Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Þó að orsakir falls bankanna vefj-ist fyrir einhverjum komu þær skýrt fram í kynningu rannsókn- arnefndarinnar. Í upphafi ávarps síns á blaðamannafundi nefnd- arinnar sagði Sigríður Benedikts- dóttir: „Meginorsök falls bankanna var vöxtur þeirra og stærð þeirra við fall. Stóru bankarnir þrír tvítugfölduðust að stærð á sjö ár- um.“     Hér var í gærminnst á út- flutnings- verðlaun forset- ans, sem Kaupþing fékk árið 2005. Ör vöxtur bankanna og áköf útrás þeirra hafði nefnilega mörgum þótt hið allra besta mál.     Í rökstuðningi dómnefndar út-flutningsverðlaunanna sagði að bankinn fengi „verðlaunin fyrir þann árangur sem fyrirtækið hefur á skömmum tíma náð á þróuðum mörkuðum erlendis. Fyrirtækið fer fremst í öflugri útrás íslenskra fjár- málafyrirtækja og hefur vakið at- hygli fyrir framsækinn og arðbær- an rekstur. Djörfung og dugur einkenna fyrirtækið, starfsmenn þess og stjórnendur. … Vöxtur fyr- irtækisins hefur verið mjög ör und- anfarin ár og hefur það gegnt lyk- ilhlutverki í fjárfestinga- og viðskiptabankastarfsemi hér á landi. Síðustu ár hefur bankinn stóraukið starfsemi sína á erlendri grundu með stofnun dótturfélaga og kaupum á fjármálafyr- irtækjum“.     Með verðlaunaveitingunni varKaupþing hvatt til dáða og frekari afreka. Valið á bankanum var auðvitað afar vandað og faglegt og til að tryggja það átti fulltrúi viðskipta- og hagfræðideildar HÍ sæti í dómnefndinni. Sá fulltrúi heitir Gylfi Magnússon og er nú við- skiptaráðherra og mun nú vera frekar óánægður með of ákafa út- rás og of hraðan vöxt helstu banka. Gylfi Magnússon Hrunvaldinum hampað Veður víða um heim 21.4., kl. 18.00 Reykjavík 3 snjóél Bolungarvík -2 skýjað Akureyri 0 skýjað Egilsstaðir -3 snjókoma Kirkjubæjarkl. 4 skýjað Nuuk 2 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló 6 léttskýjað Kaupmannahöfn 8 léttskýjað Stokkhólmur 2 skúrir Helsinki 8 heiðskírt Lúxemborg 11 heiðskírt Brussel 10 heiðskírt Dublin 9 léttskýjað Glasgow 11 léttskýjað London 12 heiðskírt París 16 heiðskírt Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 7 léttskýjað Berlín 7 léttskýjað Vín 17 léttskýjað Moskva 11 heiðskírt Algarve 21 skýjað Madríd 21 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 19 heiðskírt Róm 18 heiðskírt Aþena 19 léttskýjað Winnipeg 10 skýjað Montreal 14 skýjað New York 19 heiðskírt Chicago 16 heiðskírt Orlando 24 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 22. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:31 21:23 ÍSAFJÖRÐUR 5:24 21:39 SIGLUFJÖRÐUR 5:07 21:23 DJÚPIVOGUR 4:58 20:55 ÞAU víluðu ekki fyrir sér að sækja á brattann þessir kátu krakkar sem skelltu sér í Esjugöngu á þriðjudaginn í tilefni af Barnamenningarhátíð. Þau voru frá leikskólunum Blásölum og Heiðar- borg og tóku tilbreytingunni fagnandi og að fá að fara út fyrir borgina og gera eitthvað skemmtilegt og krefjandi úti við. Leiðsögumaður frá Ferðafélagi barna mætti á svæðið og gerði ýmislegt skemmtilegt með krökkunum og fræddi þau um útivist. Það eru því eflaust upprennandi fjallagarpar í þessum hópi sem gekk á Esjuna með roða í kinnum. LEIKSKÓLAKRAKKAR FÓRU UPP Í ESJUHLÍÐAR xxxxxx Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „STÓRA myndin er sú að þjóðhags- stærðirnar eru flestar ef ekki allar betri en menn bjuggust við,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, um skýrslu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins um aðra endur- skoðun efnahagsáætlunar Íslands. „Samdráttur landsframleiðslu var umtalsvert minni en menn gerðu ráð fyrir og munar þar þremur pró- sentustigum af landsframleiðslu. Líka að viðleitnin til að koma rík- isfjármálum á réttan kjöl er aðeins á undan áætlun. Það