Morgunblaðið - 22.04.2010, Síða 20

Morgunblaðið - 22.04.2010, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Einstæð rösk-un varð áflugi vegna eldgossins í Eyja- fjallajökli. Lang- varandi flugbann um stóran hluta Evrópu hafði áhrif á flugfélög og farþega þeirra um allan heim. Nú er um það deilt hvort of langt hefur verið gengið í við- brögðum við því að öskuský lagðist yfir Evrópu með skömm- um fyrirvara. Flugfélög hafa tapað ógrynni fjár af þessum sökum. Mörg þeirra stóðu tæpt fyrir og þegar reiðufé hverfur út úr rekstrinum á sama tíma sem það streymir þaðan út vegna bótakrafna verða lánardrottnar félaganna órólegir. Hætt er við að einhver félög standi ekki þennan öskustorm af sér. Virðingarvert var hve mörg flugfélögin, þ.á m. þau íslensku, lögðu sig fram um að koma til móts við farþega við erfiðar að- stæður. Margvíslegar stjórn- valdsreglur, til að mynda evr- ópskar gera miklar kröfur til flugfélaga um bætur til ferða- langa sem ekki fá notið lofaðrar þjónustu þeirra. Hvers vegna þarf slíkar reglusetningar? Er ekki eðlilegra að slíkt lúti einka- réttarlegum reglum? Flugfélag sem býðst til að tryggja við- skiptavinum sínum bætur eða fyrirgreiðslu vegna niðurfell- ingar flugs eða tafa er líklegra til að fá viðskipti en önnur og geta látið slík loforð sjást í far- gjaldi. Sagan sýnir að flugrekstur er áhættusamur rekstur. Nýliðnir atburðir undir- strika einnig hversu mikilvægur sá rekstur er fyrir skilvirk við- skipti nútímasamfélags. Alls ekki má taka undir þau sjón- armið sem nú vottar fyrir að slaka eigi á kröfum um flug- öryggi með hliðsjón af fjárhags- lega veikri stöðu flugsins. Ör- yggið verður að vera í öndvegi og það réð því að flugbann skall á Evrópu. En alla aðra þætti bæði má og á að skoða rækilega. Ekki er rétt að hlaða að geð- þótta íþyngjandi regluverki á flugið. Telji opinber yfirvöld sig knúin til slíks af stjórnmála- legum ástæðum verða þau að bera kostnaðinn sem af slíkri góðsemi hlýst. Fá lönd hafa jafn ríka þörf fyrir burðug flugfélög og Ís- land. Farþegaskip ganga ekki til og frá landinu nema um tak- markaðan tíma ár hvert. Bret- land er eyja eins og Ísland. En hún er nærri öðrum ströndum og tengd öðrum löndum og álf- um með sjávargöngum og öfl- ugum skipa- og ferjusiglingum. Bretar líta þrátt fyrir það á sex daga flugbann sem neyðar- ástand sem setji allt viðskipta og þjóðlíf úr skorðum. Síðustu atburðir ættu að vera Íslend- ingum holl áminning um mik- ilvægi flugsamgangna fyrir þjóðina. Mikilvægi flugsins fyrir Íslendinga kom glögglega í ljós síðustu daga } Tryggja verður öfluga flugþjónustu Frumvarp dóms-mála- og mannréttinda- ráðherra er nú til meðferðar á Al- þingi. Í frumvarp- inu er gert ráð fyrir umtals- verðum breytingum á skipulagi lögreglumála í landinu og mikil hagræðingarkrafa gerð til lög- reglunnar. Þetta bætist við þann niðurskurð sem þegar hefur orð- ið hjá lögreglunni í landinu. Við forgangsröðun hjá ríkinu hefur því miður komið í ljós að stjórn- völd hafa ekki tekið nægilegt til- lit til þýðingarmikils hlutverks lögreglunnar sem einnar helstu grunnstoðar samfélagsins. Við kynningu á frumvarpinu hefur ráðherra talað um að hún vilji forðast að fækka lög- reglumönnum og óhætt er að taka undir þá afstöðu. Góð orð duga hins vegar skammt í þessu efni, því að fækkun lögreglu- manna er bein afleiðing frum- varpsins, verði það að lögum. Þetta má lesa út úr umsögn fjár- lagaskrifstofu fjármálaráðu- neytisins. Annað sem varasamt er í frumvarpinu er sú mikla fækkun lög- regluumdæma sem ráð er fyrir gert. Umdæmin eru nú fimmtán en verði frumvarpið að lögum fækkar þeim í sex sem þýðir að sum þeirra munu ná yfir mjög stór landsvæði. Í umræðum á þingi benti Einar Kristinn Guðfinns- son alþingismaður til að mynda á að einn lögreglustjóri yrði yfir svæðinu allt frá Akranesi til Ísa- fjarðar og annar færi með um- dæmi sem næði frá