Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 JÓHANNES Páll Magnússon lyfja- fræðingur varði nýlega doktors- ritgerð sína við lyfjafræðideild Háskólans í Nott- ingham á Eng- landi. Jóhannes hefur síðustu þrjú árin stundað þar rannsóknir undir handleiðslu prófessors Cameron Al- exander. Rannsóknarefni doktorsverkefn- isins var notkun og þróun nýrra fjöl- liðuaðferða til að bæta stöðugleika, sérhæfni og aðgengi próteina fyrir lyfjameðferð. Þróuð var aðferð til að láta fjölliður vaxa frá yfirborði pró- teina í vatnslausn við lágt hitastig. Sýnt var fram á að aðferðin veldur ekki niðurbroti próteinanna og með aðferðinni er hægt að stjórna fjölliðu- byggingunni med meiri nákvæmi en með hefðbundnum prótein- fjölliðuefnasamtengingum. Fjölliðu- byggingin getur aukið sérhæfni pró- teinsins gagnvart ákveðnum hvarf- efnum, viðtökum og dreifingu þess í líkamanum. Hluti prótein-fjölliðu- sameinda var síðan prófaður í dýralí- kömum og reyndist hafa svipaða virkni og prótein-fjölliðusameindir sem höfðu verið búnar til með hefð- bundnum efnasamtengingum. Andmælendur í doktorsvörninni voru prófessor Steve Brocchini frá School of Pharmacy, London og Dr. Jonathan Aylott frá lyfjafræðideild Háskólans í Nottingham. Jóhannes útskrifaðist frá Lyfja- fræðideild Háskóla Íslands vorið 2004 með cand.pharm.-gráðu í lyfja- fræði. Jóhannes starfar nú við rann- sóknir á einstaklingsbundnum lyfja- meðferðum og lyfjaformum sem er samstarfsverkefni lyfjafræðideildar Háskólans í Padova á Ítalíu og lyfja- fræði-, efnafræði- og heilbrigðissviðs Háskólans í Nottingham. Jóhannes er í sambúð með Berg- lindi Pálsdóttur, klíniskum lyfjafræð- ingi Nýr doktor í lyfjafræði Jóhannes Páll Magnússon Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FRÉTTIR um varúðarorð forseta Íslands um yfirvofandi gos í Kötlu var enn víða að finna á forsíðum er- lendra vefmiðla í gær. Á forsíðu net- útgáfu breska blaðsins The In- dependent var í fyrirsögn vísað til hættunnar af því að „annað, mun stærra íslenskt eldfjall væri við að springa“. Auk þess sem vitnað var til orða Ólafs Ragnars í News- night ræddi Independent við eld- fjallafræðinginn Bill McGuire sem sagðist ekki verða undrandi þótt gos hæfist í Kötlu innan ársins. Þá var umfjöllun um orð forseta Ís- lands í netútgáfu tímaritsins Travel Weekly, svo dæmi sé nefnt. Í netútgáfu breska blaðsins Mirr- or sagði að forsetinn óttaðist hrika- legar afleiðingar (e. devastating consequences) Kötlugoss um allan heim. Hvorki staður né stund Samtök atvinnulífsins lýstu í gær undrun sinni yfir „óheppilegum yf- irlýsingum“ forseta Íslands um væntanlegt Kötlugos sem hefðu skaðað íslenska ferðaþjónustu. „Íslensk náttúra er heillandi að- dráttarafl en á stundum óblíð og óútreiknanleg og fjölbreytileiki hennar er það sem vekur athygli og áhuga þeirra sem til landsins koma. Mikilvægt er að setja íslenska nátt- úru í jákvætt ljós þrátt fyrir að hún lúti fyrst og fremst sínum eigin lög- málum. Það er mjög óheppilegt að forystumenn þjóðarinnar veki ótta í nágrannalöndum okkar um hættu af völdum íslenskra náttúruafla nema til þess sé sérstakt tilefni og þörf,“ segir í ályktuninni. Eðlilegt sé að benda Evrópu- þjóðum á