munar rúmu pró- senti af landsframleiðslu þar. Þetta er auðvitað hvort tveggja jákvætt,“ bætir Gylfi við. Heilbrigður afgang- ur sé á viðskiptum við útlönd og krónan hafi róast mikið, þótt hún hafi ekki styrkst að neinu ráði. Gylfi segist hins vegar vona að spá AGS um 8,6% atvinnuleysi á árinu 2011 reynist of svartsýnisleg. Það fari eftir því hvernig hagkerfið í heild þróist og stærsti óvissuþátt- urinn sé fjárfesting, hvort hún kom- ist almennilega af stað. Í skýrslunni kallar AGS á end- urskipulagningu skulda atvinnulífs- ins. „Þeir eru að reka á eftir þessu og það er í sjálfu sér ekki eitthvað sem við andmælum. Bankarnir eru í því og ná ekki að ljúka því á þessu ári, en vonandi verða þeir langt komnir þegar fer að líða á næsta ár,“ segir Gylfi. Einnig er talað um að takast verði á við veikleika í fjármálakerfinu utan bankanna, t.d. Íbúðalánasjóði. Hlið- stæð skoðun á honum og öðrum fjár- málastofnunum geti leitt til meiri viðurkenningar á því tapi sem þegar sé orðið. Gylfi segir ekki búið að taka ákvörðun um eiginfjárframlag til ÍLS, en sterk teikn séu á lofti um að þess muni þurfa. Hann segist þó ekki telja að enn sé viðleitni til að fela tap hjá stofnunum eins og ÍLS, með bjartsýnisspám um endur- heimtur lána. Menn skilji núorðið að best sé að vera raunsær. Í skýrslu AGS segir að áfram þurfi árvekni gegn sniðgöngu á gjaldeyrishöftum. Jafnvel þurfi vilja til að herða höftin. Aðspurður segist Gylfi helst almennt ekki vilja herða þau meira. „En ef það koma í ljós einhverjar glufur sem menn eru að nota sér, þá þurfum við að loka þeim. Og auðvitað líka ef menn beinlínis brjóta lög og fara í gegnum höftin þannig, þá þarf að refsa mönnum fyrir það.“ Enn sé stefnt á að aflétta höftunum smám saman, en það hafi ekki verið tímasett. „Efnahagsáætlunin er að skila þeim árangri sem menn vonuðust til og reyndar aðeins betri árangri,“ segir Gylfi. Þótt enn sé margt óleyst séu málin komin í farveg sem muni leysa það sem út af stendur. Jákvæð skýrsla frá AGS  „Þjóðhagsstærðir flestar ef ekki allar betri en menn bjuggust við,“ segir Gylfi  Svartsýnisspá um atvinnuleysi  Vill helst ekki herða gjaldeyrishöftin meira Þingið og landsstjórinn Efnahagsáætlun Íslands og AGS gengur ágætlega. AGS segir vísbendingar um að kreppan verði ekki eins alvarleg og búist hafði verið við og hagkerfið fari að vaxa á ný á þessu ári þótt samdráttur landsframleiðslu á árinu öllu sé áætlaður 3%. Hagvaxtarspá sjóðsins gerir ráð fyrir 2,3% vexti á næsta ári, 2,4% vexti árið 2012, 2,6% árið 2013 og 4% árið 2014. Þá spáir hann að at- vinnuleysi verði 9,7% á þessu ári, 8,6% á næsta ári en verði komið niður í 3% árið 2014. Þá verði verðbólga 3,8% á næsta ári en lækki áfram og verði 2,5% árið 2014. Í skýrslu sjóðsins segir að allar helstu kröfur í tengslum við aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands hafi verið uppfylltar Fram kemur í skýrslunni, að ís- lensk stjórnvöld og starfsfólk AGS séu sammála um að betri horfur í efnahagsmálum eigi að gera kleift að draga meira úr halla ríkissjóðs á þessu ári en áður var áformað. Vegna óvissu um aðgang að al- þjóðlegu lánsfé verði aukin áhersla lögð á að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Í skýrslunni er áætlað að gjaldeyrisforði nemi 854 milljörðum í lok árs. Til að tryggja sér áframhaldandi lán meðfram áætlun AGS, segir í skýrslunni, fullvissa íslensk stjórn- völd sjóðinn um að þau ætli sér að semja um Icesave þannig að póli- tísk sátt takist um málið á Íslandi. Hagvöxtur snýr aftur á þessu ári Sími 699 3366 • hekla@heklaislandi.is • www.heklaislandi.is SUMARIÐ ER KOMIÐ – FÍFILL OG KRUMMI SERVÍETTUR ÍSLENSK HÖNNUN Heklu B. Guðmundsdóttur listakonu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.