Morgunblaðið - 08.05.2010, Qupperneq 45
Minningar 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Garðar
Aspir, 2-4 m há tré, einnig
skógarplöntur
Til sölu aspir, 2-4 m há tré, ýmsir
klónar. Einnig skógarplöntur í bökkum
og pottum. Garðyrkjustöðin Kvistar,
Reykholti, Bisk., s. 694 7074.
Opið alla daga frá kl. 9.00 - 20.00.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
Frelsi frá streitu og kvíða
Hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is,
www.theta.is
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð 10.900
pakkinn með poka, strengjasetti
og stilliflautu. Kassagítartilboð:
Kr. 49.900 m. pickup, innbyggður
tuner, 10w magnari, poki, snúra,
ól, aukastrengjasett og E - Media
kennsluforrit í tölvu. Rafmagns-
gítarpakkar frá kr. 33.900.
Þjóðlagagítar frá 17.900.
Hljómborð frá kr. 8.900.
Kassagítar kr. 11.900.
Þjóðlagagítarpakki á 19.900 með
poka, ól, stilliflautu, auka streng-
jasetti og E - Media kennsludisk.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125,
www.gitarinn.is
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast
27 ára reglusamur, utan að landi,
óskar eftir lítilli íbúð í 101, 105 eða
107. Greiðslugeta á bilinu 70 - 80
þúsund. Uppl. í s. 868 4301.
Geymslur
Góður bílskúr til leigu
í Hvassaleiti
Til leigu góður 23 fm bílskúr í Hvassa-
leiti. Rafmagn og kalt vatn. Sími
617 6330.
Sumarhús
Rotþrær frá 2300 l, siturlagnir,
leiðbeiningar, heildarlausnir.
Vatnsgeymar staðlaðar stærðir.
Jarðgerðarílát/moltukassar.
www.borgarplast.is
Mosfellsbæ,
s. 561 2211.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Til sölu
Til sölu nýjar innihurðir
Á nokkrar hvítar fulningahurðir yfir-
felldar. Seljast með miklum afslætti.
Yfir 45%. Í stærðumun 70x200 ca.
Upplýsingar í síma 557 4822,
561 1383 og 696 6926
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is Victoria's Secret. Bath &
Bodyworks
Vorum að taka upp nýja sendingu af
Victoria´s Secret og Bath & Body-
works. Allir nýju ilmirnir og hinar
geysivinsælu handsápur frá Bath &
Bodyworks.
Allar uppl. hjá Snót.is og
í síma 897 2902.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Íslenskur útifáni
Stór 100x150 cm. 3.982 kr.
Krambúðin, Skólavörðustíg 42,
Strax Laugarvatni,
Strax Mývatni,
Strax Seyðisfirði,
Strax Flúðum,
Úrval Selfossi,
Úrval Egilsstöðum,
Hyrnan Borgarnesi,
Strax Búðardal.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Hreinsa þakrennur og tek að
mér ýmis smærri verk
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com
Hanna og smíða stiga
Fást á ýmsum byggingarstigum.
Sérlausnir í þrengslum. 25 ára
reynsla. Uppl. í síma 894 0431.
Byggingar
Fasteignaskoðun og ráðgjöf
Skoðum eignir t.d. v/kaupa, sölu
eða leigu. Veitum ráðgjöf vegna t.d.
viðgerða, nýsmíði og breytinga.
Fasteignaskoðun og ráðgjöf.
Sími 821-0631 e. kl. 16.00.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari óskar eftir verk-
efnum. Vönduð og öguð vinnubrögð.
Byrjaður að bóka sumarið. Sanngjarnt
verð. Upplýsingar í síma 897 2318.
Húsviðhald
Sláttutraktor óskast
Óska eftir vel með förnum sláttu-
traktor. Uppl. í síma 899-5219.
Fósturfaðir minn
Ármann Ásmundsson
lést á deild 14 G á
Landspítalanum 25.
apríl síðastliðinn eftir
stutta en erfiða legu. Það er erfitt til
þess að hugsa að maður sem virðist
vera í fullu fjöri missi heilsuna algjör-
lega á þremur vikum. En hann hafði
þróað með sér sjúkdóma sem stuðl-
uðu að þessum skjótu endalokum.
Hann kvartaði aldrei, þar af leiðandi
var ekki hugsað til þess dagsdaglega
að hann væri viðkvæmur heilsufars-
lega.