hættuna af afleiðingum Kötlugoss og nauðsyn þess að evr- ópsk stjórnvöld búi sig undir að þróa viðbrögð við slíku en þetta hafi hvorki verið staður né stund til þess. SA hvetja að lokum forsetann til að gera allt sem í hans valdi stend- ur til þess að draga úr þeim skaða sem yfirlýsing hans hefur valdið. Mun stærra íslenskt eld- fjall „við það að springa“ Þekkt gos í Kötlu og Eyjafjallajökli á sögulegum tíma Eldstöð Dags. Gostími (dagar) Stærð goss Katla 8. öld Meðal Katla 9.öld Lítið Katla 9. öld Lítið Katla 920 Meðal Eyjafjallajökull - Skerin um 920 Meðal Katla 12. öld Lítið Katla 1179 Lítið Katla 1245 Lítið Katla 1262 Stórt Katla 1357 Meðal Katla 1416 Meðal Katla 1440 Lítið Katla 15. öld Lítið Katla 1500 Stórt Katla 11. ágúst 1580 Lítið Katla 12. okt. 1612 Lítið Eyjafjallajökull - toppgígur 1612/1613 Mjög lítið Katla 2. sept. 1625 13 Stórt Katla 3. nóv. 1660 >60 Meðal Katla 11. maí 1721 >100 Meðal Katla 17. okt. 1755 ~120 Stórt Eyjafjallajökull - toppgígur 19. des. 1821 >380 Lítið Katla 26. júní 1823 28 Lítið Katla 8.maí 1860 20 Lítið Katla 12. okt. 1918 24 Stórt Katla (25. júní 1955) Mjög lítið Katla (~17. júlí 1999) Mjög lítið Fimmvörðuháls 20.mars 2010 24 Lítið Eyjafjallajökull - toppgígur 14. apríl 2010 Heimild: Jarðvísindastofnun HÍ  SA gagnrýna óheppilegar yfirlýsingar um hættu á gosi Ólafur Ragnar Grímsson Í viðtalinu í fréttaþættinum Newsnight á BBC á mánudags- kvöld ræddi Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, m.a. um samspil eldgosa og jökuls og áhrifa á gossins í Eyjafjallajökli. „Því miður gæti þetta verið fyrsta dæmið af mörgum á 21. öldinni því saga þessara eldjalla í landinu mínu sýnir að þau gjósa með reglubundnum hætti. Og tíminn fyrir, til dæmis, gos í Kötlu, er að nálgast,“ sagði Ólaf- ur Ragnar. Umsjónarmaður þáttarins, Je- remy Paxman, skaut þá inn í að Katla væri auðvitað annað eldfjall „sem hefur sem betur fer ekki gosið.“ Ólafur Ragnar var fljótur til svars: „Nei, en það er miklu, miklu stærra. Og það sem við höfum orðið vitni að er í raun lít- il æfing fyrir það sem mun ger- ast, ekki ef, heldur þegar, Katla gýs. Hún gýs yfirleitt einu sinni á hverri öld. Síðasta gos var árið 1918. Við höfum beðið eftir gos- inu í nokkur ár og undirbúið björgunarsveitir okkar og gert neyðaráætlanir. Ég held því að það sé tímabært fyrir stjórnvöld í Evrópu og samgönguyfirvöld í Evrópu og um allan heim að búa sig undir gos í Kötlu.“ „Nei, en það er miklu, miklu stærra“ HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær átján mánaða fangelsisdóm yfir 23 ára karlmanni, en hann var fundinn sekur um að hafa haft samræði við sofandi konu. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 600 þúsund krónur í bætur. Einn hæsta- réttardómara taldi að sekt manns- ins væri ósönnuð og vildi sýkna hann. Konan sagðist hafa farið með manninum heim eftir dansleik í júlí á síðasta ári en þau þekktust. Hún sagðist hafa farið að hjálpa mann- inum að setja upp gluggatjöld og staðið við það í rúmi hans. Síðan sagðist hún hafa lagst í rúmið og sofnað í öllum fötum nema hvað hún hafði farið úr jakka og tekið af sér hálsmen. Það næsta sem hún sagð- ist muna var að hún vaknaði við að maðurinn var búinn