Hrútafirði til Langaness. Vera kann að sum umdæmi séu í dag of smá, en hægt er að taka undir með Einari að með þessari hugmynd er gengið of langt í hina áttina. Það er ekki aðeins fólksfjöldinn sem hefur þýðingu, heldur einnig stærð landsvæðisins og hversu greið- fært er þar um. Ýmsir aðrir þættir í frum- varpinu þarfnast betri skoðunar og greinilegt er að Alþingis bíð- ur mikið verk að koma því í gott lag. Afar mikilvægt er að þar takist vel til. Margt í frumvarpinu þarf að taka til betri skoðunar} Frumvarp til lögreglulaga T il er sú manngerð sem festir sig í reglum og reglugerðum og lítur svo á að ekki megi breyta því sem þar standi. Reglur eru reglur, seg- ir þetta fólk og telur skelfilegt veikleikamerki að veita undaþágur. Það sé brot á mikilvægri jafnræðisreglu og auk þess geti það riðlað skipulaginu. Þegar þessi manngerð kemst til áhrifa er hún engum til sérstakrar skemmtunar, af því hún er í eðli sínu smásál. Smásálir hafa engan áhuga á manneskjum, þeim finnst að allir eigi að vera nokkurn veginn eins, og til friðs. Nú hefur hópur smásálna innan borg- arskipulagsins uppgötvað sér til mikillar hrell- ingar að sérvitur og dyntóttur listamaður hefur farið einhverja metra fram fyrir lóð sína og dundað þar við skreytilist. Þetta þarf vitanlega að stöðva af hörku því það verður að framfylgja reglum. Það skiptir þá engu máli að viðkomandi listamaður, Hrafn Gunnlaugsson, hefur í langan tíma verið að byggja upp og skapa eitt sérkennilegasta og skemmtilegasta útivist- arsvæðið á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er sannur æv- intýraheimur sem hlýtur að hrífa alla þá sem hafa gætt þess að varðveita ímyndunarafl sitt. Börn fyllast gleði þeg- ar þau koma á þennan stað. Útlendingar verða stórhrifnir. Hinn dæmigerði fullorðni Íslendingur verður kannski dá- lítið hissa þegar hann lítur þarna í kringum sig því hann sér svo margt óvenjulegt, en hann hlýtur að viðurkenna að þetta er list sem er jafnvel frumlegri en dæmigert framlag Íslendinga til Feneyjatvíæringsins. Fór ekki þorri borgarstjórnar til Feneyja til að virða fyrir sér síðasta framlag Íslendinga? Það væri kostnaðarminna fyrir skattgreiðendur að borgarfulltrúarnir keyrðu í Laugarnesið, þar sæju þeir alvörunútímalist, í íslensku lands- lagi. Það sérkennilegasta við aðgerðir borgaryf- irvalda í Laugarnesinu er að Sjálfstæðisflokk- urinn skuli standa fyrir þeim. Maður hefði ein- mitt búist við því að forsjárhyggjupostularnir í vinstriflokkunum myndu froðufella og kalla til jarðýtur. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sem segist staðfastur standa vörð um frelsi ein- staklingsins. Einmitt þess vegna bjóst maður við að flokkurinn myndi standa með skapandi einstaklingi gegn reglugerðarfárinu. En af ein- hverjum ástæðum er það ekki hægt. Eru bara smásálir í borgarstjórn? Ef svo er þá er ekk- ert annað til ráða en að kjósa Besta flokk Jóns Gnarr í næstu kosningum. Þar eru listamenn í nánast hverju sæti, skapandi einstaklingar sem ekki eru líklegir til að falla fram og tilbiðja reglugerðafárið. Það fólk hefur næga víð- sýni til að skynja og standa með margbreytileika mann- lífsins. Borgaryfirvöld eiga að hætta þeim bjánaskap að eltast við nokkra metra í Laugarnesinu. Þau eiga að sýna rausn- arskap og gefa Hrafni Gunnlaugssyni þennan skika. Og þakka honum um leið fyrir að hafa gert umhverfið svo miklu skemmtilegra. