á óvart að sjá á síðustu vikum að búið var að taka U-beygju í nokkrum mála- flokkum. Bifhjólaréttindi eru stigskipt og því ekki einfalt mál að útskýra þau en hér skal reynt að gera það á einfaldan hátt. Skellinöðrupróf (M- réttindi) má taka 15 ára en það mun færast upp í 16 ár samkvæmt nýju lögunum. Næsti rétt- indaflokkur eru A1 réttindi sem gilda fyrir 125 cm3 hjól sem eru 15 hestöfl að hámarki. Þetta eru ný réttindi í íslenskum lögum en hafa verið lengi við lýði í flestum Evr- ópulöndum sem flest miða við 16 ára lágmarksaldur. Einhverra hluta vegna verður miðað við 18 ár á Íslandi sem hefur þau áhrif að næstu flokkar færast til sem því nemur. Þess vegna mun svokallað minnapróf fyrir mótorhjól (A2) færast upp í 20 ára og full réttindi (A) í 22 ára hið fyrsta. Það er ekki fyrr en fólk er orðið 24 ára sem það getur tekið full réttindi strax á mótorhjól, en nú er sá viðmiðunar- aldur 21 ár. Þetta er of mikil breyt- ing að mati Bifhjóla- samtaka lýðveldisins og stutt litlum rökum. Ungt fólk og þá sér- staklega í aldurs- hópnum 16-18 ára er mun líklegra til að lenda í slysi en aðrir aldurshópar sem hafa meiri reynslu. Sums staðar er þessi aldurs- hópur allt að fimm sinnum líklegri til að lenda í mótorhjóla- slysi en þeir sem lenda í fæstum slysum. Hafa ber þó í huga að alvarleg slys á 125 cm3 hjólum eru ekki eins algeng og ætla mætti, líklega vegna minni krafts hjólanna. Sömu athuganir benda líka á þá staðreynd að þeir hópar sem byrja á 125 cm3 hjólum eru síður líklegir til að lenda í slys- um seinna meir, og öðlast þannig mikilvæga reynslu sem skilar sér þegar komið er á stærri og kraft- meiri hjól. Einnig má benda á að slys á ökumönnum mótorhjóla sem eru 60 ára og eldri eru í mörgum tilvikum jafn algeng og á yngsta aldurshópnum en það talar enginn um að banna þeim aldurshópi að keyra mótorhjól. Ef nota á þau rök að slys séu algengari í þessum ald- urshópi má alveg eins heimfæra það á ökumenn bíla. Af hverju þá ekki stigskiptingu þar? Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta spurn- ing um réttlæti og sanngirni, jöfn réttindi öllu fremur. Við mót- orhjólafólk lendum því miður alltof oft í því að gleymast í opinbera geiranum. Sem dæmi um það er hægt að fá niðurfellingu á vöru- gjöldum fyrir keppnisbifreiðar en ekki keppnismótorhjól, hvernig sem á því stendur. Eru svo einhverjar tölulegar staðreyndir sem að renna stoðum undir þessa hækkun lágmarksald- urs til bifhjólaréttinda? Hérlendis skortir reynslu fyrir 125 cm3 þar sem að þau réttindi hafa ekki verið í boði fyrir þennan aldurshóp áður. Tvær greinargóðar slysarann- sóknir á mótorhjólum hafa bent á háa tíðni slysa hérlendis hjá yngsta aldurhópnum, á 50 cm3 hjólum. Eru þar flestir sammála um að helsta orsökin er sú að enn er við lýði svokallaður æfingarakstur á skellinöðru, oftar en ekki með ansi litlum undirbúningi. Með aukningu á innflutningi ódýrra hjóla sem byggja á vespulagi hefur 50 cm3 hjólum fjölgað mikið í umferð og þegar þetta tvennt helst í hendur er aukning slysa óhjákvæmileg. Það er því engin lausn á vandanum að banna þessum aldurshóp að verða sér úti um farartæki. Miklu nær væri að bæta við kennslu og annan undirbúning, svo ekki sé tal- að um eftirlitsskyldu foreldra varð- andi hlífðarfatnað. Annað dæmi um algerlega órök- studda breytingu í lögunum er að það mun verða ólöglegt að reiða þá sem eru undir 150 cm á hæð. Eini rökstuðningurinn með þessu er sá að þetta sé til samræmis við lág- markshæð vegna verndarbúnaðar í bifreiðum, samanber öryggispúða. Er eitthvert samræmi hér á milli sem við mótorhjólafólk sjáum ekki? Ef farþegi hefur fót- og bak- stuðning er hann vel skorðaður aft- an á mótorhjóli og skiptir hæð hans þá litlu máli. Danir völdu að setja frekar reglugerð um búnað fyrir farþega og svokölluð barna- sæti og er það eina rétta leiðin að okkar mati. Að lokum spyr maður sig hvort að þetta þýði það að þeir sem eru undir 150 cm á hæð megi þá ekki lengur keyra mótorhjól? Við hjá Bifhjólasamtökum lýð- veldisins, Sniglum, mótmælum ein- faldlega þessari forræðishyggju hins opinbera og munum ekki sætta okkur við þessa skerðingu á réttindum okkar. 1. maí förum við í árlega hópkeyrslu okkar þar sem við munum meðal annars mótmæla þessu og viljum við því hvetja allt mótorhjólafólk til að mæta og hjóla með okkur. Mótorhjólaprófið í 22 ár? Nei takk Eftir Njál Gunnlaugsson » Samkvæmt lögunum mun lágmarksaldur fyrir mótorhjólaréttindi færast í 20 ár eða upp um þrjú ár. Þykir mörg- um þó nóg um eins árs hækkun til bílprófs. Njáll Gunnlaugsson Höfundur situr í umferðarnefnd Snigla. Fáðu úrslitin send í símann þinn Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Sumarið er frábær tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Fjölbreytt gisting í boði. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri gestrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. 2 fyrir 1 til Búdapest 29. apríl frá kr. 39.900 Verð 39.900 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum, 2 fyrir 1 tilboð. Verð 3.600 - ***+ gisting Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi pr. nótt á Hotel Mercure Duna ***+ með morgunmat. Einnig önnur hótel í boði. Helgarferð á einstökum tíma! ÚRSLITAKEPPNIN ER AÐ HEFJAST HÁPUNKTURINN Í HANDBOLTANUM Nú er spennan í algleymingi í N1 deildinni. Úrslitakeppni karla er að hefjast. Mætum öll og hvetjum okkar lið til sigurs! Í dag Valur - Akureyri kl. 16:00 (Vodafonehöllinni) Haukar - HK kl. 19:30 (Ásvöllum) Laugardag HK - Haukar kl. 16:00 (Digranesi) Akureyri - Valur kl. 20:00 (Höllinni, Akureyri) Mánudag Haukar - HK kl. 19:30 (Ásvöllum) Valur - Akureyri kl. 19:30 (Vodafonehöllinni) F í t o n / S Í A Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.