að færa hana úr fötunum og lá ofan á henni og var að hafa við hana samfarir. Hún sagðist hafa frosið við þetta og síðan sofnað aftur. Maðurinn neitaði fyrst að hafa haft samræði við konuna en við- urkenndi það síðan en sagði það hafa verið með hennar samþykki. Bæði voru konan og maðurinn drukkin þessa nótt. Alkóhólmagn ekki mælt Í héraðsdómi segir að manninum hafi hlotið að vera ljóst að konan var sofandi þegar hann hóf samfarirnar. Á sama hátt hafi honum hlotið að vera ljóst að þótt konan hafi vaknað litla stund og ekki reynt að losna úr samförunum hafi hann ekki getað litið á það sem samþykki hennar eins og ástatt var fyrir henni. Meirihluti Hæstaréttar staðfesti dóminn með vísan til forsendna hér- aðsdóms. Hæstaréttardómarinn Gunnlaugur Claessen skilaði hins vegar sératkvæði. Í því segir að vís- bendingar um ölvunarstig konunnar um morguninn renni ekki stoðum undir að hún hafi verið ósjálfbjarga vegna ölvunar eða svefndrunga. Hún hafi sjálf borið að hún hafi ekki drukkið áfengi eftir að fundum hennar og mannsins bar saman, kvaðst ekki hafa verið þreytt og minntist þess ekki að hafa sofnað í sófa heima hjá honum. Þá hafi ekki verið gerð mæling á alkóhólmagni í blóði hennar eða þvagi við komu á neyðarmóttöku klukkan 21.10 að kvöldi sama dags, sem gæti hafa varpað ljósi á ölvun hennar um morguninn. Læknir þar kvað hana ekki hafa borið merki um áfengisneyslu. Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við sofandi konu  Einn hæstaréttardómara skilaði sératkvæði og vildi sýknu IÐNAÐARNEFND Alþingis mun meta áhrif skýrslu rannsóknar- nefndar og hlut Björgólfs Thors Björgólfssonar áður en frumvarp um þjónustusamning milli ríkisins og Verne holding verður afgreitt úr nefndinni. Starfsemi gagnavers Verne holding á Suðurnesjum strandar á frumvarpinu. Rætt var um málefni Verne holding á Alþingi í gær. Jón Gunnarsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmenn Sjálf- stæðisflokks, spurðu Skúla Helgason, formann iðnaðarnefndar Alþingis, út í málið og hvað því liði. Jón hóf raun- ar ræðu sína á því að gagnrýna að nefndin hefði ekki fundað síðan fyrir páska. Skúli svaraði þeirri gagnrýni með því að tilkynna um fund iðn- aðarnefndar á föstudag. „Það var sjónarmið meirihluta nefndarinnar, að okkur bæri skylda til að bíða eftir niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og sér- staklega meta hver hlutur Björgólfs Thors Björgólfssonar yrði í henni áð- ur en málið yrði tekið út úr nefndinni. Nefndin mun nú meta áhrif skýrsl- unnar á framvindu þessa máls,“ sagði Skúli. Eitt af því sem nefndin þarf að meta er það viðhorf sem fram hefur komið um eignarhlut Björgólfs Thors í Verne holding og hvort eðlilegt sé að stjórnvöld samþykki gjörning sem feli í sér fjárhagslega fyrirgreiðslu fyrir einstakling sem lék stórt hlut- verk í aðdraganda bankahrunsins og deilir ábyrgð á þeim hamförum, eins og Skúli sagði. Hann tók einnig fram að um væri að ræða verkefni sem fæli í sér mikilsverða og kærkomna viðbót við atvinnustafsemi á Suðurnesjum. Iðnaðarnefnd fjallar um Verne og Björgólf Thor Laugavegi 63 • S: 551 4422 GLEÐILEGT SUMAR NÝKOMIN GLÆSILEG VORDRESS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.