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Smásálir í borgarstjórn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is A ðeins eru fimm vikur til sveitarstjórnar- kosninganna 29. maí. Þótt framboðslistar séu flestir komnir fram eru þó ekki allir tilbúnir enn. Frestur til að skila framboðum í sveitarfélög- unum rennur út hinn 8. maí. Framkvæmdastjórar stjórnmála- flokkanna eru á einu máli um að efnahagsþrengingarnar setji mikið mark á kosningabaráttuna, menn reyni að stilla kostnaði í hóf. „Þetta er svolítið skrítin kosn- ingabarátta. Hún er ekki hafin og ég tel að hún verði stutt og snörp,“ seg- ir Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem býður nú fram á fleiri stöðum en í kosningunum 2006. „Þetta er ekki barátta hinna miklu kosningaloforða. Það vita það allir að allir sjóðir eru tómir og ótrúverð- ugt að fara fram með einhver stór kosningaloforð,“ segir hún. Jónmundur Guðmarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, gerir einnig ráð fyrir að kosninga- baráttan verði fremur stutt, að- stæður í þjóðfélaginu bjóði ekki upp á annað. „Ég tel hyggilegt að kosn- ingabaráttan verði bæði stutt og snörp og fari vel fram. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur verið að undirbúa sig um nokkurra mánaða skeið fyrir þessar sveitarstjórnarkosningar með málefnavinnu og að öðrum und- irbúningi sem nauðsynlegur er.“ „Þetta er allt að fara í gang. Fólk finnur taktinn á hverjum stað,“ segir Sigrún Jónsdóttir, framkvæmda- stýra Samfylkingarinnar. Undirbún- ingur fyrir sjálfa kosningabaráttuna er að komast í fullan gang. Fram- boðslistar eru flestir komnir fram, nú síðast í Garðabæ þar sem Sam- fylkingin býður í fyrsta skipti fram í eigin nafni til bæjarstjórnar. Sigrún segist eiga von á að kosningabar- áttan fyrir sveitarstjórnarkosning- arnar verði styttri að þessu sinni en í fyrri kosningum og hófstilltari. „Það er verið að leggja síðustu hönd á framboðslista,“ segir Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins. Að sögn hans verða fleiri B-listaframboð nú en í seinustu kosningum 2006. Efnahagskreppan, vandi heimilanna og atvinnumál munu yfirskyggja allt annað í þess- um kosningum að mati hans. Samkomulag um takmörk á auglýsingar í burðarliðnum Víðast hvar grípa flokkarnir tæki- færið á sumardaginn fyrsta til að vekja athygli á framboðunum með uppákomum af ýmsu tagi. Boðið verður upp á sumardagskaffi og efnt til fjölskyldugleði víða. Kosninga- miðstöðvar verða opnaðar í dag og á allra næstu dögum víðs vegar í sveit- arfélögum um allt land. Í burðarliðnum er samkomulag á milli allra flokkanna sem bjóða fram á landsvísu um að sett verði takmörk á auglýsingar fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar. Samningstexti ligg- ur fyrir og búast talsmenn flokkanna við að samkomulag verði undirritað og kynnt á allra næstu dögum um hámark á þeirri upphæð sem stjórn- málaflokkar mega verja til að kaupa auglýsingar í fjölmiðlum. Morgunblaðið/Ómar Færri Sveitarfélögum hefur fækkað frá seinustu kosningum og verður kosið til 76 sveitarstjórna þann 29. maí. Hófstillt og stutt og loforðin lágstemmd Lítið hefur farið fyrir kosninga- baráttu vegna sveitarstjórnar- kosninganna. Nú má þó reikna með að meira líf færist í undir- búninginn. Flokkarnir búa sig undir stutta og snarpa baráttu. Hvað verður kosið í mörgum sveitarfélögum? Sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí verða haldnar í 77 sveit- arfélögum. Frá því kosið var til sveitarstjórna síðast árið 2006 hefur sveitarfélögum fækkað um tvö, úr 79 í 77. Að loknum kosn- ingunum í vor tekur gildi samein- ing Arnarneshrepps og Hörg- árbyggðar. Hvenær rennur framboðs- frestur út? Frestur til að skila framboðs- listum til yfirkjörstjórnar í viðkom- andi sveitarfélagi er til kl. 12 á há- degi laugardaginn 8. maí. Er nú þegar hægt að kjósa utan kjörfundar? Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 6. apríl. Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á land- inu, á aðalskrifstofum eða í útibú- um þeirra. Þá er utankjörfund- aratkvæðagreiðsla erlendis hafin á 235 stöðum í 84 löndum. Hafa sveitarfélög verið sam- einuð frá seinustu kosningum? Já, sveitarfélög sem hafa samein- ast eru Aðaldælahreppur og Þing- eyjarsveit og hins vegar Akureyr- arbær og Grímseyjarhreppur. S&S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.