Ármann kom inn í líf mitt fyrir um
það bil 40 árum þegar hann og móðir
mín fóru að búa saman. Ég kynntist
honum ekki sem föður, en betri afa
fyrir drengina mína hefði ég ekki get-
að kosið mér. Ég minnist hans með
Adda minn í kjöltunni þar sem hann
var að kenna drengnum vísur. Sá litli
var snöggur að læra þannig að fljót-
lega kváðu þeir vinirnir saman hverja
vísuna eftir aðra. Síðan bættist Birgir
í hópinn og var þá viðkvæðið hjá afa
þegar hann greip í drengina: Tek ég
hérna hvolpa tvo, hvað skal við þá
gera?
Ármann var dagfarsprúður og
þægilegur maður. Hann var alltaf
tilbúinn að rétta okkur systkinum
hjálparhönd ef á þurfti að halda. Þeg-
ar hann kom í heyskap á Silfrastöð-
um, þegar ég bjó þar, fór hann offari í
verkum og ætlaði sér ekki af. Slík var
vinnugleðin og atorkan við öll verk.
Stríðnin og glettnin var ofarlega
Ármann Þór
Ásmundsson
✝ Ármann Þór Ás-mundsson fæddist
á Suðurgötu 25 hinn
19. maí 1934. Hann
andaðist á Landspít-
alanum 25. apríl 2010.
Útför Ármanns
Þórs fór fram frá Bú-
staðakirkju 4. maí
2010.
hjá honum og stutt í
barnið sem bjó í brjósti
hans. Þær voru ófáar
stundirnar þar sem
grípa þurfti inn í þegar
hann datt í að stríða
barnabörnunum og allt
var komið í háaloft.
Þessara stunda minn-
ast þessir krakkar, sem
eru uppkomin í dag,
með gleði. Svona var
afi bara, þetta einkenn-
ir hann í minningu
þeirra.
Móður minni reynd-
ist hann góður sambýlismaður og fé-
lagi. Þau ferðuðust víða hér áður fyrr
og höfðu gaman af. Síðustu árin
dvöldu þau langtímum í sumarbústað
sínum, þar sem þau höfðu sameigin-
legan áhuga á því að gróðursetja
plöntur og fylgjast með þeim vaxa og
dafna.
Eftir að þau eignuðust hundinn
Depil var eins og þau hefðu eignast
lítið barn. Allt þeirra líf snerist um
þessa litlu lífveru. Ég held að ég geti
fullyrt að það voru bestu stundir Ár-
manns þegar hann fór út á göngu með
Depil og fólk stoppaði hann og dáðist
að því hversu fallegur hundurinn
væri. Þá ljómaði Ármann eins og sól í
heiði og stoltur sagði hann frá öllum
kostum hundsins sem eru ekki ófáir.
Nú er komið að kveðjustund. Ég
þakka þér, Ármann, allar stundirnar
sem við áttum saman. Hversu vel þú
reyndist drengjunum mínum og síð-
ast en ekki síst hversu góður vinur þú
reyndist mömmu minni, það er ómet-
anlegt. Sofðu rótt kæri Ármann.
Vertu dugleg elsku mamma mín.
Eins og segir í þessum orðum: Loforð
guðs:
Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,
og gullskrýddir blómstígar alla leið heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngunni til himinsins helgu borgar.
En lofað ég get þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér ljós þó leiðin sér myrk.
Mundu svo barn mitt að lofað ég hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
(Höf. ók.)
Mömmu minni, börnum og barna-
börnum Ármanns sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur. Minn-
ingin um góðan mann lifir.
Lilja Hannesdóttir.
Elsku afi.
Þú sem varst alltaf svo sprækur,
ekkert amaði að,
svo illilega varstu veikur,
mér var sagt að þú myndir
kannski ekki lifa af,
nú bið ég á hverju kvöldi,
að þú komist aftur af stað,
því það er svo margt sem þú þarft að
segja mér, um lífið, tilveruna og allt það.
(Bergþóra Guðmundsdóttir)
En núna ertu farinn frá okkur og
okkur langar að minnast þín með
nokkrum orðum.
Þú varst alltaf svo hjartahlýr og
góður maður og við eigum erfitt með
að sætta okkur við það að þú sért far-
inn frá okkur.
Við eigum svo margar góðar minn-
ingar um þig eins og þegar þú varst
alltaf að koma í heimsóknir til okkar
þegar við vorum lítil, voða laumuleg-
ur á svip með fulla vasa af nammi og
bláum ópal og gafst okkur.
Þegar þú varst alltaf að sprengja
afmælisblöðrurnar okkar í afmælun-
um okkar til að hrekkja okkur krakk-
ana. Það fannst þér alltaf jafngaman.
Þegar Halldóra Friðmey fékk lánaða
Löduna þína til að æfa sig í æfinga-
akstri. Þar áttu hún og Guðmundur
pabbi góðar stundir saman því Hall-
dóru gekk illa að snúa stýrinu því það
var svo stíft en það tókst samt allt á
endanum.
Þegar þú komst með Depil í fyrsta
sinn í heimsókn til okkar og við urð-
um samstundis mjög hrifin af honum.
Allar þínar heimsóknir síðustu ár
með Depil þér við hlið og hvað þér
fannst fyndið hvað Depill var hrædd-
ur við Ástrík, kanínuna okkar.
Hvað þú varst alltaf hrifinn af
mömmukökunum hennar mömmu.
Hvað þú sýndir alltaf áhuga á öllu
því sem við tókum okkur fyrir hend-
ur. Nú ertu á góðum stað, við söknum
þín og gleymum þér aldrei.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Halldóra Friðmey,
Bergþóra og Brynjólfur Þór
Guðmundarbörn.
Kæri Ámann.
Thomas Jefferson sagði: „Ég hef
fundið að því meira sem ég legg í/vinn
við hlutina því betur ganga þeir.“ Ég
hef velt því fyrir mér undanfarið
hvort þú hafir verið sömu skoðunar
þar sem stærsta minning mín um þig
er um mann sem sífellt var að vinna
að eða fást við eitthvað, þú fannst eig-
inlega ekki stund til að stoppa og alls
ekki í iðjuleysi.
Leiðir okkar lágu saman fyrir rúm-
um fjörutíu árum er þið móðir mín
voruð að kynnast, í fyrstu brá þér fyr-
ir en síðan varðstu tíður gestur og
loks búsettur. Þú barst með þér að
vera útivinnandi maður, hraustlegur
og veðraður. Fljótlega varð ljóst að
þú undir þér best við útiveru og sem
mest í náttúrunni. Sunnudagsbíltúr-
ar, „gúrkuhringir“ og fjöruferðir með
gramsi eftir gulli sem náttúran
geymir eða aðrir höfðu gleymt urðu
fasti punkturinn á uppvaxtarárum
okkar yngri systkinanna. Þessar
ferðir þróuðust upp í lengri útilegur
og ferðalög sem áttu hug ykkar og
þið gerðuð víðreist í tjaldtúrum um
allt land. Margt var skoðað og marg-
ar minningar tengdar þessum ferð-
um. Þú bjóst yfir miklum fróðleik um
umhverfið og náttúruna, varst fljótur
að veita aðgang að þeim fróðleik,
enda hafðir þú mikla reynslu af þeim
fjölmörgu störfum og verkefnum sem
þú hafðir fengist við.
Iðni þín gerði þig vinsælan sam-
starfsmann og vinnuferill þinn sýndi
að þú varst vel liðinn og skiptir ekki
um starf nema fyrirtæki hreinlega
hættu starfsemi. Þá varstu ekki lengi
iðjulaus enda bóngóður og sífellt
tilbúinn til aðstoðar ef með þurfti.
Síðustu árin í starfi hjá Eimskipum
og eftir það í tilfallandi verkefnum.
Þú varst skapgóður og fljótur að
grípa glens enda með afbrigðum
stríðinn og hrekkjóttur. Varð mér
fljótlega ljóst svo og öllum öðrum og
þó sérstaklega þeim börnum sem
kölluðu þig afa og sum „afa hrekkju-
svín“. Þau hinsvegar drógust að þér
og vildu hjá vera, enda hrekkirnir
saklausir.
Undir þú þér þó best þar sem
menn höfðu upplifað skemmtilega
reynslu og gátu sagt sögur og sífellt
varstu tilbúinn í fleiri sögur.
Vorkoman hefur ekki farið sér
hægt undanfarna daga. Það er sárt
að þegar ljúfasti tími ársins nálgast
þurfir þú að kveðja þennan heim, en
er kallið kemur verður ekki undan
komist.
Davíð Stefánsson orti þessar línur
sem mér finnst hæfa kveðjustund
þessari:
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
Þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær
Og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
Að þar heyrast englar tala,
Og einn þeirra blakar bleikum væng,
Svo brjóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
Svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt
Og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson.)
Kæri Ármann, nú er komið að leið-
arlokum á ferð þinni í því umhverfi
sem við nú þekkjum og ferð á annað
stig hafin. Heill, frjáls og óháður,
tilbúinn til verka. Verði för þín heilla-
för og vegsemd fylgi þér alla tíð.
Elsku móðir mín, styrkur fylgi þér
á þessum erfiðu tímum.
Hannes Alfreð Hannesson.
Ég á erfitt með að trúa því að þú
sért farinn frá okkur afi minn. Á
sunnudaginn hringdi mamma í mig
og sagði mér að þú værir orðinn mjög
veikur og værir kominn í öndunarvél
og það liti illa út með framhaldið.
SJÁ SÍÐU 46